15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1962 í B-deild Alþingistíðinda. (873)
16. mál, fjárlög 1930
Halldór Stefánsson:
Þegar jeg lít yfir brtt. þær, sem fyrir liggja á þskj. 646, þá verð jeg að segja það, að þær eru í heild sinni þess eðlis, að jeg fyrir mitt leyti hefði heldur kosið, að það hefði verið gengið að fjárl. óbreyttum eins og þau komu frá hv. Ed. En það mun nú ekki þýða um það að ræða; það mun ekki vera hægt að ganga á móti þeim straumi, sem sýnilega kemur fram í framburði allra þessara till. Jeg mun þó greiða atkv. á móti þeim flestum; ei að síður get jeg játað það, að mjer er heldur sárt um að þurfa að greiða atkv. á móti þeim hækkunartill., sem eru hjer til vega, en þar sem eftir standa þó allríflegar upphæðir til nefndra vega, og þar sem það hinsvegar er jafnan látið óátalið, þótt meiru fje sje varið til slíkra framkvæmda heldur en veitt er í fjárl. og fúslega samþ. eftir á, þá vænti jeg, ef fje verður á annað borð fyrir hendi í ríkissjóði, að þá muni stj. leyfa það, að eitthvað verði framkvæmt fram yfir fjárveitingar. — Jeg mun svo ekki tala meira alment um málið, en snúa máli mínu stuttlega að einstökum brtt., og þó fáum.
Fyrri minni hl. fjvn. ber hjer fram till., sem merkt er V, um það, að fjárveitingin til Fjarðarheiðarvegar falli niður. Eftir annari aðstöðu þess hluta hv. n. get jeg vel skilið þessa till. hennar, og það því fremur, sem margir, sem kunnugir eru, eru hálfdeigir í þessu máli, eða a. m. k. hikandi. Jeg get meðal annars bent á samþykt sýslufundar N.-M., þar sem sýslunefndin gerir það að skilyrði, jafnframt því að hún samþ. áskorun um ríflegt framlag til vegar yfir Fjarðarheiði, að það verði ekki látið draga úr fjárveitingum til annara framkvæmda innan hjeraðsins.
Jeg verð að nokkru að viðurkenna ástæður hv. þm. S.-Þ. um það, að heiði þessi sje örðug yfirferðar sakir hæðar sinnar yfir sjávarflöt og snjóþyngsla, og því lítil líkindi til, að bílvegur komi þarna að notum nema minni hl. árs. Jeg hygg, að brekkurnar báðum megin heiðarinnar muni því sem næst 2/3 af allri lengd vegarins, og bílvegur yrði lengri í brekkunum vegna sneiðinga.
Sjálfur álít jeg, að mörg verkefni bíði enn óleyst á Austurlandi, sem brýnni nauðsyn sje á en þessum vegi. Vil jeg því til stuðnings benda á, að þjóðvegir á Hjeraði eru að mínum dómi lítt ræktir á meðan t. d. ekki eru ætlaðar nema 10 þús. kr. til framlengingar aðalvegarins um hjeraðið. Stórvötn hjeraðsins eru enn óbrúuð á stöðum, sem ekki hafa verið nefndir enn í þingsalnum, og tel jeg þó, að fyr ætti að veita fje til brúa yfir þau en að leggja veg yfir Fjarðarheiði. Jeg álít einnig, að fyr bæri að auka vegakerfi um Hjeraðið og vil þá í því sambandi minna á, að jeg hefi borið fram till. við vegalögin um að tengja þjóðveginn við þá einu höfn, sem er við Hjeraðsflóa, en það er Unaós. Enn er ekki útsjeð um hvernig fer um afgr. þeirrar till. Þó má geta þess, að hv. samgmn. hefir ekki sjeð sjer fært að mæla með henni, og tel jeg bað þó standa nær en akveg yfir Fjarðarheiði.
Þá vil jeg minna á aukning símakerfisins þar austur frá; margt brýnt verkefni er þar óleyst. Auk ýmsra símalína, sem þegar hafa verið teknar upp í lögin, en eru ólagðar enn, hafa nýjar línur verið samþ. á þessu þingi. Allar þessar framkvæmdir verða að teljast nauðsynlegri en akvegur yfir Fjarðarheiði, og bíða margir þeirra með mikilli óþreyju.
Loks vil jeg benda á eitt framkvæmdaatriði enn, sem að vísu er ekki fjárfrekt, en mikill áhugi manna á milli um að geta hrundið af stað sem allra fyrst, en það er að gera Lagarfljót fiskgengt og í sambandi við það fiskirækt í ám og vötnum Fljótsdalshjeraðs. Jeg bar fram við fyrri umr. fjárlagafrv. í þessari hv. deild till. í þessu efni, ásamt hv. 1. þm. S.-M. En sú till. fann ekki náð fyrir augum hv. þdm. og var feld. Nú er borin fram á ný till. um sama efni, en upphæðin lægri, og mun jeg víkja að henni síðar.
