13.05.1929
Efri deild: 67. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1892 í B-deild Alþingistíðinda. (853)
16. mál, fjárlög 1930
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Út af brtt. hv. fjvn., sem hún hefir gert til þess að stuðla að því að draga úr útgjöldum á fjárl., vil jeg geta þess, að stj. lítur á þær sem neyðarúrræði, en getur þó eftir atvikum fallist á rjettmæti þeirra eins og nú er málum skipað. En ef þessi sama stj. situr næsta ár og það ár kynni að verða svo vont, að ekki væri hægt að standa við þau útgjöld, sem gert er ráð fyrir í fjárl., þá er það mín persónuleg skoðun, að það sje skylda stj. að spara ennþá meir á þessum liðum, sem hv. fjvn. leggur nú til að dregið verði úr. Því eins og stj. hefir nú gert meira en gert var ráð fyrir, eins hlýtur hún að draga saman seglin, ef harðnar í ári. Og yfirleitt verð jeg að líta svo á fjárl., að þau sjeu nokkurskonar áætlun. Þessa get jeg hjer af því að sumir líta svo á, að stj. sje skyldug að fara eftir fjárl.
Þá hefi jeg flutt XV. brtt. á þskj. 617. Er hún um þóknun fyrir störf mentamálaráðs. Þegar frv. um mentamálaráðið var borið fram í fyrra hjer í Ed., gerði jeg ráð fyrir því, að það starfaði endurgjaldslaust. En í hv. Nd. var þessu breytt, svo að gert var ráð fyrir því, að það fengi nokkra þóknun fyrir störf sín. En svo hefir gleymst í fjárlfrv. stj. að gera réð fyrir þessu. Nú mun ráðið sjálft, sem hefir unnið mikið og gott starf, hafa gert ráð fyrir því, að þóknunin til þess yrði um 600 kr. á mann. Get jeg vel fallist á það og mun koma með skrifl. brtt. þess efnis, að þessi upphæð verði hækkuð.
Viðvíkjandi XXIV. brtt. á sama þskj., frá hv. 4. landsk., um 6000 kr. styrk til tveggja manna til þess að kaupa prentvjel, skal jeg geta þess, að hæstv. forsrh. mun hafa haft þetta mál til meðferðar og verið þessum tveimur mönnum hjálplegur til þess að útvega þeim bráðabirgðalán til þess að kaupa slíka prentvjel. Mun hann og hafa ætlað sjer að mæla með þessari till., því það hefir mikla þýðingu, að slík vjel sje til í landinu, svo hægt sje að endurprenta bækur á ódýrari hátt en ella. Hefir slík aðferð mjög verið notuð í Þýskalandi og gefist vel. Jeg fyrir mitt leyti tel það alveg nauðsynlegt að fá slík áhöld inn í landið.
Þá talaði hv. 3. landsk. allmikið um Skeiðaáveituna. Jeg held, að það sje að hengja bakara fyrir smið, ef hann ætlar að fara að kenna mjer um öll þau mistök, er gerð voru í þessu máli undir hans handleiðslu. Jeg ætti frekar þakkir skilið fyrir það að hafa hafist handa til þess að hjálpa hlutaðeigandi bændum úr því öngþveiti, er ráðsmenska fyrv. stj. hafði steypt þeim í. Annars held jeg, að hv. 3. landsk. hafi tvær ástæður til þess að vera viðkvæmur hvað þetta mál snertir. Í fyrsta lagi ber hann hina siðferðislegu ábyrgð á þessu verki. Því þótt hann gerði ekki sjálfur mælingarnar og áætlun um kostnað, þá voru þær gerðar af undirmanni hans, meðan hann var landsverkfræðingur, og ber hann því ábyrgðina. Og í öðru lagi er það tilfinning hans fyrir stjettarbræðrum sínum, sem hann finnur, að hafa heldur veika aðstöðu í þessu máli, og jafnvel öðrum líka.
