27.04.1929
Neðri deild: 55. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (793)
16. mál, fjárlög 1930
Benedikt Sveinsson:
Jeg geri ráð fyrir, að jeg þurfi eigi að lengja umr. fram yfir venjulegan fundartíma, þótt nokkuð sje orðið áliðið tímans. Mjer þótti mikið koma til ræðu þeirrar, er hv. 3. þm. Reykv. flutti hjer í morgun í sambandi við brtt. þá, er hann ber fram ásamt öðrum mikilsvirtum þm. um hækkun styrksins til stórstúkunnar. Rökstuðningur þess máls var nú með alt öðrum hætti en áður hefir heyrst úr þeim herbúðum. Skal það síst lasta. Þótti mjer hv. ræðumaður mæla margt af miklu meiri hreinskilni og víðsýni en nokkur mundi vænst geta af hálfu templara í þessu máli, ef að vanda ljeti. En hitt verð jeg að segja, að mjer þótti niðurstaða hans koma í bága við röksemdirnar, — sú niðurstaða, að mæla með hækkun fjárstyrksins til stúkunnar.
Hann lýsti skörulega og með öflugum orðum því sívaxandi ofstæki og þeirri feiknafrekju, sem höfð hefir verið í frammi á síðustu tímum í sambandi við svonefnda gæslu bannlaganna, eltingaleik og njósnum úti og inni dag og nótt, úr einu lögsagnarumdæmi í annað, kærum fyrir litlar eða alls engar sakir, rannsóknum, málaferlum og svardögum sitt á hvað. Stundum hefir svo alt hjaðnað niður með sýknudómi hæstarjettar, þrátt fyrir marga undangengna áfellingar eiða.
Það er ekki undarlegt, þótt þesskonar aðfarir mælist ekki vel fyrir. Þær brjóta með öllu bág við rjettarmeðvitund almennings. Refsingarákvæði lagabókstafsins hafa verið þyngd svo að kalla ár frá ári fyrir athugalitla bónþægni þingsins við frekjukröfum steinblindra ofstækismanna „reglunnar“. Má svo nærri geta, hverjar afleiðingamar verða, þegar þessum nýja bókstafs-stóradómi á að framfylgja með tilstyrk sjálfboða-leynilögreglu þesskonar ofstækismanna, sem blásið hafa að kolunum og búið í haginn fyrir þennan ófagnað. Afleiðingin er sívaxandi fjandskapur manna á milli í borg og sveitum, tortrygni jafnvel meðal þeirra, er áður hafa verið kunningjar eða vinir. Sumir bestu menn hafa sagt sig úr „reglunni“ af því að þeir sjá, að þessar aðfarir stefna í öfuga átt við það, sem þeir hafa ætla? tilgang hennar.
Til hins sama — að of langt þyki farið — bendir það og, að margir öflugir og eindregnir stuðningsmenn bindindis hafa hjer í deildinni við síðustu umr. greitt atkv. með lækkun styrksins til stórstúkunnar. Þeir hafi auðsælega haft þá skoðun, að hækkunin næði ekki tilgangi sínum.
Eins og hv. þm. vjek að, hafa sumar skrafskjóður „reglunnar“ ekki ósjaldan sýnt Alþingi hina mestu frekju og óbilgirni og meðal annars var nú fyrir skemstu á opinberum fundi þeirra, reynt að svívirða þingið fyrir samsæti, er hæstv. forseti Sþ. stofnaði til samkv. þingvenju og bauð til þingmönnum og ráðherrum. Hæstv. forseti stýrði sjálfur veislunni, og fór hún að öllu vel og vegsamlega fram, sem vænta mátti. En þessi staðlausa og ástæðulausa árás sýnist gerð af blindum hefndarhug fyrir það, að Nd. dirfðist að færa lítið eitt niður stórstúkustyrkinn um daginn, og þá jafnframt til þess að ógna hv. þm. til þess að hækka styrkinn aftur.
Mig undrar ekki, þótt hv. 3. þm. Reykv. ofbjóði þetta atferli gegn þinginu, en hitt undrar mig, að hann skuli bera fram till. til þess að verðlauna það.
