13.05.1929
Efri deild: 67. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1882 í B-deild Alþingistíðinda. (851)

16. mál, fjárlög 1930

Jón Baldvinsson:

Jeg á fáar brtt. til útgjalda við þessa umr., enda þýðir ekki að flytja þær margar, því að reynslan hefir sýnt, að flest er skorið niður, hversu gott og þarflegt sem það er. Jeg hefi þó ekki getað komist hjá því að bera fram örfáar till.

Þrjár af till. mínum fjalla um það, að hin alræmdu skólagjöld sjeu feld niður. Eru þær á þskj. 617, III, VII og IX. Ætti ekki að þurfa langt mál til þess að sannfæra hv. deild um það, hvílíkur vandræðagripur þessi skólagjöld eru og hversu mikill hemill þau eru á fátæka pilta og stúlkur, er leita vilja sjer mentunar. Skólagjöldin við mentaskólann nema nú 900 kr. á hvern nemanda, er fer gegnum skólann, og kemur svo hátt aukagjald hart niður á fátæka nemendur eða þá, sem þurfa að sjá þeim fyrir framfærslu, ef þeir geta það ekki af eigin ramleik. Hlýtur slíkur mentunarskattur að draga mjög úr því, að námsmenn geti sjeð fyrir sjer sjálfir, og þrengja kosti þeirra á alla lund. Virðist og svo sem það ætti ekki að vera eftir eðli okkar Íslendinga að leggja slíkan hemil, sem skólagjöldin vissulega eru, á fróðleiksfýsn manna og mentunarþrá, auk þess sem þetta er hverfandi upphæð — hún nam í áætlun fjárl. á síðasta ári 13 þús. kr. — í samanburði við alt það fjármagn, sem ríkið leggur til mentamálanna, að jeg nú ekki tali um, ef þessi krækibersupphæð væri borin saman við allar þær milj., sem ríkið hefir í veltunni. Hinsvegar er þessi skattur tekinn af hálfþroskuðum unglingum, sem ekki geta unnið fyrir sjer, eða þá af fátækum aðstandendum þeirra. Það skýtur hálfskökku við, að ríkið skuli, jafnframt því sem það ver stórfje til þess að efla almenna mentun, leggja slíkar skorður á þá, sem hennar vilja afla sjer. Er slíkt sama og að taka með annari hendinni það, sem veitt er með hinni.

Þennan agnúa verður að sníða af, og það verður gert fyr eða síðar. Spurningin er aðeins það, hversu lengi Alþingi ætlar að þverskallast við þeirri sanngirniskröfu og hefta þannig mentunarlöngun ungra manna og kvenna. Þetta skólagjald hefir orðið til þess, að margir hafa orðið að hverfa frá skólagöngu, vegna þess að þeir gátu ekki greitt það. Að vísu er heimilt að endurgreiða fátækum nemendum þetta skólagjald, en gallinn er sá, að nemendurnir þurfa að leggja það fram, borga það, og síðan er það komið undir mati kennaranna, hverjir fái þetta endurgreitt — og þeir eru fáir.

Jeg skal ekki orðlengja frekar um þetta mál, en jeg vænti þess, að hv. þd. geti orðið við þessari sjálfsögðu rjettlætiskröfu. Og það mega hv. þm. vita, að ef þeir þverskallast í þetta sinn við þessari rjettmætu kröfu, verður hún borin fram á næsta þingi — og svo áfram, þangað til yfir lýkur.

Næsta brtt. mín er á þskj. 617, XVIII. Er hún þess efnis, að Ásgeiri Ó. Einarssyni verði veittur 1000 kr. styrkur til dýralækninganáms. Till. shlj. þessari flutti jeg við 2. umr., en hún var feld með jöfnum atkv. Mun það hafa vakað fyrir þeim, sem voru á móti þessari till., að mentamálaráðið ætti að sjá þessum pilti fyrir námsstyrk, enda var hjer þá samþ. till. um að hækka þá fjárveitingu, sem ætluð er til námsstyrkja, úr 8000 kr. upp í 12000 kr. Jeg flyt því þessa till. nú aðeins til þess að slá því föstu, samkv. viðtali við hv. formann fjvn., að mentamálaráðið styrki þennan pilt framvegis til náms, og mun því taka hana aftur. Það virðist og eðlilegra, að mentamálaráðið hafi úthlutun námsstyrkjanna með höndum, og er tryggara fyrir nemendurna en að eiga þetta undir geðþótta Alþingis. Jeg skal ekki fara mörgum orðum um það, hversu mikil nauðsyn þessum pilti er að fá þennan styrk — jeg hefi lýst því hjer áður við 2. umr. —, en jeg vil benda á það enn, hversu mikil nauðsyn það er fyrir landið, að til sjeu hjer menn, er numið hafi dýralækningafræði. Eins og stendur mun vera fremur skortur á þeim en hitt. Hannes dýralæknir Jónsson hefir gefið þessum pilti bestu meðmæli, og hann gat þess í samtali við mig, að hann teldi sjálfsagt, að framvegis yrði a. m. k. einum manni veittur styrkur til dýralækninganáms. Jeg hefi þennan formála svo ekki lengri og tek þessa till. aftur, í trausti þess að mentamálaráðið taki þennan pilt upp á sína arma.

