13.05.1929
Efri deild: 67. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1939 í B-deild Alþingistíðinda. (861)
16. mál, fjárlög 1930
Jón Þorláksson:
Mjer er sönn ánægja að slá því föstu, að hæstv. dómsmrh. sá þess engan kost að hrekja þá staðhæfing mína, að kostnaðaraukinn við Skeiðaáveituna stafaði að langmestu leyti af hækkun verðlags milli áætlana og framkvæmda. Meira að segja gerði hæstv. dómsmrh. enga minstu tilraun til þess að afsanna þetta. Einungis endurtók hann sömu fullyrðingarnar um það, að orsökin væri mistök verkfræðinganna. En slíkt nær engri átt, eins og jeg hefi greinilega sýnt fram á. Fullyrðing hæstv. ráðh. er þess vegna alveg út í bláinn, enda hefir hann enn ekki leitt hin minstu rök að henni. En síðar í ræðu sinni sagði hann, að sjerfræðingar þeir, sem hann leitaði til, væru undir eftirliti heilbrigðrar skynsemi. Jeg ætla þá að segja það, að verkfræðingar þeir, sem mældu fyrir Skeiðaáveitunni, njóta engrar heilbrigðrar skynsemi af hálfu hæstv. ráðh., því ef svo væri, myndi hann viðurkenna, að kostnaðaraukinn stafaði af hækkuðu verðlagi. Þessir verkfræðingar njóta einskis annars af hendi hæstv. ráðh. en öfga og ósanngirni og órökstuddra getsaka. Að vísu má þeim vera það nokkur raunaljettir, að slíkt er ekkert einsdæmi úr þeirri átt, ef aðrir en pólitískir venslamenn ráðh. eiga í hlut. Þá reyndi hæstv. ráðh. að afsaka það atriði, að ríkisstj. væri falið sjálfdæmi um útgjöld til Skeiðaáveitunnar, og um það að taka lán til þess að setja á stofn ríkisprentsmiðju. En hæstv. ráðh. skjátlast í þessu, því engin stj. hefir heimild til þess að taka ríkislán af neinu tægi, nema því aðeins, að Alþingi gefi þar til samþykki sitt í hverju einstöku tilfelli. Nú ætlast hæstv. ráðh. til þess, að Alþingi selji stj. fyrirvaralaust sjálfdæmi í þessum málum. Jeg er slíku algerlega mótfallinn, enda þykist jeg hafa sýnt það ótvírætt, að því leyti sem jeg hefi haft afskifti af fjármálapólitík okkar, að full alvara liggur að baki þessum orðum mínum. Sem fjmrh. mun jeg hafa gengið lengra í því að forða ríkissjóðnum undan slíkum heimildum og ábyrgðum en fyrirrennarar mínir og eftirmenn. Jeg hygg, að eitt eða tvö ár í minni stjórnartíð hafi fjárl. verið afgr. án þess að nokkur slík heimild væri gefin stj. á 23. gr. fjárl. Annars sje jeg ekki ástæðu til að gera þetta mál sjerstaklega að umtalsefni. Það er hæstv. fjmrh. og flokkur hans, sem ber alla ábyrgð á slíkum ráðstöfunum, og hans er því að standa gegn þvílíkri ráðsmensku. Jeg mun síst verða til þess að hlaupa fram fyrir skjöldu ráðh. og flokksmanna hans, meðan það er ekki jeg, sem ábyrgðina ber á þessum hlutum. En jeg tek það einungis fram sem skoðun mína á þessum málum, að jeg tel sjálfsagt, að Alþingi eitt hafi ákvörðunarrjettinn um útgjöld ríkissjóðs. Hvað prentsmiðjuna snertir, þá eru engin tök á að sjá það nú, að svo stöddu, hvort slíkt fyrirtæki myndi borga sig og hvort ráðlegt sje að leggja út í það. Málið er algerlega ótímabært, meðan engin ábyggileg rannsókn er fyrir hendi.
Að lokum reyndi hæstv. dómsmrh. að lýsa mig ósannindamann að því, að rannsókn sú, sem hann að nafninu til ljet fara fram, hafi verið óábyggileg vegna þess, að atvinnuvonir þess, sem rannsóknina framkvæmdi, hafi verið að verulegu leyti bundnar við, hver yrðu úrslit þessa máls. En hæstv. ráðh. tókst þetta að vonum óhönduglega. Og mjer þykir satt að segja mjög leiðinlegt að þurfa að gera ráð fyrir slíku. En við hæstv. ráðh. vil jeg segja það, að ef þessi prentsmiðja kemst á fót, hvort sem það verður fyr eða seinna, þá er jeg ekki í efa um, hver verður ráðinn til að standa fyrir henni. Það mun því sannast á sínum tíma, hvor okkar hæstv. ráðh. hefir haft rjett fyrir sjer. Og við skulum í því trausti láta bíða að tala frekar um atvinnuvonir sjerfræðinga hæstv. dómsmrh.
Það mun tíminn leiða í ljós, þegar þar að kemur.