Hv. 3. landsk. var að minnast á það, að við mundum báðir eftir fundi á Skeiðunum. En jeg held, að það væri best fyrir hann að tala sem minst um það, því það mun ekki vera nema eitt atkv. á Skeiðunum, er fylgir hans pólitísku stefnu eftir þann fund. Mun það ekki síst vera af því, að vegna hans verknaðar eiga þeir nú margir hverjir minna en ekki neitt. Og er ekki við því að búast, að þeir beri mikið traust til hans, enda hefir hann ekki það til brunns að bera, að ástæða sje til þess að hafa hann að átrúnaðargoði. Jeg minnist á þetta af því að mjer þótti sem það kendi nokkurrar beiskju hjá honum til bændanna á Skeiðunum. En mjer finst, að þeir hafi beðið nægilegt tjón, þó að þeir sjeu ekki hrakyrtir af þeim, sem valdir eru að tjóninu.
Vegna þess að sumum hv. dm. mun ef til vill ekki vera kunnugt um staðhætti þarna og tildrög þessa máls, skal jeg fara um það nokkrum orðum. Skeiðin eru flatlendi mikið milli Þjórsár og Hvítár. Kom mönnum til hugar, að hægt mundi að gera þessa flatneskju frjósama með því að veita yfir hana vatni úr Þjórsá. Voru fengnir sjerfræðingar til þess að athuga þetta, og komust þeir að þeirri niðurstöðu, að þetta væri hægt og að kostnaðurinn mundi ekki meiri en svo sem 100 þús. kr. — og að þetta væri líka hægt fjárhagslega. Bændurnir gátu ekki annað en trúað þessum trúnaðarmönnum þjóðfjelagsins og rjeðust í verkið. En svo fór nú, að verkið reyndist miklu dýrara en gert hafði verið ráð fyrir. Fæ jeg því ekki annað sjeð en að þjóðfjelagið í heild sinni verði að bera ábyrgð á gerðum þessara trúnaðarmanna sinna, enda þótt það kunni að þykja nokkuð óþægilegt.
Bændurnir þarna hjeldu, að þetta mannvirki mundi ekki kosta nema 100 þús. kr. og svo áttu þeir að fá nokkurn styrk. Þetta treystu þeir sjer til þess að borga. En þegar farið var að vinna verkið, kom það í ljós, að á leiðinni var allmikil klöpp, sem verkfræðingurinn hafði ekki tekið eftir eða reiknað með. Var því ekki hægt að notast við skurðgröfuna þar, heldur varð að sprengja klöppina, og kostaði það hvorki meira nje minna en 100 þús. kr. Hefði verkfræðingurinn, sem rannsakaði málið og gerði kostnaðaráætlunina, vitað af þessari klöpp og reiknað með henni, mundu bændurnir aldrei hafa lagt út í þetta. Sýnir það best, hve vandað hefir verið til undirbúnings verksins, að klöppin skyldi ekki finnast, því það hefði þó átt að vera auðvelt að bora nógu margar og djúpar holur á þeirri leið, er skurðurinn á að liggja um. Ofan á alt þetta bætist svo, að vatnið er í flestum árum of lítið. Og eftir þessa snjóljettu vetur hefir það verið svo, að vatnsyfirborð árinnar hefir verið lítið hærra en skurðbotninn. Einasta ráðið til þess að bæta úr þessu er að hlaða garð út í ána og reyna með því að hækka vatnið svo sem um einn meter. Takist það ekki, er allur sá kostnaður, sem lagður hefir verið í áveituna, einskis virði. Er því auðsætt, að þjóðfjelagið verður hjer að hlaupa undir bagga með þessum mönnum, sem hafa orðið fyrir svona þungum búsifjum af trúnaðarmönnum þess.
