15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í B-deild Alþingistíðinda. (878)
16. mál, fjárlög 1930
Magnús Guðmundsson:
Jeg er einn þeirra, sem helst hefði kosið, að þessi hv. d. hefði gengið að fjárlögunum óbreyttum eins og þau komu frá hv. Ed. En úr því að farið er að breyta þeim, fanst mjer jeg mega til að koma með brtt. eins og hinir. En það er einkennilegt við mína brtt., samanborið við aðrar, að hún hefir ekki í för með sjer nein útgjöld fyrir ríkissjóðinn. Hún gengur í þá átt að gera ekkju Þorleifs Jónssonar póstmeistara jafnhátt undir höfði og 126 ekkju Bjarna heitins Jónssonar frá Vogi, með því að endurgreiða henni úr lífeyrissjóði embættismanna það, sem maður hennar hafði í hann greitt. Þetta getur ekki orðið fjárhagsatriði fyrir sjóðinn og jeg sje ekkert athugavert við þessa endurgreiðslu, enda hafa báðar deildir þingsins orðið sammála um þetta að því er snertir hina ekkjuna.
Jeg hirði ekki að tilfæra hjer aftur þær ástæður, sem jeg færði fram að því er snertir ekkju Bjarna heitins Jónssonar, en hjer um gilda þær hinar sömu að öllu leyti. Hið eina, sem gæti skilið á milli, er það, að hinn látni póstmeistari hafði notið styrks úr sjóðnum um 3 mánuði, og er þá ekki annað en draga það frá. Fleiri orð vona jeg, að jeg þurfi ekki að mæla fyrir þessari till.
Út af till., sem jeg flutti við 3. umr. þessa máls, um aukin eftirlaun Sigurðar Kvarans hjeraðslæknis, og þá var samþ., vil jeg minna á, að jeg tók það þá fram, að mín tilætlun væri sú, ef ekki kæmu andmæli fram, að hann fengi þennan eftirlaunaviðauka frá þeim tíma, er hann ljet af embætti. Nú hafa engin mótmæli komið fram, mjer vitanlega, og geng jeg því út frá, að byggja megi á þessu.
Jeg skal ekki fara út í að ræða þær till., sem fram hafa komið yfirleitt, en það er altaf svo, að þegar þingið er komið í vandræði með að skila fjárl. tekjuhallalausum, þá er úrræðið að ráðast á verklegar framkvæmdir í landinu, og þá fyrst vegina. Þó held jeg, að fátt sje jafnnauðsynlegt okkar þjóðfjelagi eins og samgöngubætur á landi.
Jeg tók eftir því, að hæstv. dómsmrh. sagði, að ef fje vantaði til einhvers þess, sem þingið hefir samþ., þá mundi það verða látið koma niður á verklegum framkvæmdum, og einkum vegunum. En úr annari átt hefi jeg heyrt, að ef fje verði fyrir hendi, muni því verða varið til vegagerða umfram það, sem fjárl. ákveða. Hæstv. fjmrh. taldi þetta hinsvegar raunverulega lækkun. Enda er það eðlilegt, að hver varasöm stj. vilji halda sig við fjárl. og ekki gefa mönnum vonir um annað eða meira. Venjulega vill verða nóg umframeyðsla á vegafje, þó ekki sjeu fyrirfram gerðar ráðstafanir til þess. En út af ummælum hæstv. dómsmrh. um það, að dregið kynni að verða úr framkvæmdum, þá vil jeg vona, að vegirnir verði ekki þar fyrir barðinu á eyðsluseminni, heldur þá eitthvað af þeim miklu fyrirtækjum, sem hæstv. ráðh. sjálfur hefir fengið samþ. Þó að ýmislegt sje nú athugavert, sem vert væri að gera að umtalsefni, þá tekur þó út yfir, þegar verið er að setja löggjöf um atvinnufyrirtæki í fjárl. sjálf, eins og nú á sjer stað um prentsmiðjuna, og sjerstaklega er þetta athugavert, þegar alveg vantar áætlun um rekstrarkostnað fyrirtækisins. Sú hliðin skiftir vitanlega mestu máli.