15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1972 í B-deild Alþingistíðinda. (876)

16. mál, fjárlög 1930

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg vildi aðeins bæta nokkru við það, sem hæstv. fjmrh. sagði um fjárframlög ríkisins til vegamála á árinu 1930. Annar minni hl. fjvn. vill láta þau haldast óbreytt, eins og hv. Ed. gekk frá þeim. Nú býst jeg við, að mönnum verði þessi lækkun bærilegri, er þeir hyggja að því, að ef næsta ár verður jafngott með vinnu og yfirstandandi ár, þá er alls ekki hægt að framkvæma allar þær vegalagningar og aðrar framkvæmdir, sem fje hefir verið veitt til. Nú er svo ástatt, að ekki er hægt að fá menn til þess að gera þær framkvæmdir, sem lögákveðnar eru. T. d. hefir vegamálastjóri tjáð mjer, að hann hafi ekki getað látið gera vegarspotta að brúarstæði einu á Suðurlandi, vegna vantandi mannafla, og þar af leiðandi ekki getað komið máttarviðunum í brúna á brúarstæðið í tæka tíð. Hinsvegar sje brúin smíðuð og ekki standi á öðru en mannafla til þess að koma henni upp. Þessu er vert að gefa gaum, því enda þótt gott sje, að opinberar framkvæmdir sjeu eins miklar og mögulegt er, þá er þýðingarlaust að gera ráð fyrir þeim meiri en svo, að hægt verði að hrinda þeim í framkvæmd. Ef næsta ár verður hinsvegar harðæri og tekjur ríkissjóðs rýrari en þær eru áætlaðar nú, þá er ekki um nema tvent að velja fyrir stj., að taka lán til þeirra framkvæmda, sem fjárl. gera ráð fyrir, og væri það út af fyrir sig forsvaranlegt, eða hitt, að draga saman seglin á sviði verklegra framkvæmda. Nú er það vitanlegt, að hvorki þing nje stj. getur vitað nokkuð fyrir um það, hvernig árferði verður næsta ár. Stj. verður því að vera við því búin að láta ekki framkvæma alt, sem fjárl. gera ráð fyrir. Sú leiðin verður æ heppilegri en hin, að safna lausaskuldum sem þessu svarar. Að þessu vel athuguðu ættu þeir hv. þm., sem óánægðir eru með þessa lækkun, að geta sætt sig við hana, enda mega þeir vel skilja það, að ef illa árar, þá getur ríkið ekki staðið við fjárlögin út í æsar. Ætti þingið að sjá sóma sinn í því að ganga vel og tryggilega frá fjárl., í stað þess að hver einstakur þm. reyni að ota sínum tota og síns kjördæmis.

Þá hefir hv. 1. þm. Reykv. flutt till. um að veita einkaskóla einum í Reykjavík 2000 kr. ríkisstyrk. Hjer er að vísu ekki um stórvægilega upphæð að ræða, en hinsvegar skal jeg einungis benda á það, að þessi skóli er stofnaður af fólki, sem eigi vildi láta svo lítið að nota skólastofnanir ríkisins, eða leit svo á, að það þyrfti þeirra ekki með. Heldur ríkið þó uppi tveim slíkum almennum skólum, sem Reykvíkingar hafa aðgang að og betri aðstöðu en aðrir landahlutar. En við því er ekkert að segja, þótt menn stofni og starfræki einkaskóla, en vitanlega verða þeir að ala önn fyrir þeim sjálfir og upp á sinn kostnað. Þessi skóli hefir öll einkenni þeirra einkaskóla, sem algengir eru meðal efnaðri stjettanna erlendis; að þeim stendur fólk, sem vill hafa sjerstaka kenslu og með sjerstöku sniði handa sínum börnum. Það er fjarri mjer að álíta nokkuð óheilbrigt við þetta; að mínu viti eru mörg verkefni fyrir slíkan einkaskóla í bæ upp á 25 þús. íbúa. Að jeg er því fremur mótfallinn, að þessi skóli sje tekinn upp á arma fjárveitingarvaldsins, kemur ekki til af andúð gegn skólanum sem slíkum, heldur af því, að jeg álít það tæplega hugsunarrjett. Þetta er stefnumál en ekki fjármál. Ríkið getur tæplega byrjað á því að styrkja slíka skóla, vegna þess fordæmis, sem það gæfi með því. Hinsvegar á Reykjavíkurbær að bera hitann og þungann af þessum skóla, alt hvað hinir beinu hlutaðeigendur sjá ekki sóma sinn í því að leita ekki á náðir hins opinbera með þessa stofnun.

