15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2036 í B-deild Alþingistíðinda. (884)

16. mál, fjárlög 1930

Jóhann Jósefsson:

Jeg ætla mjer ekki að lengja þessar umr. óþarflega, en vil þó geta þess, að jeg hefi komið hjer fram með brtt. viðvíkjandi veginum í Vestmannaeyjum, sem hv. fjvn. þessarar deildar hafði sett inn í frv., og lækkað framlagið frá því, sem upphaflega var farið fram á. Hv. Ed. hefir nú lækkað þetta framlag að nýju, en brtt. mín fer í þá átt að kippa þessu í lag og láta það vera eins og það var þegar frv. var afgr. út úr þessari hv. deild. Sama er að segja um sjúkrastyrk til Þorgils Þorgilssonar, sem var samþ. hjer, en hv. Ed. hefir þóknast að fella niður. Hv. Ed. hefir nú verið mjög átalin fyrir afgreiðslu sína á fjárl., og mig undrar það raunar alls ekki, þó þessi hv. deild taki því ekki með þökkum, hvernig þar er farið með hennar samþyktir. Ef sú venja á að geta haldist, að taka við fjárlagafrv. og samþ. það óbreytt eins og það kemur frá hv. Ed., þá verður um leið að vera tekin upp sú regla, að hv. Ed. sýni ekki hlutdrægni í fjárveitingum. Eins og hv. þm. Dal. sagði, þá er þessi hv. deild mannfleiri, og fjárlagafrv. er fyrst lagt hjer fram, svo að það virðist ekki vera ástæða til þess að láta hv. Ed. hafa úrslit fjárl. í hendi sjer.

Um aðrar brtt. ætla jeg ekki að tala, til þess að lengja ekki umr., en mun sýna afstöðu mína til þeirra við atkvgr.