26.04.1929
Neðri deild: 54. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1548 í B-deild Alþingistíðinda. (763)

16. mál, fjárlög 1930

Fjmrh. (Einar Árnason):

Í ræðu minni í dag tók jeg fram flest það, sem jeg hefi að segja um þennan kafla fjárl., og skal eigi endurtaka það. Jeg ljet þess þá getið, að jeg yrði að mæla á móti flestum þeim brtt., sem nú liggja fyrir, vegna þess, að með samþ. þeirra yrði stefnt út í algert taumleysi. Jeg hefi nú hlýtt á mál hv. flm. og telur hver, sem vænta mátti, sínum till. sitthvað til ágætis. Skal jeg fúslega viðurkenna, að margar þeirra eru þarflegar. En um það er eigi deilt, heldur hitt, hvort fje sje til að framkvæma þær. Jeg hefi líka orðið þess var, að ýmsir hv. þdm. hafa neitað sjer um að bera fram brtt., af því að þeir líta svo á, að nú sje svo langt gengið í hækkun gjaldabálksins, að ekki megi lengra fara. Er það og mála sannast.

Um framlögin til vega er það að segja, að þegar fjárlagafrv. var samið, tók stj. alveg til greina till. vegamálastjóra um fjárveitingar. Mun slíkt vera sjaldgæft, ef ekki einsdæmi, enda er nú ætlað meira fje til vega- og brúargerða en nokkru sinni áður. Hv. fjvn. hefir líka fallist á, að áætlunarupphæð stj. væri nægilega há. Er því naumast með sanngirni hægt að krefjast, að hún sje enn hækkuð. Sama má segja um aukin framlög til lendingarbóta. Þau eiga varla rjett á sjer, þegar litið er á fjárhagsgetu ríkissjóðs, og þaðan af síður hinar mörgu fjárupphæðir, sem farið er fram á í brtt. einstakra þm. Má þar nefna sjúkrastyrkina. Það er auðvitað altaf gott að geta hjálpað þeim, sem hjálpar þurfa. En ef þingið ætti að taka upp þá stefnu að veita hverjum þeim sjúkrastyrk, sem þess beiðist og hjálparþurfi getur talist, mundi það hafa svo mikla gjaldaaukning í för með sjer, að flestum myndi hrjósa hugur við, og þó aldrei nást fult rjettlæti með því móti.

Um eina brtt. á þskj. 408 stendur þó sjerstaklega á, og virðist mjer þingið tæplega geta gengið á móti henni, jafnvel þótt fjárhæðin, sem hún fer fram á, sje nokkuð há. Það er till. hv. 2. þm. Eyf. um tillag til bryggju á Siglufirði. Mjer virðist naumast annað sanngjarnt en láta eitthvað af hendi rakna til þessa mannvirkis, úr því að lagt er fram fje úr ríkissjóði til samskonar mannvirkja á öðrum stöðum. Ríkið hefir þegar lagt fram fje til hafnarbóta í Reykjavík, Vestmannaeyjum og á Ísafirði. Nú er gert ráð fyrir að styrkja hafnargerð í Borgarnesi, Skagaströnd og jafnvel fleiri stöðum. Hv. flm. hefir tekið þetta fram allítarlega, og þarf jeg engu við orð hans að bæta. Þó að undarlegt sje, hefir mjer skilist, að hv. fjvn. leggi á móti þessari brtt., og þykir mjer það tæplega hlýða með tilliti til þess, sem áður hefir verið gert, þegar eins hefir staðið á. Getur ekki annað komið til mála en samþ. a. m. k. varatill., og yrði þó framlagið stórum minna en annarsstaðar.

Jeg skal viðurkenna, að Akureyri hefir eigi fengið styrk til þeirrar bryggju, sem þar var gerð. En þar gegnir nokkuð öðru máli. Akureyri er miklu eldri bær en Siglufjörður, hefir safnað sjer talsverðum hafnarsjóði og var búin að koma upp aðalbryggju sinni áður en dýrtíðin skall á. Stendur sá bær því á gömlum merg.

Jeg sje ekki að öðru leyti ástæðu til að ræða einstakar brtt. Fyrir mjer er það aðalatriði, að eigi verði stefnt í vandræði með afgreiðslu fjárl. Vænti jeg til þess góðrar samvinnu hv. deildar. Vænti jeg, að hv. þdm. sje það ljóst, að á því ríður fyrst og fremst, að gætt sje varúðar um fjárhag ríkissjóðs. Hefir sú og oftast orðið raunin á, að þm. hafa látið afgreiðslu fjárl. fara sæmilega úr hendi að lyktum, þótt brugðið hafi út af í einstökum atriðum.