26.04.1929
Neðri deild: 54. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1544 í B-deild Alþingistíðinda. (761)

16. mál, fjárlög 1930

Bernharð Stefánsson:

Mjer voru það mikil vonbrigði að heyra, hvernig hv. frsm. fjvn. tók í brtt. mína um fjárframlag til bryggjugerðar á Siglufirði, því að eins og jeg sagði í fyrri ræðu minni, bjóst jeg fastlega við því, að n. myndi ekki leggjast á móti þeirri brtt., og þó olli það mjer mestrar undrunar að heyra þau rök, sem hv. frsm. bar fram gegn brtt. Hann gekk alveg framhjá þeim einu rökum, sem frambærileg hefðu verið, getuleysi ríkissjóðs. Fyrir því verður að beygja sig, þótt um góð mál sje að ræða.

Hv. frsm. sagði, að n. hefði ekki haft fyrir sjer kostnaðaráætlun, uppdrátt eða slíkt. Þó viðurkendi hann, að n. hefði fengið umsögn verkfræðings um málið, en kvað hana lauslega. Jeg sá þessa umsögn og jeg staðhæfi, að af henni mátti fá ljósa hugmynd um þetta mannvirki. Annars þykir mjer undarlegt, hve hv. fjvn. er ófróð um málið, þar sem hún bar fram í fyrra brtt. um ábyrgðarheimild handa ríkisstj. fyrir lánveitingu til þessarar bryggjugerðar, sem var samþ. í fjvn. eru nú sömu mennirnir og þá, að einum undanteknum. Jeg býst við, að fjvn. hafi haft eitthvað fyrir sjer, þegar hún bar þessa brtt. fram. (IngB: N. heimilaði stj. að ábyrgjast lán, vitanlega að fengnum fullnægjandi gögnum). Það er mjög undarlegt, að n. skyldi vera þessu máli fylgjandi í fyrra, en segja nú, að gögn skorti. Annars held jeg, að fjvn. hefði ekki verið miklu fróðari um málið, þótt hún hefði fengið uppdrátt. Jeg efast um, að hv. nm. hafi svo mikið vit á verkfræðilegum efnum, að þeir skilji slíkan uppdrátt. Þá sagði hv. frsm., að ekkert stæði um það í hafnarlögum Siglufjarðar, að ríkissjóður legði þar fram fje til hafnarbóta. Þetta er rjett, en lögin eru sett fyrir nokkru og aðstaðan breytt. Siglufjörður á kröfu á því að njóta jafnrjettis við aðra kaupstaði landsins.

Hv. frsm. sagði, að ekkert ósamræmi væri í því, þótt Siglfirðingum væri synjað um þessa fjárveitingu, því að Akureyri hefði verið synjað um samskonar fjárveitingu í fyrra. En mjer finst ósamræmi í því, að Ísafjörður hefir fengið 60 þús. kr. til bryggjugerðar, Hafnarfjörður á að fá á sínum tíma 1/3 framlags og Vestmannaeyjar 1/4 hluta til sinna hafnarmannvirkja. Akureyri varð fyrir órjetti í fyrra, samanborið við þessa kaupstaði, og það bætir ekki úr, að Siglufjörður verði fyrir samskonar ranglæti nú. Annars dreg jeg það í efa, að bryggjan verði sá gróðavegur fyrir Siglufjörð, sem hv. frsm. ljet í veðri vaka. Hann sagði, að Siglfirðingar tækju há bryggjugjöld og nefndi í því sambandi, hvað síldareinkasalan yrði að borga. Það munu líka vera aðaltekjur Siglufjarðar af bryggjugjöldum, sem þaðan koma. Hv. frsm. var að leggja Siglfirðingum það til lasts, að bryggjugjöld væru hærri þar en á Akureyri. En þess er að gæta, að bryggjurnar á Akureyri voru bygðar fyrir stríð, og er því óvíst, að bryggjugjald á Siglufirði sje hlutfallslega hærra samanborið við verð bryggjunnar, því þar var bryggjan bygð á dýrari tíma.

Hjer er ekki um annað að ræða en það, hvort Siglufjörður á að njóta jafnrjettis við aðra kaupstaði landsins. Ráðið til þess að lækka bryggjugjöldin er að veita bænum nokkurn styrk til að standast þann kostnað, sem af bryggjugerðinni leiðir. En það er auðsætt, að fjvn. vill ekki láta Siglufjörð njóta þessa jafnrjettis. Jeg hefi áður orðið þess var, að til eru menn í fjvn., sem andar jafnan kalt frá til Siglufjarðar. Hjelt jeg þó, að þessir menn hefðu ekki smitað svo út frá sjer, sem raun ber vitni um. Og jeg ætla að treysta svo mikið á sanngirni hv. þdm., að jeg vænti þess, að allir þeir, sem fyrir skömmu greiddu atkv. með hafnarlögum fyrir Hafnarfjörð, fylgi einnig þessari till., og þá ætti henni að vera borgið.