Þá vildi jeg gefa eina skýringu viðvíkjandi Flensborgarskólanum. Vildi jeg beina þeim tilmælum til hv. deildar, að hún ljeti ákvæði hv. Ed. standa óbreytt. Vona jeg, að deildin fallist á, að það sje ekki að öllu leyti heppilegt að láta ríkisskólanemendur greiða skólagjöld. Sú venja hefir þó viðgengist, enda er mjer kunnugt um, að þeirri reglu hefir verið fylgt víðast; a. m. k. er mjer kunnugt um, að bæði núv. og fyrv. rektor mentaskólans hafa gengið ríkt eftir skólagjöldunum. Nú hefir hv. 2. þm. G.-K. tekið þessa úreltu klásúlu upp aftur, að innanbæjarnemendur greiði skólagjöld eftir sömu reglum og við ríkisskólana, nema að þau renni í skólasjóð. Nú hafa skólagjöldin ekki verið innheimt í Flensborg síðastliðin 3 ár, og fjárlögin þar með þverbrotin 3 sinnum. Væri það ærin ástæða til þess að svifta þann skóla ríkisstyrk með öllu, ef ekki bæri fremur að líta á þörf æskunnar en verðleika forráðamannanna. Reyndar hefir engin landsstj. viljað fara svo harkalega að, en þetta dæmi sýnir ljóslega, hvaða afleiðingar það hefir að láta skólann starfa algerlega eftirlitslaust af hálfu hins opinbera, og styrkja hann sjerstaklega. Ef skólinn hinsvegar er settur á bekk með öðrum hjeraðsskólum landsins, eins og rjett er, þá getur fræðslumálastjóri litið eftir skólanum. Hingað til hefir skólanum verið afhentur ríkisstyrkurinn skilmálalaust og án nokkurs eftirlits, enda ber skólinn þess merki, að lítið er gert til að hlúa að honum. Jeg segi þetta ekki til áfellis neinum; það er ofureðlilegt, að skólinn sje ekki starfræktur á sem bestan hátt undir núv. fyrirkomulagi. Þess vegna gefur það að skilja, að full ástæða er fyrir ríkið að hafa eftirlit með þessari skólastofnun eins og öðrum hliðstæðum skólum. Með því er aðstandendum skólans gefið töluvert aðhald með að fara ekki illa með hann, en að öðru leyti gerir stj. ráð fyrir jafnháum styrk til hans og hv. 2. þm. G.-K. fer fram á. Það, sem á milli ber, er það, að í öðru tilfellinu er skólinn settur á bekk með öðrum unglingaskólum landsins og settur undir eftirlit kenslumálastjórnarinnar, en í hinu að láta hann starfa eftirlitslausan, eins og hingað til hefir viðgengist. Ætla jeg, að ekki þurfi orðum um það að eyða, hvort sje heppilegra, enda munu hv. þdm. sýna við atkvgr., að þeir hafi fullan skilning á þessu máli. Læt jeg svo úttalað um þetta atriði.

Þá hefir mjer borist til eyrna, að hv. 3. þm. Reykv. hafi, fyrir munn annars minni hl. fjvn., mælt á móti þeirri till., sem Ed. hefir tekið upp í fjárl., nefnilega að ríkið keypti prentsmiðjuna Gutenberg og starfrækti hana sem ríkisprentsmiðju. Mjer þykir ekki ósennilegt, að um þetta atriði verði nokkrar umr., sem líka sjálfsagt er, og því vil jeg leitast við að gefa nokkra skýringu á þessu máli.