Enginn íslenskur borgari, fjelag eða stofnun hefir reynt að ganga svo freklega á rjett og eignir Alþingis sem stórstúkan hefir gert. Hún hefir þegjandi og hljóðalaust reynt að kasta eign sinni á lóð, sem hún hafði engan rjett til, en Alþingi átti kvöð á að taka þegar þurfa þætti. Var af hálfu stórstúkunnar þegar tekið að reisa steinskúr á lóðinni fast upp að þinghúsgarðinum, og varð þessu ofbeldi og eignaráni afstýrt í bili einungis með tilstyrk ríkisstj. vorrar. Þá tók stórstúkan það til bragðs að lögsækja forseta Alþingis og ætlaði þar með bæði að ná þessari lóð og tryggja sjer eignarrjett lóðar þeirrar, er hún hafði fengið ljeða til bráðabirgða með ákveðnum skildögum, og hús hennar standa á. Með dómi hæstarjettar fengu forsetar loks brotið árásina á bak aftur og fengið staðfesting á rjetti Alþingis, sem því hafði frá upphafi og hvað eftir annað síðan verið áskilinn til þessara umræddu lóða.
Slíka ásælni og ágang leyfir stúkan sjer að sýna æðstu stofnun landsins. jafnframt því, sem hún fær þó styrk frá þinginu á hverju ári og ætlast til að fá, hærri og hærri.
Fjelagið kemur fram sem „ríki í ríkinu“, sem pólitískt leynifjelag, með leynda stefnuskrá. Það reynir að hafa áhrif á úrslit alþingiskosninga, án tillits til þeirra opinberu stefnumála, er flokkum skifta. Þegar deilan var háð um örlagaríkustu mál þjóðarinnar, frelsismál hennar, eins og t. d. 1908, þá kom þetta leynifjelag í opna skjöldu með miklum geisingi út af bannmálinu og lagði spurningar fyrir hvert þingmannsefni um afstöðu til þess máls. Hið fjölmenna og öfluga leynifjelag brautst um fyrir þessu máli, án minstu hliðsjónar á afdrifum sjálfstæðismála þjóðarinnar. Enginn vissi, hvort leynifjelag þetta mundi fremur styrkja danska eða íslenska málstaðinn, hvorki þá nje endranær, en vissulega gátu hin blindu áhrif þess við kosningarnar orðið þeim megin, er verr gegndi, — öll þess áhrif voru miðuð við bannmálið eitt.
Margir góðir Íslendingar sáu, hver háski var að hafa bannmálið í höndum stórstúkunnar yfir höfði þjóðarinnar við hverjar kosningar, meðan sjálfstæðisbaráttan stæði yfir. Bannið var mörgum tilfinningamál og kappsmál og gat því hæglega ruglað ýmsa miður þroskaða kjósendur á þann hátt, að þeir ljetu loforð frambjóðenda um bannfylgi ráða meira en fylgi þeirra við frelsiskröfur þjóðarinnar.
Jeg vil lýsa því afdráttarlaust fyrir mína hönd, að þessi var höfuðástæða þess, að jeg greiddi bannlagafrv. atkv. á Alþingi 1909. Jeg vildi afstýra því, að blindur bannofsinn gæti komið sjálfstæðismálinu í opna skjöldu e. t. v. þegar verst gegndi, sem einatt vofði yfir meðan stórstúkan hefði meðferð þess. — Að vísu kom mjer eigi heldur í hug, að bannið mundi reynast svo herfilega, sem raun hefir á orðið, og þeir voru færri þá, er svo væru framsýnir. Að Öðru leyti hafði jeg alls óbundnar hendur, enda greiddi meiri hluti kjósenda kjördæmis míns atkv. gegn banninu.
En templarar halda áfram sínum undirróðri við kosningar. Þeir hafa sinn „stórgæslumann“, með öllu sem því fylgir, róa með og móti frambjóðendum og hafa að herkostnaði það fje, sem þeir ná út úr þinginu. Þeir leggja þá stundum prentaðar fyrirspurnir fyrir frambjóðendur og heimta „já“ eða „nei“ við frekjulegum kröfum um fylgi við ný „bönn“ eða grimdarfyllri refsiákvæði fyrir hverja smáyfirsjón, sem henda kann einhverja breyska meðbræður þeirra í þjóðfjelaginu. Og því miður verður því ekki neitað, að til sjeu einstaka þjóðlyddur, sem láti kúgast til þess að svara með „jái“ hverri fjarstæðu, sem fram á er farið.
