27.04.1929
Neðri deild: 55. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1663 í B-deild Alþingistíðinda. (798)
16. mál, fjárlög 1930
Magnús Jónsson:
Það eru aðeins fá orð í framhaldi af því, sem jeg áður sagði viðvíkjandi brtt. á þskj. 442, um að greiða Ólafi Rósenkrans 1200 kr. þóknun, ef hann lætur af starfi sínu sem háskólaritari. Þessi frækni maður var svo ólánssamur að fá á gamalsaldri illkynjaðan kíghósta, og hefir ekki náð sjer eftir það. Vegna þessa er nú ráðið, að hann láti af starfi, en á þá erfitt með að komast af með þær 1200 kr., sem honum eru ætlaðar í 18. gr. fjárl. Vona jeg því, að þessi till. mín fái byr og að hann fái til viðbótar þessar 1200 kr. það sem eftir er æfinnar. Jeg skal vekja athygli hv. þdm. á því, að af þessum lið er ekki greidd dýrtíðaruppbót, svo hjer er aðeins um það að ræða, að hann fái 2400 kr. Þskj. 442 er nú í endurprentun og kemur bráðum úr prentsmiðjunni eins og jeg hefi nú lýst því. Vona jeg, að þetta fái góðar undirtektir.