08.05.1929
Efri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1824 í B-deild Alþingistíðinda. (835)
16. mál, fjárlög 1930
Dómsmrh. (Jónas Jónason):
Hv. 3. landsk. má vera mjer þakklátur fyrir það, að jeg gaf honum tækifæri til að skýra hina óljósu hugsun sína í skólamálum. Hann talar um launkrakka, sem klakinn var út fyrir hið löglega hjónaband, og hann vill láta skíra þennan getnað og láta hann njóta styrks af opinberu fje. Hann kom ekki fram með nein rök fyrir máli sínu, en það bar ekki alllítið á þeim misskilningi hjá honum, eins og ýmsum borgurum þessa bæjar, að hann leit svo á, að mentaskólinn hefði átt að sjá götudrengjunum hjer fyrir andlegum forða og væri skyldur til að taka alla þá unglinga úr Reykjavík, sem þangað vildu leita. Það var venja, að 50 ungmenni komu inn í 1. bekk og voru í skólanum 3 næstu vetur og fóru svo í lærdómsdeildina, og þannig var mestur hluti þeirra, er stúdentsprófi luku, hjeðan úr Reykjavík. Jeg leyfi mjer nú að spyrja, hvar hin siðferðislegu lög sjeu um það, að flest embættismannaefni þessa lands sjeu úr Reykjavík, og hvaða rjett eiga Reykvíkingar á styrk framar öðrum hjeruðum? Þegar Íhaldið hafði reynt að eyðileggja það, að gagnfræðaskólahúsið á Akureyri mætti nota til framhaldskenslu, minnist jeg þess, að einn hv. íhaldsþm. varð svo reiður yfir framgangi málsins, að hann ætlaði að beita líkamlegu ofbeldi við hv. þm. Barð., af því að hann hafði greitt atkv. með því. En þegar takmarkaður er aðgangur að mentaskólanum, þá eru öll blöðin full af heift yfir því, sökum þess að Reykvíkingar höfðu vanist því að sitja einir við þessa mentastofnun, en vildu ekki unna neinum öðrum þess. Ef þetta er ekki frekja og ofsi, þá veit jeg ekki, hvað það er. Ef það er rjett, að 3 neðstu bekkir mentaskólans hafi verið nokkurskonar alþýðuskóli, en ekki undirbúningur undir lærdómsdeildina, þá sjest á því, að unglingaskóla hefir vantað hjer í Rvík, sökum þess, að ekki hafa allir þessir nemendur farið í skólann af því að stúdenta vantaði, heldur af hinu, að það skorti skóla. Nú var stofnaður nýr skóli fyrir unglinga síðastl. ár, og til hans voru fengnir færustu kennarar, og því var þessum unglingum engin vorkunn að leita þangað, en til þess voru þeir of fínir. Þeir máttu ekki koma saman við fátæku börnin, og þess vegna tóku fínni borgarar Reykjavíkur það ráð að stofna handa þeim nýjan skóla, þar sem þeir komu að tornæmum börnum, ef þeir voru svo óheppnir að eiga þau, og þar á að menta þau og uppfræða, en foreldrarnir eru ekki of góðir til að borga gildið, sem þeir bjóða sjálfir í, úr því að þeir vildu ekki láta börn sín blandast saman við hin, sem fátækari voru. Hv. þm. reyndi að sanna það, að af því að jeg vildi ekki vera með styrk til þessa skóla, en væri fylgjandi öðrum slíkum styrkjum, að þá væri ósamræmi í hegðun minni. Jeg þykist vita, að þessi hv. þm. sje hlyntur háskólanum, en nú skulum við segja, að einhverjir lærðir menn tækju sig til og stofnuðu nýjan háskóla til þess að útskrifa guðfræðinga, lækna og lögfræðinga, og þessir menn kæmu svo til þingsins og bæðu um styrk, þá væri jeg mótfallinn því. Ef einhverjir kunna að finnast, sem ekki geta gert sjer þá skóla að góðu, sem ríkið býður þeim upp á, þá verða þeir að halda sínar eigin leiðir. Í Englandi koma menn upp skólum handa börnum sínum, og þar eru ekki einungis tugir, heldur hundruð slíkra skóla. Nú er mjer kunnugt um einn mann, sem leggur 10000 kr. í kosningasjóð Íhaldsins, og slíkir menn ættu að geta veitt skólanum styrk. (JÞ: Slíkur maður er enginn til). Hjer í Reykjavík er annar skóli, sem einskis ríkisstyrks nýtur, heldur gengur sínar eigin götur til þess að mega kenna hvað sem forstöðumenn hans vilja, og það er Landakotsskólinn. Þannig ættu þessir ágætu menn að hafa það. Hv. 3. landsk. áleit orð mín um þennan nánasarlega hugsunarhátt, sem kom skýrast fram hjá samherja hans í járnbrautarmálinu, hv. 1. þm. G.-K., of hörð, en það voru mín þungu rök, sem hittu hinn seka alveg eins og sleggjuhögg.
Þá talaði hv. þm. um ilt orðbragð, en hann ætti ekki að tala um það, hann, sem hefir 12 eða 13 blöð til umráða og orðbragðið er þar þannig, að það er til skammar, ekki aðeins fyrir samherjana, heldur fyrir alla þjóðina, sem líður fyrir spillingu og mentunarleysi þeirra, sem blöðin eiga. Enda er við því að búast, þar sem sumir af ritstjórum þessara blaða eru orðlagðir ræflar. Það er að búast við því, að það sje þungt fyrir þann mann, sem hefir með sjer örgustu sorpritara, að þurfa að standa undir rökum í málum, sem eru óverjandi.
Þá talaði hv. þm. um beiskju foreldranna, en hún verður ekki þung á metunum, þegar maður talar við landlækni og fær að heyra, að sökum ofþrengsla hefir verið óeðlilega mikið um berkla og dauðsföll undanfarin ár í skólanum, þannig að beiskja foreldranna stafar þá af því, að mega ekki senda börn sín í opinn dauðann.
Þá sagði hv. þm., að jeg sýndi beina hlutdrægni, þegar jeg legði til mála þeirra kjördæma, sem kosið hafa andstæðinga mína á þing. Þau kjördæmi, sem eru nú ákveðnust gegn mjer, eru Reykjavík og Gullbringu- og Kjósarsýsla, og þá get jeg bent á það, að jeg hefi borið fram frv. um unglingaskóla í Reykjavík og hlynt betur að mentaskólanum en fyrirrennarar mínir hafa gert, og auk þess hefi jeg reynt að rjetta við Flensborgarskólann, sem nú er kominn í mestu niðurníðslu og ekkert hefir verið gert fyrir síðan Þórarinn heitinn Böðvarsson og Jón heitinn Þórarinsson fóru frá honum.
Hv. þm. lauk ræðu sinni með þeim orðum, að það væri ekki við því að búast, að jeg gæti stjórnað öðrum, þegar jeg gæti ekki stjórnað sjálfum mjer, en það er nú eitt af því, sem íhaldið kvartar mest undan, að jeg hefi hemil á þeim, sem stela fje af landinu, og drukknum mönnum, sem eru þjóðinni til minkunar. Glæpa- og illræðismönnum landsins og þeirra samherjum og vinum finst hönd núv. stj. vera þyngri á þeim en áður.