08.05.1929
Efri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1778 í B-deild Alþingistíðinda. (828)

16. mál, fjárlög 1930

Ingibjörg H. Bjarnason:

Jeg mun eiga hjer tvær brtt., ásamt hv. 4. landsk., á þskj. 562. Fyrri brtt. er hin IV. í röðinni á áðurnefndu þskj., við 14. gr. B. II. o., nýr liður. Það er styrkbeiðni íslenskra háskólakvenna, þar sem þær fara fram á það, að Alþingi veiti þeim 2000 kr. styrk, til þess að senda fulltrúa á þing alþjóðasambands háskólakvenna, sem haldið verður í Genf á komanda sumri, dagana frá 4.–11. ágúst. Þetta mál hefir verið flutt í hv. Nd., og jeg hygg, að það hafi mætt þar nokkrum skilningi og vinsemd, en fyrir óhapp, sennilega mest, náði það þó ekki samþ. þar.

Eins og erindi þeirra ber með sjer, hafa íslenskar háskólakonur síðastliðið ár stofnað með sjer fjelagsskap, og hafa svo gengið í bað samband, sem slíkur fjelagsskapur háskólakvenna í öðrum löndum hefir með sjer, og ætla nú að sækja þing þessa fjelagsskapar, ef þær fá þennan styrk. Það sýnist kannske í fljótu bragði svo, sem hjer sje ekki að ræða um neitt stórmál, en það er nú samt svo. Oft er það þyrnum stráð braut, bæði fyrir karla og konur, að leggja út á mentabrautina; ætla jeg því, að það geti orðið íslenskum háskólakonum styrkur á ýmsa lund og menningarauki að vera komnar í þetta alþjóðasamband háskólakvenna í öðrum löndum, sem á ítök í 31 ríki. Tilgangur þessa fjelagsskapar er:

1. Að veita styrk, bæði til náms og vísindarannsókna, sem kvenstúdentar af öllum þjóðum hafa aðgang að.

2. Að gangast fyrir því að koma upp heimilum og gististöðum fyrir háskólakonur og aðrar í helstu borgum Evrópu og Ameríku.

3. Að greiða götu þeirra háskólakvenna, sem eru á ferð í öðrum löndum, og gefa þeim tækifæri á því að kynnast erlendum háskólum, sem oft getur haft stórmikla þýðingu, og

4. Að veita starfsmönnum, t. d. kennurum, læknum, vísindamönnum, tækifæri til þess að dvelja erlendis um stundarsakir, með því að gera þeim kleift að hafa skifti á störfum við erlendar starfssystur.

Má nærri geta, hverja þýðingu það getur haft fyrir nám þeirra háskólakvenna, sem geta notið þessarar aukningar á kunnáttu sinni og bætt þannig við nám sitt.

Nú liggur það í augum uppi, að fyrir fámenna og afskekta þjóð hefir þetta ekki hvað minsta þýðingu; jeg veit að allir hv. þdm. þekkja það af eigin reynslu, að það verður ekki metið til peninga að kynnast mörgu og sjá sem flest í hinum ýmsu menningarlöndum.

Þetta fjelag, sem íslenskir kvenstúdentar hafa stofnað, er ungt og má því ekki búast við, að mikið liggi eftir það; en það má þó geta þess, að þær hafa þegar komist í allmikil brjefaviðskifti við þær útlendu konur, sem standa að alþjóðasambandi háskólakvenna, og hafa þær fengið fyrirspurnir um ýmislegt, sem snertir bæði land og lýð, um háskóla vorn, um íslenskar bækur, sem vert væri að þýða á erlend mál. Einnig hefir verið spurst fyrir um góða þýðendur að bókum, hvort heldur þýða ætti af íslensku eða á. Nú er þessum háskólakonum vorum boðið að senda einhvern á þetta fulltrúaþing í sumar, og jeg er í engum vafa um það, að vert er að styrkja þær til að geta sótt þennan fund. Auðvitað verður ekki um það að ræða, að senda nema einn fulltrúa, því að leiðin er löng og ferðalagið dýrt. Fjelag ísl. háskólakvenna fer samt ekki fram á nema 2000 kr. styrk; það er að vísu upphæð, sem þær munar um, fáar og fjelausar, en hið háa Alþingi, sem hefir með höndum svo margar styrkveitingar, skilur, að þetta, miðað við aðrar styrkveitingar, er ekki stór upphæð. Fái þær ekki styrkinn, telja þær sjer ókleift að sækja þennan fund, og vil jeg biðja hv. þdm. að athuga, hvers þær fara á mis, ef þær geta ekki fengið þessa ósk sína uppfylta.

