01.05.1929
Efri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1697 í B-deild Alþingistíðinda. (810)
16. mál, fjárlög 1930
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Hv. 4. landsk. hefir á þessum eldhúsdegi beint til mín þremur fyrirspurnum. Hann hefði gjarnan getað haft eina fyrirspurnina dálítið stærri, nefnilega um hjúkrunarkonurnar, því að það er ekki einungis um Vífilsstaði að ræða, heldur aðra spítala, t. d. Klepp, gamla og nýja. Og jeg vonast til, að áhrifin af þessari breyt., sem hv. þm. á við, muni á sínum tíma ná til landsspítalans og fleiri slíkra stofnana.
Áður en jeg vík að þessu sjerstaka máli, vil jeg geta þess, að það er almenn óánægja yfir því, hvað spítalar landsins og lækningar eru dýrar. Þetta leiddi til þess, að fyrv. stj. gerði nokkrar tilraunir í sambandi við berklalögin til þess að halda niðri kostnaði af læknum við berklalækningar, og er það mál ennþá á döfinni. Þar sem nú þessi berklakostnaður vex um 100 þús. kr. á ári síðari árin, þá er öllum sýnilegt, að það þarf víða við að koma, ef úr þessu á að bæta. Nú er það mála sannast, að í þessum stóra lið til berklavarna er töluvert af gjöldum, sem má lækka. Kostnaðurinn við starfsfólkið á hælinu var meðal annars tekinn til athugunar, og við rannsókn landlæknis síðastl. sumar kom það í ljós, að rekstur okkar ríkisspítala væri tiltölulega dýrari en í öðrum löndum og kaup hjúkrunarkvenna hærra. Við þá samninga hefir aðallega verið stuðst við danskan taxta, en það kom í ljós, að ýmislegt var undan dregið við samanburðinn á dönskum kringumstæðum, en ekki reiknaður með ýmiskonar frádráttur, sem varð frá laununum. Þannig var á þessum lið um verulega eyðslu að ræða fram yfir það, sem virðist í nágrannalöndunum, sjerstaklega í Noregi. Þegar því Nýi-Kleppur tók til starfa, varð samkomulag milli nýja læknisins þar og mín að byrja töluvert lægra með kaup við spítalann en verið hefir áður. Það var tilraun til þess að vinna á móti þeirri nokkuð óhóflegu eyðslu, sem verið hefir í þessu efni áður. En þar með er ekki slegið föstu, að kauptaxtanum á Nýja-Kleppi verði haldið til lengdar, heldur er hjer dregin ný lína til að reyna að byggja eftir rjettlátara fyrirkomulagi og heilbrigðara. Jeg hefi meðal annars vakið máls á því við hjúkrunarkonur, hvort þær væru ekki fúsar til að koma undir ellitryggingarlögin, eins og starfsmenn landsins, og standa yfir samningar um það milli stj. og hjúkrunarkvenna, og raunar líka um kaupspursmálið.
En viðvíkjandi aðalefni fyrirspurnar hv. þm. er því að svara, að við vorum komnir hærra í þessu efni en menn í sömu kringumstæðum í nágrannalöndum, og því sjálfsagt að færa þetta til rjettari vegar.
Þá spurði hv. þm. næst að því, hvers vegna hefði verið takmörkuð innganga nemenda í mentaskólann í fyrra vor, sjerstaklega þar sem fyrir hefði legið að koma með frv. um það efni. Nú er frv. fyrir deildinni, en ekki er að vita, hvort tími vinst til að ljúka við það í vetur. Er því ekki hægt að spá neinu um þess áhrif. En hitt hefði hv. þm. mátt vera kunnugt af endurteknum skýringum frá minni hálfu, að af heilsufræðilegum ástæðum var ómögulegt að komast hjá að takmarka mentaskólann. Það ástand, sem skapaðist í mentaskólanum hjá fyrv. stj., var algerlega óviðunandi Jeg hirði ekki að fara út í það að svo stöddu. Það nægir að vísa til þess, að skólinn var farinn að velta út úr sínu eigin húsi og það var farið að leigja mjög ljelegar kenslustofur úti í bæ, þar sem ómögulegt var að koma við alveg sjálfsögðum heilbrigðisráðstöfunum. Nú hefir verið viðurkent af rektor, að það sje hið versta neyðarúrræði að hafa útibúin niðri í bæ. Enginn, sem fengist hefir við að kenna ungmennum, efast um, að þetta er rjett. Þetta er því langt frá að vera áfellisefni. Hitt er miklu fremur áfellisefni, að nokkurn tíma skyldu vera teknir svona margir inn í mentaskólann, að líf og heilsa nemenda var sett í veð. En jeg þykist vita, að misskilningur þessa hv. þm. stafi af því, að hann hefir ekki haft ástæður til að kynna sjer þetta efni, en orðið var við óánægju hjá mönnum í bænum. En sannarlega er það hart, að þeir foreldrar, sem eiga börn í þessum skóla, skuli ekki hafa borið gæfu til að þakka þessa viðleitni til þess að sjá börnum þeirra borgið og minka berklahættuna, sem þau hafa stöðugt verið í undanfarið og hefir farið vaxandi. Síðastl. vetur munu um tuttugu hafa fengið snert af berklum. Heilsufarið í vetur er betra, og mun vera að einhverju leyti því að þakka, að betur fer um nemendur í kenslustofunum, sem ekki eru lengur yfirfyltar.
Síðustu spurningunni get jeg ekki svarað, af því að jeg veit ekki meira um málið en hv. fyrirspyrjandi. Jeg hefi ekki sjeð þetta merka íhaldsblað. Engin fyrirspum hefir komið til mín frá Vestmannaeyjum. En ef málið er á einhvern hátt merkilegt, mun það vafalaust koma síðar til athugunar.