13.05.1929
Efri deild: 67. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1857 í B-deild Alþingistíðinda. (845)
16. mál, fjárlög 1930
Ingibjörg H. Bjarnason:
Jeg á hjer tvær brtt. á þskj. 617, ásamt hv. 4 landsk. Þær lágu báðar fyrir við 2 umr. fjárl. og eru nú teknar upp aftur nokkru lægri en þær voru þá. Jeg vil sem minst endurtaka af því, sem jeg mælti fyrir þeim við 2. umr., en verð þó að skýra nánar nokkur atriði.
Fyrri till. er nr. VI. á þskj. 617, sem fer fram á 1500 kr. styrk til fjelags íslenskra háskólakvenna, til þess að senda fulltrúa á þing alþjóðasambands háskólakvenna í Genf. Fyrir þinginu hefir legið umsókn frá fjel. ísl. háskólakvenna um styrk til þess að senda fulltrúa á þennan fund, sem haldinn verður í ágúst næstk. Þetta alþjóðasamband háskólakvenna var stofnað 1919. Þegar litið er á, hvað mikið það hefir starfað og hversu margar deildir hafa gengið í sambandið úr ýmsum löndum, þá má ætla, að hjer sje um merkileg samtök að ræða. Fjelag ísl. háskólakvenna var stofnað í apríl 1928 og tekið upp í alþjóðasamband háskólakvenstúdenta í september sama ár. Síðan hefir það haft brjefaskifti við alþjóðasambandið.
Þó að hjer væri ekki um annað að ræða en metnaðarmál fyrir okkar fámennu og einangruðu þjóð, þá væri það samt mikils virði. Það eitt eru nægileg meðmæli til þess að fjel. ísl. háskólakvenna fái þann styrk, sem það fer fram á í erindi sínu til Alþingis. Það getur haft ómetanlegt gagn af að vera í þessum alþjóðafjelagsskap, ekki aðeins menningarlegt gagn, heldur líka fjárhagslegt. Sambandið greiðir fyrir öllum háskólakonum frá þeim löndum, sem í því eru, og veitir þeim leiðsögn erlendis, ef óskað er; og hinir föstu fjárstyrkir, sem sambandið ræður yfir, eru ekki færri en 30, og sumir þeirra allháir. Íslenskir kvenstúdentar hafa jafngóða aðstöðu til þess að njóta þeirra eins og kvenstúdentar annara þjóða, sem í sambandinu eru. Hvert ríki telur sjer skylt að leggja nokkurt fje fram til þessa fjelagsskapar. Auk þess tel jeg, að íslenskar mentakonur eigi þangað mikið erindi. Við eigum svo margar vel mannaðar og mentaðar konur, sem þola samanburð við konur hinna fjölmennari þjóða á sama sviði. Með því að sækja þennan fund fá þær tækifæri til þess að kynnast erlendum starfssystrum sínum, sem ekki eru eins einangraðar. Það er því sjerstök ástæða til að styrkja þessar stórhuga mentakonur okkar til þess að leggja land undir fót í fyrsta sinn á þennan fund alþjóðasambandsins. Það verður áreiðanlega ekki í síðasta sinn, sem þær leggja í slíkan leiðangur, því að þeim vex þróttur og geta.
Jeg skal stuttlega rifja upp það sem jeg sagði við 2. umr. Alþjóða sambandið greiðir fyrir fjelögum sínum til ýmsra landa, bæði í atvinnu leit og til að koma sjer fyrir við nám og hjálpar þeim til að komast að launuðum störfum. Alþjóðasambandið heldur uppi ódýrum gistihúsum víða erlendis, og veitir þannig óbeinan stuðning þeim, sem eru á vegum þess Jeg álít, að íslenskir kvenstúdentar eigi að gera tvent í senn: Þær eiga að koma fram fyrir hönd sinnar þjóðar eins mannaðar og mentakonur annara þjóða og gefa upplýsingar um menningu íslensku þjóðarinnar að fornu og nýju. Það skortir mikið á, að aðrar þjóðir hafi rjettan skilning á íslenskum háttum, og skiftir miklu, að þær fái rjetta hugmynd um menningu okkar að fornu og nýju. Í öðru lagi skapar þetta íslenskum kvenstúdentum möguleika til að leita sjer frekari mentunar og atvinnu, sem þær ættu eigi kost á annars. Þetta hvorttveggja ætti að vera nægilegt til þess að þingið samþ. þessa lítilfjörlegu fjárveitingu. Svo er það heldur ekki ómerkilegt atriði fyrir þær að eignast kunningja og vini; það vita allir, hvers virði það er.
