17.05.1929
Efri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (897)

16. mál, fjárlög 1930

Jón Jónsson:

Mjer finst allundarlegt að fara að hefja umr. um fjárl. hjer, þar sem engar brtt. liggja fyrir. Það hefði að vísu verið ástæða fyrir bæði mig og aðra Ed.-menn að andmæla sleggjudómum, sem Nd. hefir felt yfir okkur, en það er óviðfeldin aðferð, þar sem við mundum þá ráðast á menn, sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sjer.

Mjer þóttu líka undarleg ummæli tveggja manna úr fjvn. Jeg hefi ekki orðið annars var en að í n. hafi alla tíð verið góð samvinna, svo að jeg bjóst ekki við, að við nm. færum nú að deila innbyrðis. Hv. 2. landsk. sagði, að hún öfundaði ekki d. af afgreiðslu fjárl. Jeg veit ekki, hvað hún á við, en mjer skilst það helst vera tvö atriði, sem ágreiningur varð um við 3. umr. Hv. 2. landsk. og hv. þm. Seyðf. vildu láta áætla tekjurnar hærra en gert var og töldu ekki þörf á þeim sparnaðartill., sem d. samþykti. En jeg uni vel við þann dóm, sem d. fær fyrir að hafa sýnt varfærni í meðferð fjárl. Eftir ummælum meðnefndarmanna minna er því slegið föstu, að meðferðin er mjög gætileg. Ekki óttast jeg heldur harðan dóm fyrir að við höfum sint of lítið verklegum framkvæmdum, þar sem sýnt er, að þetta þing hefir varið meiru til verklegra framkvæmda en nokkurt annað þing.

Hv. 2. landsk. vjek að stefnubroti, sem við meirihlutamenn hefðum gert okkur seka í. Þetta má að nokkru leyti til sanns vegar færa; það skal jeg játa. Við hefðum getað verið því fylgjandi að hleypa fjárl. í Sþ. út af ýmsum þeim styrkjum, sem Nd. samþ., en þar sem um svo litlar upphæðir var að ræða, 3000–4000 kr., þá fanst okkur óforsvaranlegt gáleysi að láta fjárl. fara í Sþ. Það er því ósanngjarnt að deila á meiri hl. n. fyrir þetta.