27.04.1929
Neðri deild: 55. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1627 í B-deild Alþingistíðinda. (789)
16. mál, fjárlög 1930
Lárus Helgason:
Landbn. á eina brtt. við fjárl., og er það LVII. brtt. á þskj. 408. Er hún um 5 þús. kr. framlag úr ríkissjóði til þess að búa til bráðapestarbóluefni.
Það er kunnugt, að bráðapestin var um langt skeið hin mesta landplága, og hefir mikið verið gert til þess að reyna að útrýma henni, og sýndist svo um tíma, sem takast mundi að losna að mestu við þennan illræmda vágest með því að nota bóluefni það, sem Magnús heit. dýralæknir útvegaði um mörg ár frá Danmörku. Í seinni tíð hefir veikin aftur ágerst, og er því kent um, að bóluefnið komi ekki að fullum notum, að það sje of veikt. Við höfum fengið þetta bóluefni frá Danmörku og þar er það búið til úr sýklum, sem er svo blandað saman við „serum“. Nú hefir ungur og efnilegur læknir, Niels Dungal, farið fram á að fá styrk til þess að gera tilraunir með aðra bólusetningaraðferð, og ætlar hann að nota eingöngu sýkla til bólusetningar. Hann hefir gert tilraunir með þetta í smáum stíl og hefir komist að raun um, að það má lækna með þessu og fá fram varanlegt ónæmi (þ. e. gera kindurnar ómóttækilegar fyrir veiki þessa). Til þess að prófa þetta nægilega verður hann að gera tilraunir á hundruðum sauðfjár víðsvegar af landinu, og hann telur sig þurfa að sigla til þess að kynna sjer þetta nánar og fá frí frá starfi sínu við háskólann a. m. k. í 2 mánuði. Hann verður að ferðast um sveitirnar í sept. og október, en það getur hann ekki nema því aðeins, að hann fái styrk, enda er það ekki af neinum heimtandi. Mjer finst sjálfsagt að hv. Alþ. taki þessu máli vel, því að hjer er ekki um bitling að ræða handa einstökum manni, heldur hagsmunamál allra landsmanna, og þá sjerstaklega bændastjettarinnar. Ef menn halda, að þessi maður sje að sækjast eftir þessu til þess að skapa sjer atvinnu, þá er honum gert rangt til. Hann er mjög vel gefinn og vel fær og þarf ekki að sækja um neinn styrk til þess að komast áfram; honum bjóðast nóg verkefni. Þó að þessi maður sje fæddur hjer í Reykjavík og hafi dvalið hjer mestan hluta æfi sinnar, að undanskildum þeim tímum, sem hann var í sveit sem barn, og þeim árum, sem hann hefir dvalið erlendis við nám, þá er mjer kunnugt um það, að hann hefir mikla þekkingu á búskap og hefir opin augun fyrir gagnsemi landbúnaðarins og er þegar kominn langt með að vinna þjóðinni ómetanlegt gagn með þessum tilraunum sínum, sem sje þeim, að útbúa gott bóluefni.
Menn kunna nú að segja, að þetta sje óþarfi, þar sem nú á að fara að setja á stofn rannsóknarstofu, sem á að hafa með höndum allar rannsóknir í þarfir atvinnuveganna. En það er síður en svo að það sje rjett. Þessi maður er þegar kominn langt með þessar rannsóknir, og það er sjálfsagt að fela honum það áfram, en það verður ekki hægt nema með fjárveitingu, og það er áreiðanlega bara til þess að tefja fyrir málinu að láta það bíða eftir rannsóknarstofunni. Þetta verður líka áreiðanlega verk rannsóknarstofu háskólans, með tilliti til forstöðu manns hennar, N. P. Dungals. Landbn. leit svo á, að það ætti að hraða þessu sem mest, því að málið þolir ekki bið og bráðapestin gerir altaf meiri og meiri spell nú í seinni tíð. Jeg man eftir því, að þegar jeg var ungur, þá gerði bráðapestin mjög sjaldan vart við sig í Skaftafellssýslu fyr en seint á haustin og fram eftir vetri, þegar hagar og veðrátta spiltist. En nú liggja dauðir skrokkarnir úti um alla haga víðsvegar á landinu strax í september. Dæmi eru til þess, að 40 kindur drápust úr bráðapest úr einum rekstri á leiðinni úr Fljótshlíð til Reykjavíkur. Síðan eru ekki nema 1–2 ár. Það er því ekki að undra, þó að landbn. hafi fundið sig knúða til þess að flytja þessa till., og jeg vona, að hv. dm. sjái, að hjer er um gott og áríðandi mál að ræða. Þetta mál er áreiðanlega eitt þeirra, sem hjálpað getur til að rjetta landbúnað inn við. Það er áreiðanlega nauðsynlegt að koma í veg fyrir þessa geigvænlegu plágu. Jeg vona, að hv. dm. sjái, að hjer er alls ekki til mikils mælst. Það er aðeins verið að taka höndum saman við þann mann, sem þegar er kominn langt með að bjarga okkur frá þessum voða. Jeg þekki hann sjálfur svo vel persónulega, að jeg er þess fullviss, að þarna er ekki um skrum að ræða, því að það er mjög fjarri hans skapi.
Jeg vænti þess, að þetta sje nægilegt til þess að hv. deild lofi till. fram að ganga, hvað sem hún annars gerir við ýmsar hinar aðrar brtt., sem fyrir liggja.