Næsta brtt. mín, á þskj. 617, XXIV., er sú sama og jeg flutti hjer við 2. umr., og fjallar um að lána Daníel Halldórssyni og Pjetri G. Guðmundssyni 6000 kr. til að kaupa prentvjel (Rotaprint), gegn tryggingu, er stj. metur gilda. Lýsti jeg þessu máli þá nokkuð og því gagni, sem verða mætti af því að hafa slíka vjel í landinu, en tók till. aftur, vegna þess að hæstv. forsrh., sem hafði heitið henni stuðningi, var þá bundinn í hv. Nd. Bjóst jeg við, að hann mundi verða hjer viðlátinn við 3. umr., en því miður hefir svo ekki getað orðið, vegna veikinda hans.

Jeg man eftir því, að þegar jeg var nýbyrjaður að læra prentiðn, heyrði jeg söguna um manninn, sem kom inn í prentsmiðju með gamla bók með máðu letri og spurði, hvort ekki væri hægt að láta bókina fara í gegnum prentvjelina og endurnýja þannig prentið á henni, svo að hann gæti lesið hana og haft hennar full not. Þegar maðurinn heyrði, að þetta væri ekki hægt, misti hann trúna á prentverkinu og þótti lítið til þess koma.

Þessi vjel, sem hjer er um að ræða, hefir einmitt þennan kost, að hægt er að taka gamlar bækur og endurprenta þær í henni án þess að þurfa að setja þær á ný. Vjelin skilar þeim prentuðum aftur eins og nýjar væru. Jeg mintist á það um daginn, að margir árgangar af Alþingis- og Stjórnartíðindunum væru þrotnir. Með þessari nýtískuvjel er hægt að bæta úr því á tiltölulega ódýran hátt. Jeg vænti þess því, að hv. þd. synji þessum mönnum ekki um þennan stuðning til þess að útvega sjer þessa nýtískuprentvjel, en vísa að öðru leyti til þess, sem jeg sagði við 2. umr. um þetta mál og það gagn, sem af vjelinni mætti verða.

Þá flyt jeg till. ásamt hv. 1. þm. G.-K. á þskj. 617, XXXI., um að veita stj. heimild til að kaupa Íslandskvikmynd Lofts Guðmundssonar, endurbætta, að fengnum till. alþingishátíðarnefndar, fyrir alt að 16 þús. kr. Eins og menn muna, sýndi Loftur okkur þm. þessa mynd fyrir skömmu. Hefir hann lagt mikla vinnu í að taka hana, og með þeim tækjum og tækifærum, sem hann hefir haft, hljóta allir að viðurkenna, að myndtakan hefir tekist furðu vel. Þó er auðfundið, að ýmsir gallar eru á myndinni og að hana þarf að endurbæta í mörgu. Stafa þessir gallar annaðhvort af því, að Loftur hefir ekki haft nógu gott tækifæri til þess að taka kvikmyndina, eða þá af því, að fólkið, sem sýnt er, hefir ekki leikið, eins og gera þarf í kvikmynd. Jeg hugsa, að mönnum þætti sú mynd, sem lífið sjálft er sýnt á eins og það er í raun og veru, leiðinleg. Þannig held jeg, að mönnum hafi þótt lítið koma til sumra kaflanna úr sveitalífinu, af því að það var tekið eins og það er og fólkið hafði ekki hugmynd um, að verið var að taka af því kvikmynd. Aftur þykir mjer myndakaflinn af vinnu við fiskiveiðarnar góður. Nú er Loftur Guðmundsson reiðubúinn til þess að bæta þessa kvikmynd á ýmsan hátt, og ef hann gerði það, teldi jeg rjett að landið keypti hana, og þess vegna flyt jeg þessa till. Alþingishátíðarnefndin hafði augastað á þessari mynd, en hún sá sjer ekki fært að kaupa hana vegna fjeleysis. Vænti jeg þess því, að hv. þd. geti fallist á að veita stj. heimild til að kaupa myndina, ef hún verður endurbætt og hátíðarnefndin leggur til, að svo verði gert.