Það er komið alt annað hljóð í strokkinn, þegar erindrekarnir ganga um gættir þingsins dagana sem greiða skal atkv., og þá er reynt með mýkt og fagurgala að fá hækkaðan styrkinn til undirróðrar af nýju.
En hver er nauðsynin á þessum síhækkandi styrk og þessu sífelda fjárkvabbi hins afarfjölmenna leynifjelags, sem hefir anga um flestöll lönd og álfur? Er því nokkur ofætlun að leggja fram fje til þess að standast fundahöld sín og geta rætt málefni sín? Það sýnist svo, sem þessu gamla og fjölmenna fjelagi sje það ekkert ofurefli og aukinn fjárstyrkur Alþingis sje þess vegna óþarfur.
Þingið hefir um langan aldur stutt málefni bindindismanna með margskonar lagasmíð og ráðstöfunum, svo að templarar þyrftu síst að kvarta. En þeir vilja hafa æ meira fje til undirróðrar í landinu. Þeir hafa nú jafnvel róið að því seinustu árin að fá í sínar vörslur til eigin ráðstöfunar ágóðann af vínverslun ríkisins. Það eru nokkur hundruð þús. kr. á ári. Þessu var haldið fram sem mesta þjóðnytjamáli, þar sem við varð komið við síðustu kosningar, jafnvel á hverjum einasta þingmálafundi í sumum kjördæmum, þótt lítinn byr fengi.
Kjósendur rendu grun í, að bindindisstarfsemi reglunnar kynni að verða henni nokkuð vandasöm, þegar það ylti á árangri starfsins, hvort tekjur hennar yxu eða minkuðu jafnvel um hundruð þúsunda á ári.
Það er nú vissulega tími til kominn að reisa nokkrar skorður við ærslagangi þeim, sem átt hefir sjer stað af reglunnar hálfu að undanförnu. Hún á ekki að vera yfirdrottnari þings og þjóðar. Margir þm. hafa verið of leiðitamir öfgum og þröngsýni sumra forsprakkanna, jafnvel þótt þeim ofbjóði undir niðri. Það þarf einhver að hafa einurð til að segja þennan sannleika. Mannúðleg og skynsamleg bindindisstarfsemi vekur hvergi andúð, heldur hlýtur þvert á móti samhug allra. Er jeg um það efni sammála hv. 3. þm. Reykv., en sívaxandi refsidómar, ný bönn, pólitískur undirróður, ofsóknir og illindi út af bindindismálum, alt þetta er gagnstætt eðli og anda íslenskrar þjóðar. Jeg hlýt því að greiða atkv. gegn till. hv. 3. þm. Reykv. og skil ekki, hvernig hann getur búist við, að hún gangi nú fram, þvert ofan í atkv. 19 deildarmanna að viðhöfðu nafnakalli við síðustu umr.
Þá vil jeg „taka upp ljettara hjal“ og minnast fáum orðum á till. þá, að veita konu einni þýskri dálítinn styrk til skóla, er hún hefir stofnað til þess að kenna íslenskum stúlkum ýmiskonar þarflega hluti. Jeg skal játa, að till. þessi er nokkuð nýstárleg. Jeg þekki ekki konu þá, er hlut á að máli, hefi hana aldrei sjeð, en hitt veit jeg, að hún hefir dvalist árum saman hjer á landi og kynst vel menning og högum Íslendinga. Hefir hún áunnið sjer mikla hylli með kynning sinni, fyrir kunnáttu og dugnað, og tekið ástfóstri við Ísland. Nú hefir hún tekið upp þá nýjung, að stofna til skóla handa íslenskum stúlkum heima í Þýskalandi, og er ætlast til þess, að þessi litla fjárhæð geti orðið stuðningur til byrjunar þessari tilraun. Þeir, sem kunnugastir eru kenslukonunni, bera hið besta traust til hennar. Meðal þeirra er aðalflm. till., og hefi jeg gerst meðflm. til þess að styðja af minni hálfu góðan málstað.
Þess er full von, að íslenskar stúlkur langi til að leita sjer mentunar erlendis, og er þá nauðsyn á, að þær hafi til góðra staða að hverfa. En því miður mun oft hafa orðið sorglegur misbrestur á því. Um það mætti víst fá nokkuð „svartar“ skýrslur frá Khöfn, ef eftir væri leitað. — En út í þá sálma skal ekki farið frekara að sinni.