Eins og hv. þdm. rekur minni til, var í fyrra samþ. þál. um það, að stjórnin ljeti rannsaka, hvort tiltækilegt væri að setja hjer upp ríkisprentsmiðju. Stj. gerði þetta og fjekk hæfan mann til þess að takast þessa rannsókn á hendur. Niðurstaða hans var sú, að um þrjá möguleika væri að ræða. Í fyrsta lagi að reisa nýja prentsmiðju, kaupa vjelar, hús og allan útbúnað. Þetta væri nú að vísu ánægjulegast, en á það ber að líta, að ríkissjóður á í mörg horn að líta, og fer þá mjög eftir því, hvort handbært fje er fyrir hendi á þeim og þeim tíma. Og það er einnig hagkvæmara fyrir ríkisstj. að þurfa ekki að leggja nýja skatta á skattborgara landsins nje taka ný og ný lán til slíkra framkvæmda. Það eru almennar ástæður með og á móti þessari leið. Þá kemur önnur leiðin, að kaupa einhverja af prentsmiðjum bæjarins. Þær eru fjórar og þrjár af þeim gamlar. Sú stærsta þeirra er prentsmiðjan Gutenberg. Þar gerist mestur hluti þess prentverks, sem ríkið lætur vinna. Hinar eru Fjelagsprentsmiðjan og Ísafoldarprentsmiðja; þær eru báðar minni, en prentsmiðjan „Acta“ er þeirra yngst og minst. Nú er sennilega ekki hægt að festa kaup á Fjelagsprentsmiðjunni nje Ísafoldarprentsmiðju með aðgengilegum kjörum, en hinar eru báðar fáanlegar til kaups eftir samkomulagsverði. Þess vegna er önnur leiðin í þessu máli að kaupa prentsmiðjuna „Acta“ og þriðja leiðin að kaupa „Gutenberg“, og það er sú leið, sem fjárlagafrv. gerir ráð fyrir. Með kaupum á „Acta“ mælir það, meðal annars, að henni fylgja nýjar vjelar og áhöld, en á móti mælir það, að hún er of lítil og húslaus, svo að yrði að byggja yfir hana. Hinsvegar er svo ástatt hjá „Gutenberg“, að eigendurnir eru allfúsir að selja hana, enda þótt dráttur hafi orðið á formlegu tilboði. Niðurstaða þeirrar rannsóknar, sem fram hefir farið að undirlagi stj., er sú, að þetta sje heppilegasta leiðin í þessu máli. Jeg verð að telja það mjög forsvaranleg kaup, ef landið fær prentsmiðjuna fyrir 150 þús. kr., eins og til orða hefir komið. Fylgja henni þá lóð, hús og vjelar. Það mun láta allnærri sanni, að sá sparnaður, sem við þetta ynnist, myndi greiða þetta fje á svo sem þremur árum. Jeg hefi í Ed. gert ráð fyrir 3–5 árum fyrir varúðarsakir. Það mun láta nærri, eftir þeim kunnugleikum, sem við leikmenn höfum til þessara mála, að ríkið greiði fimtungi meira fyrir prentun en það þyrfti, ef það ljeti sjálft prenta. Nú er prentað árlega fyrir um 300 þús. kr., og næmi þá sparnaðurinn 50–60 þús. kr. árlega. Nú er og fullvíst, að eigi þarf að kaupa nýjar vjelar nje önnur áhöld nje heldur að byggja yfir hana. Hinsvegar væri það ekki góð búmenska, ef ríkið reisti nýja prentsmiðju, en hafnaði kaupunum á „Gutenberg“, vegna þess, að eins og sakir standa, þá er „Gutenberg“ í raun og veru eign landsins, því að Landsbankinn á hana að mestu leyti. Hinsvegar má búast við, að ef landið hafnar þessum kaupum, þá muni Landsbankinn tapa þessu fje að mestu leyti. Þess vegna hefi jeg komist að þeirri niðurstöðu, að lítil líkindi sjeu til þess, að landið láti reisa nýja prentsmiðju, þrátt fyrir ýmsa kosti þess, en að hinsvegar muni alt snúast um það, að yfirtaka eina af þeim gömlu prentsmiðjum, sem þegar eru til. Þá er auðvitað sjálfsagt að taka helst þá, sem nóg hefir húsrúm og fullnægt getur prentunarþörf landsins.

