01.05.1929
Efri deild: 58. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

14. mál, Búnaðarbanki Íslands

Halldór Steinsson:

Mjer þótti anda heldur kalt frá hv. 4. landsk. til tillagna minna. Hann hjelt því fram, að rjett væri að hafa ríkissjóðstillagið til lánadeildar um óákveðinn tíma Jeg er þar á gagnstæðri skoðun, því þó jeg vilji unna notendum þeirrar deildar alls góðs, þá tel jeg ekki rjett, að sú deild njóti alveg sjerstakra kjara umfram aðrar deildir bankans. Og brtt. mín gengur út á að koma fjárframlagi ríkissjóðs til þessarar deildar í samræmi við fjárframlögin til annara deilda bankans.

Hv. þm. hjelt því fram, að síðari brtt. mín yrði til að gera minna úr deildinni. Þetta er mjer ómögulegt að skilja. Ef hún verður samþ., þá verða ákveðin með reglugerð ekki einungis öll þau atriði, sem brtt. hv. þm. sjálfs fjalla um, heldur einnig mörg fleiri. (JBald: Og alt verða það tómar takmarkanir!). Ja, hví vantreystir hv. þm. þeirri stjórn, sem hann styður, til að búa út eina reglugerð? En með minni brtt. verður meiri trygging fyrir, að lánadeildin komi að fullum notum. Vona jeg, að hv. þdm. líti öðrum augum á hana en þessi hv. þm.