Að síðustu má geta þess, að alþjóðasambandið greiðir eigi aðeins fyrir kvenstúdentum, heldur og fyrir öðrum konum, sem einhver deildin mælir með. Jeg álít, að það sje afarþýðingarmikið fyrir íslenskar mentakonur og aðrar konur, sem geta fyrir milligöngu íslenskra kvenstúdenta á þennan hátt notið alþjóðasambands háskólakvenna. Það ómetanlega gagn, sem af því leiðir, verður ekki metið til peninga. Þess vegna er það eindregin ósk okkar flm. þessarar till., að íslenskar konur fái þennan styrk til þess að sækja alþjóðaþingið í Genf í sumar í ágústmánuði. Þær geta að vísu ekki sent nema einn fulltrúa til að byrja með, en það má efalaust vænta mikils góðs af förinni, ekki síst ef framhald verður á þessu. Við höfum lækkað styrkbeiðnina niður í 1500 kr., og er það 1/4 lægra en fjelagið bað um í erindi sínu. Okkur þótti samt rjett að bera þetta fram; það er munur fyrir fjelagið að þurfa ekki að útvega sjer nema 500 kr. lán til viðbótar, heldur en upphæðina alla. En það er tekið fram í yfirlýsingu frá fjelagskonum, að þær geti alls ekki sótt fund þennan nema þær fái hinn umbeðna styrk. Læt jeg svo útrætt um þessa till.
Þá vil jeg víkja að annari brtt., frá mjer og hv. 4. landsk., XX. á sama þskj., við 15. gr. Þessi till. var einnig flutt við 2. umr., og nú berum við hana fram aftur dálítið lægri, af því að við trúum ekki öðru en að hún hljóti nú að fá betri byr hjer í hv. þd. Jeg á hjer við styrkbeiðni frú Bríetar Bjarnhjeðinsdóttur. Við 2. umr. fórum við fram á 2000 kr., eins og óskað var eftir í erindinu, en nú höfum við lækkað það niður í 1500 kr. Ætlumst við til, að henni verði veittur þessi styrkur til þess að sækja fund alþjóða kvenrjettindasambandsins í Berlín Hjer er um að ræða þjóðkunna merkiskonu, sem hefir verið brautryðjandi á sviði kvenrjettindanna hjer á landi og sem hvert mannsbarn á Íslandi kannast við. Hún hafði mikil áhrif til umbóta, sjerstaklega á meðan hún gaf út Kvennablaðið um 25 ára skeið Og má öllum vera það ljóst, að blað útgáfan hefir ekki fært henni mikið fje fyrir alla þá miklu vinnu og þrautseigju, er hún lagði fram við blaðið. Íslenskar konur mega sjerstaklega vera henni þakklátar fyrir allar þær vakningargreinar, er hún birti í blaðinu. En það vill brenna við í okkar þjóðfjelagi, eins og víðar, að þeir sem leggja mest á sig fyrir fjöldann og fást við opinber mál, þeir uppskera oftast vanþakklæti; og frú Bríet hefir ekki farið varhluta af því Nú hefir hv. Alþingi tækifæri til þess að votta henni viðurkenningu með því að veita henni styrk til að fara á þetta alþjóðaþing, sem á að halda í sumar á 25 ára afmæli alþjóðakvenrjettindasambandsins í Berlín. Það var stofnað 1903 í Berlín. Þess vegna leggur alþjóðasambandið mikla áherslu á, að allar þær konur, sem voru með frá byrjun, geti sent fulltrúa, og að því er frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttur snertir sjerstaklega, þá er komin fram eindregin ósk frá þessu væntanlega þingi, að hún, ásamt öðrum gömlum samherjum sæki þetta þing, ekki beinlinís til þess að mæta sem fulltrúi, heldur komi hún þangað sem aðrir gamlir samverkamenn, til þess að geta litið yfir farinn veg og glaðst yfir þeim sigrum, sem náðst hafa í þessum málum.