Jeg skal benda á það, að í fjárlögunum hefir um allmörg ár verið veitt fje til markaðsleita. Hjer er ekki verið að leita eftir markaði í venjulegum skilningi, en þó er það nokkurskonar markaður, sem þær fara á. Þær fara utan til að kynna land og þjóð og til að kynnast því besta, sem aðrar þjóðir hafa að bjóða. Nú geta þær eignast og munu eignast vini, og það er öllum kunnugt, hverjar afleiðingar vinátta og viðkynning getur haft, ekki aðeins persónulega fyrir þá, sem vingast og kynnast, heldur og fyrir áhrif þau, sem það aftur hefir á þjóðirnar. Sje konum nokkurrar þjóðar nauðsyn á að fara utan og komast í kynni við konur menningarþjóða, þá er það konum okkar, þessarar fámennu og afskektu menningarþjóðar. Jeg er heldur ekki í nokkrum vafa um það, að ef háskólakonur geta haldið áfram að sækja þessa fundi, þá munu þær ekki aðeins sækja þangað ýms andleg verðmæti, heldur líka miðla einhverju af þeirri menningu, sem þær eiga, og hygg jeg, að íslenskar háskólakonur, sem slík mót sækja, þoli vel samanburð við aðrar fjelagssystur sínar.

Jeg hefi átt kost á því, bæði fyr og síðar, að kynnast mörgum háskólakonum, og þótt jeg sje ekki stúdent, kann jeg vel að meta það gagn, sem orðið getur af alþjóðlegri viðkynningu háskólakvenna.

Jeg sagði áðan, að mikið fje væri árlega veitt til markaðsleita, og vík jeg nú að því aftur. Hjer er um það að ræða að fara í markaðsleit og finna andlegt verðmæti og gera það arðberandi hjer heima fyrir. En förin er líka farin til þess að sýna, hver andleg verðmæti við eigum, og jeg er sannfærð um, að þær konur, sem nú eru í þessum fjelagsskap, og þær, sem hann skipa í framtíðinni, munu halda merkinu hátt og með heiðri og verða að öllu leyti jafnokar þeirra kvenna, sem þær heimsækja á hverjum tíma.

Jeg vænti þess, að hv. þdm. sýni góðan hug til þessara kvenna, sem hjer er um að ræða. Það er framtíðin, sú braut, sem þær eiga ófarna, sem við styðjum og styrkjum með því að hjálpa þeim til að komast á þennan fund, og við væntum, að við fáum að endurgjaldi andleg verðmæti, sem jeg get ekki metið til peninga. Jeg vona því, að þetta erindi fái þær undirtektir hjer, að háskólakonum vorum verði unt að senda fulltrúa á áðurnefnt þing í Genf.