Hagur þessara manna er nú svo, að þó alt væri tekið af þeim, væri það ekki nema upp í helming þeirra skulda, er á þeim hvíla. Og þó það ráð væri nú tekið og þessir duglegu menn flæmdir burtu af jörðum sínum, þá mundu ekki fást neinir til þess að taka þær að sjer með þeim kvöðum, er á þeim hvíla. Jeg fæ því ekki sjeð, að það sje nein dauðasynd, þó þeim væri gefið eitthvað eftir af skuldum sínum. Og víst er um það, að bankar þeir, er hv. 3. landsk. stendur að, hafa gefið útgerðarmönnum eftir margfalt stærri upphæðir. Hv. 3. landsk. er ekki hissa á því, þó slíkum mönnum sje lánað stórfje og svo gefið það alt eftir. En þegar rætt er um það að gefa þeim mönnum eftir, er hafa steypt sjer í stórskuldir í raun og veru á ábyrgð hv. þm. og samverkamanna hans, verkfræðinganna, þá er alt öðru máli að gegna. Þeim má ekkert gefa eftir, þó margra ára reynsla hafi sýnt það, að þeir geta ekki borgað allar skuldir sínar. Þeim má ekki bjarga eins og gert hefir verið við kaupmenn og útgerðarmenn. Ef von væri til þess að fá þetta borgað, þá væri till. hv. 3. landsk. rjettmæt. En hjer er ekki um það að ræða, og jeg er viss um það, að þó hv. þm. komi aftur að stj., þá mun hann ekki verða til þess að flæma bændurna þarna í burtu af búum sínum. En jeg held, að það sje óþarfi að fresta því að hefjast handa í þessu máli þangað til. Núv. stj. er a. m. k. þeirrar skoðunar, að það sje best fyrir báða aðilja að koma þessu á hreint. Lánsstofnanirnar þurfa að vita glögt, hvað þær mega búast við að fá af þessum skuldum, og hjálpin kemur bændum að því meiri notum, þess fyr sem hún kemur. Stefna hv. 3. landsk. er aftur á móti sú, að láta reka á reiðanum um þessi mál þangað til alt er komið í öngþveiti. Mín skoðun í þessu máli er sú, að rjett sje að láta bændurna borga það, sem þeir geta með góðu móti, en kippa hinum skuldaböggunum af þeim. Og það er óneitanlega hart, að þeir menn, er mesta ábyrgð bera á því, hversu fór, skuli reynast verst þeim mönnum, er þeir steyptu í vandræði með heimsku sinni og fljótfærni. Maður gæti haldið, að það væri ekki sem mest blessun að því fyrir þjóðina að hafa marga atvinnnlausa verkfræðinga í landinu, því engir menn eru verri með það að æsa almenning út á hálar brautir. Hv. 3. landsk. má ekki taka það illa upp fyrir mjer, þó jeg hafi svarað honum nokkuð ítarlega, þar sem hann fór að drótta því að mjer, að jeg ætti sök á því, hvernig þetta fór.
Þá kem jeg að brtt. minni um það að heimila stj. að kaupa prentsmiðjuna Gutenberg fyrir 155 þús. kr. Mjer skilst, að það hafi andað heldur kuldalega til þessarar brtt. frá hv. 3. landsk. og að hann hafi jafnvel talið, að hjer væri um stjórnarskrárbrot að ræða og gæti því ekki greitt atkv. með þessari brtt. En hv. þm. getur verið alveg óhræddur um það. Hjer er ekki frekar að ræða um stjórnarskrárbrot heldur en þó t. d. að brotinn væri gluggi í ráðhúsinu í Kaupmannahöfn.
Ríkið mun nú greiða fyrir prentun ca. 300 þús. kr. árlega. Og við lauslega athugun hefi jeg sjeð, að fyrir bók eins og B-deild Alþt. borgar það einni prentsmiðju 30 þús. kr. Það getur því munað ríkið miklu, hvort klaufalega er á haldið í þessum efnum eða ekki.