Eins og jeg gat um, þegar jeg mælti með þessari styrkbeiðni við 2. umr., minni jeg aftur á það, að frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir hefir farið nokkuð oft utan upp á eiginn kostnað, og einstöku sinnum með örlitlum styrk, til þess að sækja svona þing. Hefir hún þá komið heim aftur, sennilega oftast nær, með ýmsar nýjar hugsjónir, sem koma áttu til gagns fyrir land og lýð. Jeg veit, að hún hefir viljað láta íslenskar konur, eða þjóðina í heild sinni, njóta þess, sem hún hefir kynt sjer í hverri ferð. — Hinsvegar er það vitanlegt, að svona ferðalög kosta mikið, og það er einnig kunnugt, að frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir hefir átt við þröngan hag að búa, ekki síst á meðan hún var að koma upp börnum sínum, en viljaþrek hennar og dugnaður hefir sigrast á þessum erfiðleikum. Nú þegar hún í elli sinni — hún er nú komin á áttræðis aldur — fer fram á að fá þennan styrk, sem má telja hvorttveggja í senn, styrk til að geta sótt þennan fund og viðurkenningu fyrir starf hennar, þá vil jeg vænta þess, að hv. þdm. leggi góðan skilning í orð mín og meti það, sem þeim er kunnugt um starf og verk styrkbeiðanda, eins vel og jeg hefði viljað geta sett það fram. Jeg veit, að það verður ekki talið annað en sómi fyrir þingið að líta á málið frá þessu sjónarmiði, sem jeg hefi nú leitast við að benda á, sem laun fyrir hinn mikla dugnað og kjark þessarar konu. Sjálf hefir hún tekið það fram í erindi sínu, að menn geti greint á um nytsemi þessarar farar sinnar, en hana langar til að geta sótt þennan hátíðlega fund, til þess að geta þaðan litið yfir farinn veg og glaðst yfir ýmsu, sem hefir rætst vel fram úr á þeim 25 árum, sem eru liðin frá því að alþjóðasambandið var stofnað.
En jeg skal nú ekki þreyta hv. þdm. með því að halda lengri tölu um þessa styrkbeiðni, en ljúka máli mínu með því að vænta þess, að hv. þdm. sýni það nú í verkinu, að þeir fremur flestum öðrum fulltrúum annara löggjafar þinga hafa skilið það, að konur eru jafnrjettháar körlum, hvort sem verið er að ræða um styrk til íslenskra háskólakvenna eða til þeirrar konu, sem unnið hefir kvenna mest hjer á landi fyrir vöxt og viðgang kvenrjettindamálsins. Jeg vildi, að hv. þdm. kynnu að meta alla þá viðleitni og þau störf, sem unnin eru til þess að auka veg og viðkynningu okkar fámennu þjóðar við stærri og fjölmennari þjóðir, sem lengra eru komnar á menningarbrautinni. Jeg ætla því að óska þess, að sú von mín rætist og að þessi sjerstaka skýring mín sem konu reynist rjett, að íslenskir þm., sem hafa verið á undan fulltrúum flestra annara þjóða að skilja rjettmætar kröfur kvenna í orði — en það verður þá líka að vera á borði — með því að taka vel undir þau erindi, sem konur senda Alþingi um styrki til að sækja alþjóðafundi.