Viðvíkjandi fjárhagshlið þessa máls skal jeg taka það fram, að kaupverðið er ekki nema sem svarar helmingi þess árlega prentunarkostnaðar, sem ríkið þarf að greiða. Áætlun við að kaupa „Gutenberg“ er því ekki nema sem svarar missiriseyðslu ríkissjóðs fyrir prentvinnu. Hinsvegar má og geta þess, að fyrir rás viðburðanna bætast ný og ný verkefni fyrir landið á þessu sviði, t. d. þjóðvinafjelagsbækumar. T. d. er það nú að gefa út hið stórkostlega rit um Jón Sigurðsson og nýtur í því skyni svo mikils styrks af ríkinu, að heita má, að sje um ríkisútgáfu að ræða. Ennfremur mun Menningarsjóður bráðlega hefja bókaútgáfu í stórum stíl, og má sú prentun teljast ríkisprentun. Loks má geta þess, að nú er í aðsigi að gefa út gullaldarrit Íslendinga, og hefir til þess verið valin sjerstök leturtegund, sem geymd er í „Gutenberg“. Þetta sýnir, að það prentverk, sem ríkið hefir með höndum, fer sívaxandi, og að alt hnígur að því, að einmitt prentsmiðjan „Gutenberg“ sje sjerstaklega til þess fallin að annast prentun fyrir ríkið.

Mjer finst það hafa mikið að segja, að útgefendur þessara gullaldarrita sem leggja sig í framkróka til þess að fá fráganginn sem allra prýðilegastan, þeir semja við Gutenberg. Á því er auðsjeð, að þeir gera ráð fyrir að fá þetta gert þar á myndarlegan hátt, enda er það ekki að efa.

Það virðist óhugsandi, að ríkið hafi skaða af prentsmiðjukaupunum, þar sem Landsbankinn er sá eiginlegi eigandi að Gutenberg. Gutenberg er vegna stærðarinnar vel fallin til þess að vera ríkisprentsmiðja. Húsið er að vísu gamalt, en það er á góðum stað í bænum, vjelarnar góðar og altaf hægt að bæta við þær. Má gera ráð fyrir, að hún endist ennþá í 25–30 ár með sæmilegu viðhaldi. Húsinu fylgir allstór lóð, og er það mikill kostur. Þegar á alt þetta er litið, húsið, lóðina og vjelarnar, þá er áreiðanlegt, að verðið er lágt í samanburði við, hvað það mundi kosta að byggja nýja prentsmiðju og kaupa alt til hennar. Ofan á þetta bætist, að salan verður ekki nema á pappírnum. Landsbankinn er sá virkilegi eigandi prentsmiðjunnar, því að hann hefir lánað henni stjórfje, og jeg efast um, að bankinn fái nokkurntíma þessa peninga aftur, ef kaupin fara ekki fram. Það er því hagsmunamál hans, að úr þessu verði. Ríkið getur alveg sagt fyrir um skilmálana. Það ræður því alveg, hvort það borgar Landsbankanum verð prentsmiðjunnar á 15, 20 eða 25 árum. Það er hægt að gera þessa verslun án þess að borga nema sárlítið af kaupverðinu í byrjun ársins 1930, en annars láta prentsmiðjuna borga sig á mörgum árum, því að hjer er aðeins verið að færa þessa eign frá einni stofnun ríkisins til annarar.

