15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1950 í B-deild Alþingistíðinda. (868)
16. mál, fjárlög 1930
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg á hjer nokkrar brtt., en þar sem þær hafa sumar verið til umr. hjer áður og samþ. í þessari hv. deild, þá sje jeg ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þær.
Fyrsta brtt. er um það, að gera orðabreytingu og jafnframt raunverulega breyt. á aths. við símalínuna frá ögri um Æðey, þannig að í staðinn fyrir Snæfjöll komi Sandeyri sem endastöð. Það er upplýst, að rjett er að stytta símalínuna og láta hana ná aðeins til Sandeyrar. Um nauðsyn þessarar línu hefir verið talað áður og jeg ætla ekki að endurtaka það, en vænti, að hv. þdm. geti fallist á þessa till. mína, sem miðar til sparnaðar, sem nema mun 1500–2000 kr.
Önnur brtt. mín er um, að veittar verði til bryggjugerðar í Hnífsdal 9 þús. kr. Við 3. umr. fór jeg fram á 14000 kr. í þessu skyni; tel nú, að vel mætti vinna verkið á 3 árum, en áður var ráðgert að lúka því á 2 árum.
Jeg vænti þess, að hv. deild samþ. þessa fjárveitingu. Jeg hefi áður sýnt fram á, hve mikil nauðsyn er á bryggju á þessum stað. Það er alveg óvinnandi vegur að skipa öllum fiski upp í smábátum, og tekur 3–5 klst. í hverjum sjóróðri, og dregur því stórum úr aflabrögðum manna. Auk þess myndu allar aðrar vörur fara um þessa bryggju, ef bygð verður. Það er enginn efi á því, að hreppsbúar geta staðið straum af 2/3 hlutum byggingarkostnaðarins með ábyrgð sýslunnar og styrk hreppsfjelagsins.
Þá er IX. brtt., sem fer fram á að hækka laun farkennara. Jeg sje í áliti fjhn. Ed., að hún leggur til, að frv. um laun farkennara, sem kom frá þessari hv. deild, verði samþ., en það hefir þá hækkun á laununum í för með sjer, sem brtt. fer fram á. Þetta má því heita aðeins leiðrjetting.
Í Ed. var feld niður fjárveiting til að leggja veg um sandgræðslusvæðið í Bolungarvík. Jeg tek þessa fjárveitingu hjer upp aftur. Hjer er ekki um bein útgjöld fyrir ríkissjóð að ræða, þar sem vegur þessi, sem er í áframhaldi af sýsluveginum, yrði ella kostaður af sýsluvegasjóði og ríkissj. að 1/3.
Þá á jeg brtt. við VI. lið 23. gr. Það er lánsheimild til Hjaltastaðahrepps. Þar segir svo í aths. við liðinn, að lánið sje veitt til greiðslu á skuldum hreppsbúa við verslanir. Þetta finst mjer óviðkunnanlegt, og vil því láta niður falla. Mjer finst betur við eiga, að sýslunefndin, sem ber ábyrgð á láninu, ráðstafi þessu fje í samráði við hreppsnefndina. Mjer finst, að þar sem litið er á þetta lán sem hallærislán, þá sje ekki ástæða til, að verslanirnar fái skuldir sínar greiddar nema menn geti greitt þær án opinberrar aðstoðar. Jeg hygg, áð ef það fordæmi er gefið, að borga verslunarskuldir, gæti þá farið svo, að beiðnimar yrðu nokkuð margar um slíkar fjárveitingar áður en lýkur.
Jeg hefi þá ekki meira að segja um fjárlfrv., nema það, að þótt eigi sje gert ráð fyrir beinum tekjuhalla á fjárl., þá er með samþ. á 23. gr. ráðið, að stór tekjuhalli verður á þeim, ef stj. notar allar heimildir í 23. gr. Stj. eru þar heimilaðar greiðslur, sem nema um 600 þús. kr., og þar sem þessar heimildir eru flestar frá sjálfri stj. runnar, og þá einkum frá hæstv. dómsmrh., má búast við, að flestar eða allar heimildirnar verði notaðar. Má þar til nefna heimildina um kaup á Gutenberg, byggingu fyrir opinberar skrifstofur og kaup á nokkrum jörðum fyrir austan fjall. Held jeg, að megi telja víst, að flest þessi útgjöld komi á ríkissjóð 1930. Má því búast við, að ekki verði lítill halli á fjárl. Vil jeg því vænta þess, að sparnaðartill. við þessa grein á þskj. 646 verði samþ.