Í þessu sambandi vil jeg minna á eitt gott fyrirtæki, er hv. 3. landsk. kom upp meðan hann var landsverkfr., en það var að koma upp verkstæði til að smíða brýr og aðra járnsmíði, er landið þarf á að halda. Hefir það verkstæði reynst ágætlega og sparað ríkinu stórfje. Meiningin var í fyrra, að landið fullnægði sjálft prentþörf sinni, eins og það smíðar nú þær brýr, er það lætur byggja. Jeg fjekk hinn færasta mann, sem völ var á, til að rannsaka málið. Hann kynti sjer það ítarlega, og athugaði jafnframt í þessu sambandi Acta og Gutenberg, sem báðar voru til sölu, og eins hvort heppilegra væri að kaupa nýja prentsmiðju. Niðurstaðan varð sú, að heppilegast væri, að landið keypti Gutenberg, ef hún fengist með sæmilegum kjörum, en ekki nýja prentsmiðju. Ef ný prentsmiðja væri keypt, væri alt verð hennar útlagður eyrir, og þá yrði að taka lán til þess að leggja verð hennar á skattborgarana. Í fljótu bragði gat það virst skynsamlegra að fara þessa leið, vegna þess að venjulega reynist hið nýja best. En hjer stóð sjerstaklega á. Ef ný prentsmiðja hefði komið hjer, hefði það orðið til þess, að tvær af hinum gömlu hefðu farið á hausinn. Nú er Gutenberg í raun og veru eign Landsbankans, en hann aftur eign ríkisins. Því var ekki forsvaranlegt, að órannsökuðu máli, að kaupa nýja prentsmiðju og eyðileggja þar með eign Landsbankans. Af því að Landsbankinn á Gutenberg, má telja víst, að hann yrði fús á að láta lánið standa lengur en ella, ef ríkið keypti, ef til vill alt að 25–30 árum. Þarf þá ekki nýtt lán eða skatta til þess að kaupa prentsmiðju handa ríkinu. Ríkið eignast prentsmiðjuna með góðum kjörum og fær miklu ódýrari vinnu eftir en áður. Niðurstaðan varð sú, að landið myndi spara 50 þús. kr. á ári með því að eiga prentsmiðju sjálft. Eftir því ætti Gutenberg að geta borgað sig á 3 árum. Jeg skal eigi segja um, hvort sú áætlun stendur heima, en aðalatriðið er rjett, og prentsmiðjan ætti ávalt að geta borgað sig á 4–5 árum.
Nú vil jeg víkja að því, sem er kjarni málsins. Það má segja, að undarlegt sje, að Gutenberg, sem er elsta og helsta prentsmiðja landsins, skuli vera komin í slíka skuld við Landsbankann, ef það er rjett, að prentun hennar fyrir landið hafi verið of dýrt seld. En þessi mótsögn er aðeins á yfirborðinu. Gutenberg hefir ekki prentað eingöngu fyrir landið fremur en aðrar prentsmiðjur. Þær hafa allar mikil viðskifti við blöð og bókaútgefendur. Skuldir þessara aðilja við prentsmiðjurnar eru helsta orsökin til þess, hve illa þeim hefir gengið. Mjer er það kunnugt um Gutenberg, að hún hefir tapað tugum þúsunda eingöngu á blöðum, sem hafa dáið. Sama mun um aðrar prentsmiðjur. Líka er fjöldi af forleggjurum, sem skulda prentsmiðjunum stórfje, sem telja má tapað. Því skoða prentsmiðjurnar það aðaltekjur sínar, sem þær fá fyrir að prenta fyrir ríkissjóð. Á þeim tekjum einum hafa þær flotið sumar hverjar fram á þennan dag.
Þetta er sama sagan og í bönkunum. Skilamennirnir verða að borga fyrir óreiðumennina. Ríkið hefir haldið uppi 3–4 prentsmiðjum hjer, og því er ekki furða, þó að komi hljóð úr horni frá hv. 3. landsk., sem á mikinn hluta af kjörfylgi sínu hjer í bæ, þegar á að hrófla við þessu. Það er eðlilegt, að prentsmiðjurnar vilji ekki missa bestu mjólkurkúna úr fjósinu, og hv. 3. landsk. rekur erindi þessara prentsmiðja.
Jeg vil benda á þá staðreynd, að ein af yngstu prentsmiðjunum, sem lítið hafði fengið að prenta fyrir ríkið, en er þó rekin að duglegum og reglusömum forstjóra og góðum prenturum, stóð sig um tíma mjög illa. Þá vildi svo til, að þessi prentsmiðja fjekk að prenta fyrir ríkið dálitla bók. Þetta hafði þau áhrif, að prentsmiðjan, sem einn af eigendunum, sem er þm. og samherji hv. 3. landsk., vildi loka, fór ekki á hausinn. Þessi litli neisti af ríkisprentuninni hefir haldið henni fljótandi. Svo miklu máli skiftir það fyrir prentsmiðjurnar að fá þessa vinnu, sem er í senn hátt og skilvíslega borguð. Enda óttast prentsmiðjurnar ekki neitt eins mikið og að landið fari að prenta sín plögg sjálft.
Niðurstaðan er sú, að öllum hlýtur að vera ljóst, að augljós sparnaður er að því fyrir ríkið að hafa sína eigin prentsmiðju. En jeg vil ekki leggja til, að landið kaupi nýja prentsmiðju og eyðileggi þannig mikið verðmæti fyrir Landsbankanum.
