01.05.1929
Efri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

14. mál, Búnaðarbanki Íslands

Halldór Steinsson:

Við síðustu umr. þessa máls tók jeg upp aftur nokkrar brtt., er hv. 4. landsk. bar fram en tók þá aftur, og voru þær samþ. og eru nú 6. kafli þessa frv. Nú flyt jeg tvær brtt. við þennan kafla, vegna þess að felt“ var aftan af till. hv. 4. landsk. og nauðsynlegt er að setja inn ný ákvæði, til þess að þessi kafli verði ekki of halakliptur. Fyrri brtt. er við 53. gr.: „Ríkissjóður leggur fram 50 þúsund kr. á ári“, en þar er óákveðið, hve lengi ríkissjóður leggur fram fjeð. Í samræmi við þetta frv. og önnur svipuð lög verður ekki hjá því komist að setja vist tímatakmark. Jeg hefi því farið fram á, að ríkissjóður legði fram 50 þús. kr. í 6 ár, og er það í fullu samræmi við bústofnslánadeildina, þar sem tillag ríkissjóðs er 50 þús. kr. á ári í 6 ár. Vona jeg, að þessi brtt. mæti ekki mótspyrnu, þar sem hún er í samræmi við aðra kafla frv.

Þá er síðari brtt., að á eftir 59. gr. komi ný grein, svo hljóðandi: „Í reglugerð bankans skal setja nánari ákvæði um starfsemi þessarar deildar“. Með þessari brtt. ætlast jeg til þess, að hægt verði að framkvæma lánadeildina án verulegra örðugleika. Ennfremur ætlast jeg til, að í reglugerðina geti komið þau ákvæði, sem hv. 4. landsk. vill koma fram með brtt. sínum, t. d. d-lið 3. brtt., þar sem segir, að ráðh. setji reglur til þess að tryggja það, að lánsfjenu sje varið samkv. tilgangi lánadeildar og til þess að það komi að tilætluðum notum fyrir lántakendur. Mjer þótti leitt, að hv. 6. landsk. skyldi ekki minnast á mínar brtt., því að mjer skildist hann heldur vera meðmæltur d-lið till. hv. 4. landsk. Ef till. mín yrði samþ., kæmi hún að sömu notum og þessi liður, og er auk þess víðtækari.

Jeg sje ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um brtt. mínar að svo stöddu. Þó vil jeg geta þess, að í reglugerðinni mætti setja ákvæði um það, hvernig lán skyldu ávaxtast eða endurborgast, þótt það sje ekki altaf ákveðið í lögunum. Ef slíkt er ekki ákveðið í lögunum, má gera ráð fyrir, að þessi deild njóti sömu ívilnana og aðrar deildir bankans að því er snertir lánskjör.