Þá flyt jeg tvær brtt. ásamt hv. 2. landsk. þm., og þó að þm. hafi talað fyrir þeim, vil jeg bæta þar við nokkrum orðum.

Önnur þessara till. er á þskj. 617, XX., um að veita frú Bríetu Bjarnhjeðinsdóttur 1500 kr. styrk til þess að sækja fund alþjóðakvenrjettindasambandsins í Berlín. Það má segja um þennan styrk sem aðra áþekka, að þeir koma landinu ekki að miklum notum fljótt á litið. En síðan við Íslendingar endurheimtum sjálfstæði okkar, viljum við láta á því bera og að okkar sje minst um leið og annara menningarþjóða er minst. Á slíka samkomu sem þessa koma menn hvaðanæfa úr heimi til skrafs og ráðagerða, og þó að ef til vill sje ekki mikið í það varið, sem þar kann að gerast, leiðir mikið gagn óbeinlínis af þeirri kynningu, sem slík mót hafa í för með sjer. Fyrir hinar smærri þjóðir, eins og okkur Íslendinga, er það til mikils gagns að taka þátt í umr. um alþjóðamálefni á slíkum fundum. Það sýnir, að við fylgjumst með og viljum taka okkar þátt í að leysa þau mál, sem efst eru á baugi með þjóðunum á hverjum tíma.

Þá vildi jeg sjerstaklega mæla með styrknum til kvenstúdenta, því það er sjaldnar að þær kvabbi um styrk til Alþingis en karlmennirnir. Hina till., um ferðastyrk til Bríetar Bjarnhjeðinsdóttur, má skoða sem nokkurskonar viðurkenningu fyrir starf hennar í þágu menningar landsins, og gilda um það hin sömu rök og jeg drap á áðan.

Þá hefi jeg minst á þær till., sem jeg er eitthvað við riðinn, og vil jeg fara fáeinum orðum um tvær aðrar.

Hv. 3. landsk. hefir flutt till. á þskj. 617, XVII, um að fella niður framlag hlutaðeigandi hjeraða til rannsókna á raforkuveitum. Jeg er að nokkru leyti samþ. þessari till., en þó finst mjer, að ef hjeruð æskja eftir slíkri rannsókn, þá sje ekkert á móti því, að þau verði látin taka nokkurn þátt í kostnaðinum. En mjer finst ákvæði brtt. of bindandi. Jeg vildi orða það á þá leið, að hjeruðin skyldu greiða 1/5 hluta kostnaðar, ef þau æskja rannsóknar sjerstaklega, en að stj. hafi að öðru leyti frjálsar hendur til að láta framkvæma almennar rannsóknir, þær er nauðsynlegar þykja. Jeg vil því spyrja hv. þm., hvort hann gæti ekki fallist á orðabreyt. á brtt., er kæmi þessari hugsun að.

Hv. fjvn. gerir allveigamiklar till. um að draga úr framlögum til vegalagninga 1930. Það er líka veitt meira fje til slíkra framkvæmda í frv. heldur en nokkru sinni hefir áður verið gert. Jeg sje ekki annað en menn megi vel við una, þó þær yrðu samþ. Stj. mun ekki telja sig svo bundna við þær upphæðir, er veittar eru í fjárl. til slíks. Og jeg álít, að ef vel stæði á fyrir ríkissjóði þetta ár, þá ætti heldur að framkvæma meira en minna. En það er ekki aðalatriðið að koma upphæðunum inn í fjárl., ef framkvæmdirnar verða á annað borð gerðar. Jeg hefi fyr meir stundum flutt brtt. um það, að stj. væri heimilt að grípa til framkvæmda á ýmsum verkum, sem ákveðið var að láta gera síðar, til að firra atvinnuleysi, ef illa árar í atvinnulífinu. Jeg hefi jafnan fengið þau svör hjá öllum stj., að þær álitu sig hafa heimild til að ráðast í slíkar framkvæmdir, ef að krepti. Það er því ekkert afskaplegt, þó liðir þessir verði lækkaðir, einkanlega þar sem þeir eru enn hærri en þeir hafa nokkru sinni áður verið.