Þær sannanir, sem jeg hefi borið fram, er ekki hægt að hrekja, enda dettur víst engum í hug að halda því fram, að landið fái bestu hugsanlegu kjör um prentun eins og nú hagar til. Ef ríkissjóður væri einkafyrirtæki, sem hv. 3. landsk. stjórnaði, mundi hann ekki láta líða svo ár að borga 200– 300 þús. kr. fyrir prentun, ef hann gæti fengið prentsmiðju keypta fyrir 155 þús., og sparað árlega 1/6 af prentkostnaðinum. Jeg þykist vita, að hv. þm. sje svo mikill búmaður, að hann sæi þetta í hendi sjer og hagaði sjer þar eftir. Jeg held því sama fram fyrir landið í þessu efni og jeg mundi gera fyrir sjálfan mig. Hitt getur vel verið, að einhverjir þm. segi sem svo, að þótt þetta gæti verið sparnaður, þá treysti þeir ekki núv. stj. svo vel, að þeir álíti, að þetta verði til sparnaðar í hennar höndum. Jeg skal ekki álasa andstæðingunum fyrir þetta, en þó er varlegra fyrir þá að hafa ekki bundið sig um of af mótstöðu við hugmyndina sjálfa, ef þeir skyldu fá tækifæri til að framkvæma hana sjálfir síðar meir.
Jeg vil benda á, að munur er á því fyrir hið opinbera, að reka iðnað til að framleiða það, sem ella verður að kaupa, eða til þess að selja framleiðsluna. Ef landið þyrfti ekki sjálft að láta prenta svo mikið, myndi jeg vera andvígur því, að ríkið ætti og ræki prentsmiðju til þess að taka á móti viðskiftum einstaklinga, áreiðanlegra og óáreiðanlegra. En úr því að ríkið þarf á prentsmiðju að halda, virðist eins sjálfsagt, að landið reki sína prentsmiðju, alveg eins og póstmál og sími eru í höndum hins opinbera. Ef sími og póstur væru í einstakra manna höndum, yrði allur rekstur dýrari og verri en nú er.
Jeg skal ekki segja um það, hvernig hv. deildir þingsins taka þessu máli. En jeg ber það fram vegna þess, að jeg veit, að það er rjett mál. Ef það er felt hjer, stafar það af því, að menn hafa ekki enn öðlast nægilegan skilning á málinu, eða þá af því að prentsmiðjueigendur hafa hjer of mikil ítök. En jeg vona, að ekki komi til, að einstakir menn geti svo gripið inn í það trúnaðarmál, sem þingmannsstarfið á að vera.
Þá vil jeg minnast nokkuð á brtt. um fjárveitingu til að reisa viðbótarbyggingu við gistihúsið á Þingvöllum. Jeg vík að þessu af því að jeg er í Þingvallanefnd. Nefndin hefir orðið sammála um, að með slíkri viðbótarbyggingu sem hjer er um að ræða geti gistihúsið orðið sómasamlegt sveitahótel, sem nægi næstu 20 árin. Að vísu er rjett, að ekkert fje er til þessarar fjárveitingar í viðlagasjóði, og því hefir n. orðað till. svo, að ríkissjóði sje heimilt að ábyrgjast upphæðina eða veita hana að láni. En jeg vil taka fram, að ekki verður hjá því komist að auka nokkuð við gistihúsið á Þingvöllum, því að þangað gerist nú svo mannkvæmt, bæði af útlendingum og innlendum mönnum, að ekki er þjóðinni samboðið að hafa ekki annað en tjöld upp á að bjóða, ekki síst 1930. Jeg lít ekki á þessa byggingu sem gróðafyrirtæki, enda þótt hún ætti að geta borið sig, heldur sem metnaðarmál. Jeg vil minna á, að við nefndarmenn höfum viljað stilla. till. okkar um þetta efni í hóf og ekki lagt til, að hjer yrði reist stórt gistihús úr steini, eins og verið er að byggja hjer í Reykjavík, heldur orðið sammála um þessa till. Eigandi gistihússins er nú að laga það, en vill bæta við það stórri gestastofu úr timbri og bárujárni. Verður eytt eins litlu og hægt er í því skyni.