Af þessum ástæðum, sem jeg hefi nú rakið um stund, má sjá, að mörg verkefni bíða óleyst austur þar, sem öll ætti þó fyr að leysa en að lagður sje bílvegur yfir Fjarðarheiði. Býst jeg við, að ef byrjað verður á þessum vegi áður en önnur verkefni, sem jeg hefi nefnt, verða leyst af hendi, þá verði það til þess að draga úr fjárveitingum til þeirra og til ýmsra framkvæmda annarsstaðar á landinu, sem nauðsynlegri verði þó að teljast. Og hver er svo ávinningurinn við þennan 1/2 milj. kr. veg? — Hann er sá, að hægt væri að fara á bílum á milli Fljótsdalshjeraðs og Seyðisfjarðar ca. 3 mán. ársins, í stað þess að fara á hestum. En Fljótsdalshjerað hefir — eins og kunnugt er — bílveg til Reyðarfjarðar.
Jeg skal þá minnast á, hvað vinnast mundi með því að fá bílveg yfir Fjarðarheiði í stað vegar, sem sæmilega væri haldið við sem hestavegi. Bílvegur yfir Fjarðarheiði mundi ekki fær bílum nema 3–4 mánuði á ári, og yrði það þó misjafnt og algerlega undir árferðinu komið. Sje litið á það, hvað há fjárhæð er ætluð til vegarins nú og hinsvegar athugað, hvað akfær bílvegur yfir heiðina kostar í heild, þá sjer maður fram á, að með álíka háu fjárframlagi á ári muni það taka um 16–18 ár að gera bílfæran veg yfir Fjarðarheiði, svo að slíkar framkvæmdir kæmu ekki til nota fyrir eldri hluta núlifandi kynslóðar. Ef á annað borð á að ráðast í að leggja þennan veg, þá er ekki forsvaranlegt, að það standi yfir nema 4–5 ára skeið, þá gæti vegurinn komið núlifandi kynslóð að notum og jafnframt styttri tími sem lagning hans yrði hemill á öðrum nauðsynlegri framkvæmdum.
Af þessum ástæðum, sem nú eru taldar, verð jeg að segja það, að lítil eftirsjón mundi mjer þykja í því, þó að fjárveiting þessi fjelli niður að þessu sinni, enda væru það hláleg örlög mála að austan, ef smávægilegar till, um fjárveitingu til brýnustu hluta yrðu feldar, en aðrar stærri samþ., og það till., sem tvímælalaust eru rjettminni og ýmsir telja rjettlausar með öllu.
Þá vil jeg að lokum leyfa mjer að víkja fáeinum orðum að brtt., sem jeg ber fram ásamt hv. 1. þm. S.-M. og er sú XX. í röðinni á þskj. 646. Brtt. þessi fer fram á fjárveitingu til þess að gera Lagarfoss laxgengan, 1/3 kostnaðar, alt að 3500 kr. Eins og jeg drap á áðan, höfum við borið fram við fyrri umr. fjárl. till., er fór í sömu átt, en var þó talsvert víðtækari. Þar var tekin með bygging klakhúss og ennfremur farið fram á nærri helmingi hærri upphæð til fossins sjálfs, og fram yfir venju, með því að biðja um 2/3 kostnaðar, í stað þess að venjan er, að styrkur ríkisins er 1/3 kostnaðar. Ástæðunni til þessa hefi jeg lýst áður, og er hún samkvæmt áliti Pálma kennara Hannessonar og náttúrufræðings: að þar sem ekki þarf að vænta tekna af þessari starfsemi fyrr en jafnvel eftir áratugi, en hinsvegar hefði slík tilraun í allstórum stíl almenna þýðingu fyrir landið, þá væri ekki nema rjett, að ríkið ljeti nokkru meira fje af höndum í þessu efni en venja hefir verið til áður. En sú till. átti hvorki þeim skilningi að mæta nje þeim vinsældum að fagna hjá hv. þdm., að hún næði samþ.
Með þeirri till., er við berum nú fram, er aðeins farið fram á endurveiting á styrk, sem staðið hefir í fjárl., en ekki verið notaður. Þó skal jeg ekkert fullyrða um það, hvort ráðist muni í þessa framkvæmd fremur en áður, en taldi þó rjettara að heimila styrkinn, því það er altaf leiðinlegt, ef það kemur á daginn, að neitun Alþingis um smávægilega fjárveitingu standi í vegi fyrir nytsömum tilraunum í þarfir almennings. Hinsvegar þarf þá ekki að greiða þessa upphæð, ef ekki verður ráðist í að gera fossinn laxgengan.
Jeg get varla hugsað mjer, að till. þessi verði feld, þar sem samþ. hefir verið till. um endurveiting á styrk til þess að gera foss í Norðurá laxgengan, og þar sem þingið hefir ennfremur sýnt áhuga sinn fyrir þessum málum með því að veita marini í Húnavatnssýslu styrk til fiskiræktar í vötnum norður þar.