15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2030 í B-deild Alþingistíðinda. (882)
16. mál, fjárlög 1930
Jón Sigurðsson:
* Sökum þess að nú er orðið alláliðið dags, mun jeg stytta mál mitt eftir föngum.
Undanfarin 2 ár hefir það verið venja, að Nd. hefir gengið að fjárl. eins og Ed. hefir gengið frá þeim. Lítur nú helst út fyrir, að þetta hafi stigið hv. Ed. til höfuðs, því síðan jeg kom til þings hefir hún aldrei sýnteins mikla hlutdrægni í meðferð á fjárl., sjerstaklega hvað snertir till. einstakra þm. í Nd. Virðist svo, sem þær till. hafi aðeins verið metnar á einn mælikvarða. En sá mælikvarði virðist hafa verið pólitískir verðleikar flm. Til þess að sýna, að jeg mæli þetta ekki út í loftið, skal jeg nefna nokkur dæmi.
Ein till., er hv. Ed. feldi niður, var lítið tillag til gagnfræðaskóla Reykjavíkur, að upphæð 2000 kr. Flm. þessarar till. var hv. 3. þm. Reykv. En á sama tíma hækkar hún styrkinn til Blönduósskólans upp í 4000 kr. og bætir við nýjum lið til húsmæðrafræðslu, 20 þús. kr. Þá fellir hún niður styrk til sandgræðslu í Rangárvallasýslu, 12 þús. kr., og til dragferju á Hólsá, 1500 kr., samtals 13500 kr. En á sama tíma er ekkert hreyft við till., sem hv. þm. V.-Sk. flutti í Nd. og sem fór fram á styrk til sandgræðslu og fyrirhleðslu, samtals ca. 12 þús. kr. Maður hefði getað ályktað sem svo, að þetta alt ætti að verða samferða. Jeg nefni ekki þessar till. hv. þm. V.-Sk. af því að jeg álíti, að þær eigi ekki rjett á sjer, heldur tek jeg. þær aðeins sem dæmi. Svo fellir og hv. Ed. niður styrk til Kristins Björnssonar læknis. Hún hækkar að vísu um leið námsstyrkina, en þar er ekkert tekið fram, að þessi maður skuli fá styrk af því fje. En á sama tíma og hún gerir þetta er látinn standa styrkur til Jakobs Gíslasonar, og er ekki hægt að sjá, að önnur ástæða sje því til grundvallar en sú, að þessi maður mun hafa farið til Rússlands í fyrra og mun vera allhandgenginn aðalstuðningsflokki stj. Þannig mætti margt tína til, er sýnir meðferð hv. Ed. á till. okkar Nd.- manna, en jeg ætla að láta þetta nægja.
Þá er það till. meiri hl. fjvn. Ed. um niðurskurð á framlögum til vega. Er ekki hægt að sjá, að n. hafi þar fylgt ákveðinni reglu, því hún sker niður alt frá 1/7 til 1/3 af upphæðunum. En að einu leyti hefir hún þó fylgt ákveðinni reglu, nefnil. að hreyfa ekki þeim upphaflegu upphæðum til vega í sínum eigin hjeruðum. T. d. hefir hún ekki hreyft við þeim upphæðum, sem ætlaðar eru til vega í Húnavatnssýslu og Múlasýslu. Þegar svona er að farið, er ekki ástæðulaust, þó mönnum sýnist ástæða til þess fyrir Nd. að ráða einhverja bót á þessum málum. Það er því ekki að ófyrirsynju, að minni hl. fjvn. hefir lagt til, að þessar upphæðir verði færðar í sitt fyrra horf.