Menn geta væntst þess, að með þessu sparist ríkinu einar 40–60 þús. kr. á ári. Jeg ætla ekki að fara út í að líkja þessu við þjóðnýtingu, þó að sumir kalli það ef til vill því nafni. Jeg býst við, að þeir, sem ekki hafa trú á fjármálamensku núv. stj., geri ráð fyrir, að þetta verði í ólestri meðan hún fer með völd; en jeg vil þá benda þeim á það, að hún verður eflaust ekki eilíf í þessum valdasessi. Hvaða stj. sem er hlýtur að reyna að stjórna þessu fyrirtæki eftir bestu getu, og ef því er ekki vel stjórnað, þá geri jeg ráð fyrir, að andstöðuflokkarnir láti til sín heyra. Þessi mótbára er því ekki mikil á metunum, því að ef landið á annað borð eignast þessa prentsmiðju, þá verður hún áreiðanlega miklu langlífari heldur en eitt ráðuneyti.

Jeg hefi frjett, að hv. 3. þm. Reykv. hafi fundið að því að þetta mál skyldi koma svo seint fram, og skal jeg útskýra það stuttlega. Því er þar til að svara, að fjelagið, sem á Gutenberg, var svo lengi að afráða það við sig, hvort það ætti að selja prentsmiðjuna eða ekki. Það var leitað til þess strax um nýár viðvíkjandi þessu og óskað eftir skjótum svörum. Forstjórinn var hinn liðlegasti, en það er nú eins og gengur með þessi gömlu fjelög, að þau þurfa langan tíma til þess að taka svona mikilvægar ákvarðanir, og svarið kom ekki fyr en fjárl. voru komin til umr. í hv. Ed. Ef nokkuð átti að verða úr þessu á næsta ári, þá var ekki um annað að ræða en að fara fjárlagaleiðina. Þar sem Alþ. hafði óskað, að málið væri undirbúið, þá var það ekki nema sjálfsagt, og nú eiga menn kost á að kynnast þessu. Hvað kostnaðinum viðvíkur, þá er það áreiðanlegt, að á þessu mundu sparast a. m. k. 40–60 þús. kr. á ári, og munar þá mikið um hvert árið. Var því sjálfsagt að bera þetta fram undir eins og hægt var, og það því fremur, sem hver hv. þm. getur gert það upp við sjálfan sig, hvort honum finst hyggilegt að leggja út í þetta eða ekki.

Jeg mintist á það í hv. Ed., að á þeim tíma þegar hv. 3. landsk. var landsverkfræðingur, þá lá fyrir honum alveg sama vandamálið og hjer er á ferðinni. Hann stóð þá fyrir öllum brúargerðum og vegamálum landsins, og varð að kaupa öll áhöld og alt meiriháttar járnsmíði frá útlöndum. Þá fór svo fyrir honum, að hann sá sjer ekki annars úrkosta en að fá samþykki þáv. stj. til þess að setja á stofn landsverksmiðju, sem gæti haft þetta með höndum. Hann ljet síðan kaupa gamalt hús hjer í vesturbænum, sem var miklu ljelegra heldur en Gutenberg, og setti þar upp þessa smiðju. í þessari smiðju eru smíðaðar allar járnbrýr og gert við áhöld, sem ríkið yrði annars að kaupa frá útlöndum. Jeg álít, að hv. 3. landsk. hafi sýnt alveg rjetta búmensku í þessu, og þáv. stj. gerði rjett í því að styðja hann í þessu máli, og Alþ. hefir einnig gert rjett með því að hlynna að þessu. Þarna var ekki um neina áhættu að ræða, ríkið var sjálft atvinnurekandinn og jafnframt kaupandi að framleiðslunni. Eins er ástatt með prentsmiðjuna. Ríkið á að reka hana sjálft, en leggur henni til verkefnið og kaupir alla hennar vinnu. Ríkið lætur Gutenberg prenta mikið fyrir sig á hverju ári og er besti viðskiftavinur hennar, en fær þó engin hlunnindi hjá henni. Það virðist því vera miklu hreinlegra, að ríkið eigi Gutenberg alveg og hafi sjálft af henni þann hagnað, sem hægt er. Ríkið getur lagt prentsmiðjunni til nóg verkefni, og þess vegna verður ekki um neina áhættu að ræða. Þetta er ekki sambærilegt við það, ef ríkið færi t. d. að gera út togara eða reka kúabú. Þá væri áhættan mikil vegna markaðsins, sem þá væri kominn undir þörf og kaupgetu neytendanna, og það er á þeim grundvelli, að því er haldið fram, að þjóðfjelagið geti ekki lagt út í þetta. En hjer er engu slíku til að dreifa. Eins og allir vita, verður ríkið að láta prenta fyrir sig og hefir þannig sjálft sinn eiginn markað.

