15.05.1929
Neðri deild: 69. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2040 í B-deild Alþingistíðinda. (887)

16. mál, fjárlög 1930

Jón Ólafsson:

Svo sem hv. þdm. er kunnugt, flyt jeg hjer skriflega brtt. um, að frú Bríetu Bjarnhjeðinsdóttur sje veittur 1500 kr. ferðastyrkur til þess að sækja fund alþjóðakvenrjettindasambandsins í Berlín. Þessi kona hefir, eins og allir vita, haldið uppi málum kvenna hjer á landi um 50 ára skeið. Hún hefir altaf staðið fremst í flokki þeirra og starfað mikið að þjóðfjelagsmálum og fjelagsmálum kvenna. Því þarf jeg ekki að lýsa.

Nú langar hana til þess að sækja þennan fund, sem er kvenrjettindafundur og fjallar um þau mál, sem henni eru hjartfólgnust og hún hefir mest barist fyrir. Þó að hún sje orðin nokkuð öldruð, býr hún enn yfir svo miklum krafti og áhuga, að búast má við töluverðum árangri af för hennar.

Jeg þekki af eigin reynd starfsemi frú Bríetar. Jeg hefi til dæmis setið með henni í bæjarstjórn og mjer er kunnugt um, að enn er eftir svo mikið af skörunasskap hennar, að hún er þess verð, að henni verði gert kleift að fara þessa ferð. Það væri verðug viðurkenning fyrir hennar mikla starf. Jeg varð fyrir vonbrigðum, þegar hv. Ed. feldi þetta við síðustu umr. þar, en jeg vona, að þessi hv. deild leiðrjetti það og samþ. þessa litlu fjárhæð. Þó að hún sje ekki nærri því nægileg, er hún þó viðurkenningarvottur þingsins fyrir áhuga hinnar merku konu um öll kvenrjettindamál bæði fyr og síðar.