Hæstv. fjmrh. gerði sjerstakl. að umræðuefni till. okkar minni hl. í fjvn. Skal jeg ekki fara langt út í það, en aðeins svara honum fáum orðum. Hann talaði fyrst um till. okkar um að hækka tekjubálkinn um 50 þús. Hann tók það rjettilega fram, að tekjurnar aukast ekkert við það, þó þær sjeu áætlaðar hátt, en engu að síður er þetta alveg sama aðferð, er hann og flokksbræður hans í Ed. hafa viðhaft. Því þar hækkuðu þeir tekjubálkinn um 100 þús. kr. Og eftir mínum kunnugleika á þessum málum, þá hygg jeg, að okkar till. sjeu alveg eins rjettmætar og þær, er hv. Ed. samþykti.
Þá voru þeir báðir hæstv. fjmrh. og hæstv. dómsmrh. að tala um það, að það þýddi ekkert að veita svona mikið fje til vega, því það mundi verða fullerfitt að fá menn til þess að vinna fyrir það. En jeg vil benda á það, að það lítur út fyrir, að stj. líti ekki sömu augum á þessar framkvæmdir og aðrar, því hún fer einmitt fram á að fá heimild til þess að láta reisa ekki alllítið skrifstofubákn hjer í Reykjavík, er ekki mun kosta minna en 1/4 milj. Get jeg ekki hugsað mjer, að það rísi upp án þess nokkur maður vinni við það. Hygg jeg, að ekki þurfi færri til þess að vinna við það en til þess að vinna fyrir þær 65 þús. kr. í vegum, er við höfum lagt til, að veittar verði umfram það, er hv. Ed. gerir ráð fyrir. Annars tel jeg ekki þörf á því að rökræða um vegagerð hjer á landi. Hefir oft fengist tækifæri til þess áður og það verið notað, og mun jeg því sleppa því að sinni.
Að einu leyti er jeg þó undrandi yfir því, að hæstv. stj. skuli vera svo ákveðin á móti till. okkar um framlög til vega. Þetta voru nefnilega upphaflega till. hæstv. stj. sjálfrar, og mjer er ekki ljóst, hvað fyrir henni vakir, þegar hún ber fyrst fram till. um aukna vegagerð, en lætur svo flokksmenn sína í hv. Ed. skera niður 1/5 af því framlagi, sem til þess er ætlað. Mjer er alls ekki ljóst, hverskonar skollaleikur er hjer á ferðinni.
Þegar litið er til ýmsra annara mála, sem útgjöld hafa í för með sjer, þá fer svo fyrir mjer og fleirum, að við förum að efast um, að sparnaðaráhugi hæstv. stj. liggi henni svo ríkt á hjarta sem hún vill vera láta. Það er ekki verið að tala um niðurskurð þegar á að leggja 1 milj. kr. í að byggja síldarbræðsluverksmiðju, eða þegar á að byggja skrifstofubákn í höfuðstaðnum fyrir 14 milj. kr. Svo á að láta ríkissjóðinn „spekulera“ í síld og ganga í stórfeldar ábyrgðir. Þá þarf ekki að spara. En þegar einhversstaðar á að fara að klípa utan úr, þá er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur og framlagið til vegagerða skorið við nögl. Það kemur harðast niður á sveitunum. Hæstv. stj. leggur svo mikla áherslu á að láta líta svo út, að fjárl. sjeu tekjuhallalaus, að hún svífist einskis. Hún hugsar ekkert um, þó hrúgað sje inn í 23. gr. lánsheimildum, sem nema stórfje, því að það hefir ekki áhrif á útkomuna. Það er aðalatriðið í hennar augum að sýnast. Hún vill láta fjárl. vera tekjuhallalaus á pappírnum, hvað sem það kostar, og þess vegna horfir hún ekki í að skera niður 1/5 af vegagerðafjenu. Slíkt er óhæfa. Jeg vona svo, að menn sjái, að brtt. okkar minni hl. á þskj. 646 eru svo sjálfsagðar og meinlausar, að þeir sjái sjer fært að samþ. þær.
Skal jeg svo ekki fara um þetta fleiri orðum, þar sem svo er orðið áliðið, enda þótt ástæða væri til að taka fleira til athugunar.
*Ræðuhandr. óyfirlesið