Það er auðvelt að gera hverjum leikmanni skiljanlegt, hvers vegna það getur verið gróðavænlegt fyrir ríkið að eiga Gutenberg. Hún er að vísu ekki gróðafyrirtæki nú, og það eru hinar prentsmiðjurnar ekki heldur. Þær eru víst allar heldur fátækar, nema ef til vill ein. Það gæti nú litið svo út, að það væri mótsögn í þessu, að þar sem Gutenberg ber sig tæplega eða ekki meðan hún er í eigu einstakra manna, þá væru ekki líkur til að ríkið gæti sparað neitt á að eiga hana. En þetta liggur í þeim kringumstæðum, að prentsmiðjurnar hafa ekki vissan markað fyrir það, sem þær prenta. Þær álíta, að einn markaður sje verulega góður, og það er ríkismarkaðurinn. Þar er mikil atvinna og skilvís borgun.

Það vill svo til, að prentsmiðjan Acta er í eigu eins af hinum mest áberandi andstæðingum mínum í stjórnmálum, en jeg er kunnugur manni, sem starfar þar, og hefi látið þessa prentsmiðju vinna ýmislegt fyrir mig. Það hittist líka svo á hjer á fyrri þingum, þegar jeg var í andstöðuflokki stj., að þá sá prentsmiðjan Acta um prentun á þáltill. og fyrirspurnum til stj. Á þeim árum fjekk jeg orð fyrir að framleiða nokkuð mikið af þessu, og þá var ekki laust við, að jeg fengi óorð af því að jeg væri að styðja þennan andstæðing minn með því að veita prentsmiðju hans góða atvinnu. Það var líka svo, að það munaði ekki svo lítið um þetta. Acta er lítil prentsmiðja, sú minsta af hinum stærri prentsmiðjum í bænum, og það skifti virkilega miklu fyrir hana, að mikið væri framleitt af þessu. Þetta voru bestu viðskiftin og voru mjög þýðingarmikil, þó að þau væru ekki meiri en þetta. B-deild þingtíðindanna, sem Ísafold prentar, er feitur biti, og kostaði sú prentun 30 þús. kr. í fyrra. Öll prentun fyrir það opinbera þykir mesti hvalreki fyrir prentsmiðjurnar. Það eru bestu viðskiftin, sem eru altaf vel og skilvíslega borguð. Prentun á hinum stærri dagblöðum eins og Vísi og Morgunblaðinu gefa líka mikla og örugga vinnu, en svo er líka þar með upp talið. Þegar þessu sleppir, prentun fyrir það opinbera og stærstu dagblöðunum, þá verða prentsmiðjurnar að leggja sig eftir óvissri atvinnu, og þar tapa þær. T. d. er það ekki lítið, sem allar prentsmiðjurnar hafa tapað á blöðum, sem gefin eru út í eitt ár eða skemmri tíma, en gefast svo upp í óbotnandi skuldafeni. Sama er að segja um marga bókaútgefendur. Þeir skulda stórar upphæðir í prentsmiðjunum, og mikið af þeim skuldum verður aldrei borgað. Þess vegna er það, að prentsmiðjurnar hafa ekki önnur ráð en að leggja mikið á skilamennina. Þeir verða að borga brúsann og taka á sig töpin, sem vanskilamennirnir eru valdir að. Þetta er alveg eins og í bönkunum, þegar þeir verða að taka háa vexti af skilamönnunum til þess að vinna upp töpin. Það er því áreiðanlegt, að ríkið verður að borga háa áhætturentu til prentsmiðjanna, af því að það er besti og stærsti viðskiftavinur þeirra, og sá viðskiftavinurinn, sem heldur þeim uppi.