Þá á jeg hjer aðra brtt., einnig ásamt hv. 4. landsk. Það er XI. brtt. á sama þskj., við 16. gr. 35, nýr liður: Til Bríetar Bjarnhjeðinsdóttur, 2000 kr. Hún sækir nú til Alþingis um styrk til utanfarar á þessu sumri, til þess að sækja fund alþjóðakvenrjettindasambandsins í Berlín. Þessi kona er svo þjóðkunn, að jeg þarf ekki að tala langt mál um hana; hv. þdm. vita best, hverja verðleika þessi kona hefir til þess að henni verði veittur slíkur styrkur sem þessi. Frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir er, eins og öllum er kunnugt, fyrsta konan eða með þeim fyrstu, sem hófu baráttuna fyrir jafnrjetti kvenna og um leið beindu hugum kvenna inn á þá braut, að ástandið væri ekki fyr gott en þau rjettindi væru fengin, sem þær svo síðar öðluðust með stjórnarskrárbreyt. árið 1915. Ef nokkur kona hefir unnið því máli gagn, þá er það frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir. Hún stofnaði Kvennablaðið, árið 1895, og hjelt því út í 25 ár. Fyrstu árin flutti blaðið ýmsan fróðleik, sögur, kvæði og ýmislegt, sem laut að uppeldi barna og bættum heimilisháttum, en svo eftir nokkur ár breytti hún stefnu blaðsins og fór að flytja mestmegnis ritgerðir um kvenrjettindi. En þetta jók hvorki vinsældir hennar nje blaðsins, og blaðið misti fjölda kaupenda, en hún hjelt áfram að skrifa og skrifa og blaðið hjelt áfram að koma út, þangað til rjettindin voru fengin. Sömuleiðis hefir frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir oft farið utan til þess að sækja fundi þeirra kvenna, sem barist hafa fyrir framgangi kvenrjettindamálsins, og til þess að sækja fundi alþjóðasambands kvenna, sem hefir orðið til þess, að hún hefir kynst ýmsum þörfum málefnum, sem hún svo hefir reynt að kveðja hljóðs fyrir hjer heima; einnig hefir margur útlendingur kynst málefnum okkar hjer heima fyrir hennar milligöngu. Nú er hún komin á þann aldur — hún er nú 73 ára —, að hún er hætt að starfa að þessum málum. Hún stofnaði Hið íslenska kvenrjettindafjelag árið 1908 og veitti því forstöðu, þar til fyrir nokkrum árum, að dóttir hennar, ungfrú Laufey Valdimarsdóttir, tók við forstöðu þess af henni. Þó er hún albúin þess að leggja einu sinni enn út í heim til að sækja fund alþjóðakvenrjettindasambandsins í Berlín, sem á að halda þar í byrjun júnímánaðar í sumar. Þessi fundur er haldinn í Berlín á þessu ári vegna þess, að liðin eru 25 ár frá því að sambandið var stofnað á fundi á sama stað. Þótt hún fari ekki sem fulltrúi fyrir Hið íslenska kvenrjettindafjelag, þá fer hún þó sem aldursfulltrúi þess, til að taka þátt í fögnuði kvenrjettindasambandsins yfir því, sem áunnist hefir á þessum 25 árum. Jeg fyrir mitt leyti teldi það þess vegna rjett, og vildi mælast til þess við hv. þdm., að þeir litu einnig svo á þetta mál, að henni verði veittur þessi styrkur í viðurkenningarskyni fyrir starf hennar hjer heima og fyrir að kynna mál okkar á þingum í alþjóðasambandi kvenna, sem hún hefir oft setið á liðnum árum. Hún tekur sjálf fram í erindi sínu til þingsins, sem jeg vil lesa upp, með leyfi hæstv. forseta:

„Það getur vel verið, að hinu háa Alþingi finnist þetta lítið nauðsynjamál og ekki þess vert að kasta fje til þess. Jeg vil ekkert um það segja. En án ferðastyrks hefi jeg engin tök á að fara. Mjer finst, að jeg hafi ekki gert mikið að því að kvabba út ferðastyrki handa mjer, þótt jeg hafi farið til útlanda í ýmsum erindum, sem þó hafa komið aftur að einhverju gagni hjer heima, gegnum Kvennablaðið þau 25 ár, sem jeg gaf það út, og fyrirlestra, með auknum fróðleik á ýmsu, sem jeg hefði ekki getað fengið, ef jeg hefði aldrei farið út fyrir landsteinana“.

Þetta segir hún sjálf um styrkbeiðni sína. Hún tekur það ennfremur fram, að sá minsti ferðastyrkur, sem hún geti komist af með, sje 2000 ísl. kr. og sömuleiðis, að fái hún ekki styrkinn, þá geti hún ekki farið. Ennfremur mælist hún til þess, að Alþingi mætti þóknast að veita þessa upphæð í fjáraukalögum fyrir 1929.

Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um styrkbeiðni þessa. Jeg vona, að hv. þdm. taki hana til velviljaðrar meðferðar og greiði henni atkv. sín.