15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1946 í B-deild Alþingistíðinda. (867)

16. mál, fjárlög 1930

Ingólfur Bjarnarson:

Það vill svo einkennilega til, að jeg stend hjer ekki upp sem fram. fjvn., því að henni tókst ekki að verða samhuga um till. sínar, en ber þær fram í þrennu lagi. Jeg stend því aðeins upp til þess að gera grein fyrir 2 brtt., sem minni hl. b. hefir leyft sjer að bera fram á þskj. 646.

Eins og hv. þd. er kunnugt, þá hefir hv. Ed. gert nokkrar breyt. á frv. síðan það fór út úr deildinni, bæði hækkað tekjurnar og lækkað útgjöldin dálítið, sjerstaklega með niðurfellingu vegagerða, en hefir hinsvegar bætt ýmsu inn á útgjaldahliðina. Hefir frv. tekið þeim breyt., að útgjaldahliðin hefir hækkað í heild, þrátt fyrir þessa 80 þús. kr. lækkun, um ca. 34 þús. kr., en tekjuhliðin hefir hækkað um 100 þús. kr., svo að nú er 18300 kr. tekjuafgangur, en var 47 þús. kr. tekjuhalli, þegar frv. var afgr. frá þessari hv. deild.

Að svo miklu leyti sem breyt. hv. Ed. hafa raunverulega miðað í þá átt að afgr. frv. án tekjuhalla, er ekki nema gott um þann tilgang að segja frá hendi okkar tillögumanna, en að okkar áliti orkar það nokkuð tvímælis, hvort verulegustu breyt. eru til bóta, en verulegustu breyt. eru hækkun tekna og lækkun á framlagi til vegagerða.

Hið fyrra hefir nú engin raunveruleg áhrif á útkomu fjárl. á sínum tíma, en er aðeins breytt færsla á pappírnum. Og um lækkanirnar til vega vil jeg taka það fram, að okkur tillögumönnum þóttu það mjög erfiðir kostir að þurfa að grípa til þess ráðs, þar sem þörfin er svo knýjandi fyrir bætta vegi alment. En að því sem þetta miðar til raunverulegs sparnaðar, sáum við tillögumenn okkur eigi aðra leið færa, eins og komið var afgr. fjárl., en að láta okkur lynda þessa sparnaðarleið hv. Ed., og viljum ekki leggja út í að hefja stríð út af því. En því fjarstæðari verðum við að telja þá ráðstöfun hennar, að jafnhliða því, að fella niður framlög til margra stórnauðsynlegra vega, skuli hún taka upp framlag til nýs vegar, nefnilega akvegarins yfir Fjarðarheiði, sem að okkar áliti stendur mjög miklu fjær því að koma til framkvæmda heldur en vegir þeir, sem hv. Ed. feldi niður. Enda hefir vegamálastjóri lýst yfir því, að hann gæti eigi lagt til, að á þessum vegi yrði byrjað nú þegar. Kostnaðurinn er áætlaður hátt á fjórða hundr. þús. kr., lægsta áætlun, og þar sem hann kæmi ekki að gagni fyrr en hann væri allur lagður, telur vegamálastjóri, sem líka er auðsjeð, að eftir að byrjað væri á honum yrði að leggja kapp á að koma honum áleiðis, og yrði þá að binda til hans af vegafje árlega að minsta kosti 50 þús. kr., og yrði þá vitanlega að draga þá upphæð frá vegagerðum annarsstaðar.

Nú hagar svo til, að vegur þessi liggur yfir afartorsótta og háa heiði, kringum 2 þús. fet yfir sjávarmál, og má telja alveg víst, að vegurinn mundi liggja undir snjó mikinn meiri hluta ársins, og því að engu gagni koma þann tíma. Og hinsvegar hafa hjeraðsmenn þeir, sem ætlað er að hafa hans not, þegar annan miklu tryggari akveg til útflutningshafnar rjett samhliða þessum fyrirhugaða Fjarðarheiðarvegi, nefnil. Fagradalsbrautina, og liggja þessir tveir vegir upp frá sama punkti hjeraðsmegin. Þó að þessi Fjarðarheiðarvegur væri lagður, þá er það sjáanlegt, að aðalviðskiftastraumur hjeraðsbúa mundi eftir sem áður liggja til Reyðarfjarðar um Fagradalsbraut, þar sem sú leið yrði miklu öruggari. Okkur sýnist því, að hjer sje gerður hálfgerður leikur að því að binda vegaframlög komandi ára í þennan tiltölulega þarflitla Fjarðarheiðarveg, meðan ýms önnur hjeruð bíða meira og minna vegalaus. Jeg held svo, að það sje ekki ástæða til að fara ítarlegar inn á að lýsa þessum vegi að sinni. Það var gert í hv. Ed., og jeg býst við, að margir hv. þdm. þekki afstöðuna þarna og geti myndað sjer skoðun um málið. Vil jeg svo vænta þess, að hv. d. geti gengið inn á þessa till. okkar.

Þá höfum við einnig leyft okkur að bera aðra brtt. fram á þessu sama þskj., sem er sú XVIII., og er þar farið fram á að taka upp aftur styrk til sandgræðslugirðingar á Rangárvöllum, sem hv. Ed. feldi niður. Við höfum tekið þetta upp aftur, en þó með þeirri breyt. frá því, sem áður var, að við höfum fært upphaflegu upphæðina niður um 2 þús. kr. Um leið höfum við gert hlutaðeigendum skylt að leggja fram helming kostnaðar, og er það bygt á því, að við álítum sæmilega sanngjarnt, að hjeraðsbúar leggi fram meira heldur en var ráð gert fyrir upphaflega, því að hjer er ekki um að ræða venjulega varnarráðstöfun gegn uppblæstri landsins, heldur er þetta sumpart girðing til varnar ágangi á engi sumra hlutaðeigandi manna. Jeg skal svo ekki fara um þetta fleiri orðum, en skal aðeins taka það fram, að við töldum, að hv. Ed. hefði sýnt óþarfa harðleikni í þessu máli, sem er hjeraðsbúum, er hlut eiga að máli, hin mesta nauðsyn, og viljum mælast til þess við hv. deild, að hún samþ. þessa tillögu.

Jeg sje, að hjer er komin fram brtt um sama efni frá hv. 1. þm. Rang. Hún er 2 þús. kr. hærri en okkar till., eða eins og framlagið var áður sett. Jeg hefi nú gert grein fyrir, hvers vegna við sáum okkur fært að lækka framlagið, og vil nú fara fram á það við hv. flm. till., hvort hann geti ekki fallist á að taka hana aftur, bygt á því, að hann gæti fallist á, að okkar till. hefði við sæmilega sanngirni að styðjast. Hjer er að vísu ekki um neitt stórmál að ræða, en jeg vil samt beina þessu til hans.