Það, sem vinnst með því að ríkið eigi sína eigin prentsmiðju, er aðallega það, að þá sleppur það við að borga þessa áhætturentu. Það lætur nær eingöngu vinna fyrir sjálft sig og sleppur þannig við að borga fyrir skakkaföllin, sem óskilamennirnir valda. Þetta er sparnaðarmöguleikinn. Þetta hefir verið á döfinni síðan í tíð Hannesar Hafsteins. Það sagði mjer einn af hans gömlu fylgismönnum, að hann hefði haft hug á að undirbúa þetta mál, en ekki endst aldur til að ljúka því. Það er ekki því að leyna, að þetta mál hefir mætt mikilli andstöðu hjá þeim, sem að prentsmiðjunum standa, því að þeir vilja ekki missa bestu viðskiftin, og jeg lái þeim það alls ekki. En þetta er einmitt besta sönnun þess, hvað það er góð búmenska hjá ríkinu að eiga sjálft prentsmiðju, en það verður auðvitað ekki eins gott fyrir þá, sem hafa haldið sjer uppi með ríkisprentun, sem er borguð 20–25% hærra heldur en þarf.

Jeg get líka bent á það, að með þessu nýja fyrirkomulagi verður hægt að viðhafa meiri hagsýni heldur en gert er. T. d. er nú svo ástatt, að skjalapartur þingtíðindanna er prentaður með annari línulengd en stjórnartíðindin, en það hefir í för með sjer, að það verður að rífa upp allan skjalapartinn og setja hann á nýjan leik í annari prentsmiðju. Þetta eru fjarstæð vinnubrögð, en svona verður það, af því að hver prentsmiðja vill reyna að fá sem mest af þessu fyrir sig og reynir að gera sem mest úr því verkefni, sem henni er fengið í hendur. Það eykur vinnuna, ef ráðdeildarleysið er nógu mikið.

Jeg get heldur ekki varist þeirri hugsun, þegar jeg lít yfir þetta stóra og fallega letur á Alþingistíðindunum, að þetta sje nú gert með vilja hjá prentsmiðjunum og í þeim tilgangi að fá meiri viðskifti.

Jeg skal svo ekki þreyta hv. þdm. með fleiri dæmum og get látið þessi tvö nægja til þess að benda á, að það er áreiðanlega hægt að spara mikið með því að kaupa prentsmiðju. Jeg tel líka víst, að allir, sem ekki líta á þetta með hlutdrægni, hljóti að sjá, að hjer er um góða búmensku að ræða. Það er hægt að kaupa nógu stóra prentsmiðju alveg án þess að finna til áhættu, og verð hennar er ekki nema helmingur af árlegum prentunarkostnaði ríkisins. Prentsmiðjukaupin spara áreiðanlega 40–60 þús. kr. á ári, og þess vegna er um að gera að láta þetta ekki dragast lengur. Það munar mikið um þetta á hverju ári, og jeg get ekki sjeð, að ríkið sje svo vel efnum búið, að það hafi ráð á að fresta þessu lengur. Það er alveg ástæðulaust að vera gramur við stj. eða Gutenberg fyrir það, hvað þetta kom seint fram. Menn eiga bara að taka þessu tveim höndum, ef þeir á annað borð vilja vera „praktiskir“ og spara.