17.05.1929
Efri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2052 í B-deild Alþingistíðinda. (899)

16. mál, fjárlög 1930

Erlingur Friðjónsson:

Það virðist svo, sem sumum þyki undarlegt, að nokkur skuli tala um fjárl. nú. Jeg er ekki á þeirri skoðun, því að jeg mundi t. d. geta sagt mikið um þessi fjárlög. Jeg er að miklu leyti óánægður með tekjuhliðina, en ekki sjerstaklega á þá lund, að mjer finnist tekjurnar ekki áætlaðar skaplega.

Eins og fjárl. undanfarandi ára hafa verið, og eru raunar enn, þá hafa tekjulögin, sem bygt er á, mjög verið sett af handahófi og skattarnir lagðir á þegna þjóðfjelagsins algerlega í ósamræmi við vinnu þeirra og afkomu. En það verður að líta á fjárl. sjálf í því ljósi fyrst og fremst, að fjárhag ríkisins sje ekki stofnað í hættu. Mjer er sama, hvað hann heitir, sem með þjóðarkassann fer, hvort það er heldur íhaldsmaður eða samvinnumaður; jeg mundi jafnan stuðla að því, að fjárhag ríkisins væri ekki stofnað í vandræði. Jeg hefi verið sammála framsóknarmönnum í fjvn. þessarar hv. d. hvað það snertir að vilja áætla útgjöld ríkissjóðs hóflega og eftir því sem ætla mætti, að tekjurnar þyldu.

Að öðru leyti get jeg ekki sjeð, að hægt sje að tala um neinn sjerstakan meiri hl. í fjvn. Hv. 2. landsk. (IHB) var eitthvað að gefa í skyn, að meiri hl. n. væri ánægður með fjárlagafrv. eins og það er, en jeg þekki ekki þann meiri hl. að öðru leyti en því, að jeg hefi átt samleið með Framsóknarflokknum um það, að tekjurnar yrðu ekki spentar of hátt til þess að stofna til útgjalda hreint og beint í óhófi. Þegar tekjurnar álítast ekki nægar til þess að standast þau útgjöld, er ríkið þarf að inna af höndum, þá geta altaf verið skiftar skoðanir um, hvar ráðast eigi á garðinn til þess að draga úr útgjöldum, hvort takmarka eigi framlög til verklegra framkvæmda, svo sem til vegagerða og brúa, eða framlög til einhvers annars. En það er auðsætt, að um marga pósta er ekki að ræða, þar sem hægt er að draga úr fjárframlögum. Mikill hluti gjalda ríkissjóðs er bundinn með lögum, svo sem laun embættismanna og annara starfsmanna ríkisins, og er því óhægt að hrófla við þeim, enda mundi jeg ekki verða fyrstur manna til að klípa af launum embættismannanna, því að jeg tel þau í flestum tilfellum ekki of há. Jeg skal kannast við, að jeg hefi fylgst með í því að lækka fje til vega, þegar sýnilegt var, að útgjöldin yrðu of há á móts við tekjurnar og ekki sýnilegt, að hægt væri að skera annarsstaðar niður, og þegar líka er hægt að færa rök fyrir því, að þarna er eitthvað hægt að draga úr framkvæmdum, en árferðið sæmilegt og ekki sýnilegt, að brýn þörf sje á aukinni atvinnu vegna atvinnuskorts í landinu. Jeg vil haga mjer að nokkru eftir því, hvort brýn þörf sje á, að miklar framkvæmdir af hálfu ríkisins sjeu hafðar um hönd, af því að atvinnuvegirnir sjeu í kreppuástandi eða ekki. Það vill nú líka svo til, að þó að klipið sje af verklegum framkvæmdum, þá er þó eigi minna lagt til á þessu sviði en áður hefir tíðkast. Og úr því að hv. þm. Seyðf. hefir upplýst, að útgjöld til verklegra framkvæmda sjeu nú áætluð talsvert miklu hærri en venja er til, þá finst mjer það viðunandi, og því ekki rjett að bæta þar við, svo að í vanda stefni um afkomu ríkisins. Útgjöldin hafa líka aukist stórum vegna þeirra fjárhæða sem fara til verklegra framkv. í búnaði, til fræðslumála, heilbrigðismála o. fl. Af þessu hlýtur að leiða það, að tekjurnar verða að vaxa að sama skapi og útgjöldin aukast, eða að fara verður varlega í opinberar framkvæmdir.

Það má vitanlega deila fram og aftur um meðferð þingdeildanna á fjárl., en þó ætla jeg ekki að leggja þar mörg orð í belg, af því að mjer finst það ekki nema eðlilegt, að þingdeildirnar geti verið ósammála um ýms efni, og aðstaða Ed. þannig, að hún verður að ganga á móti sumum till. hv. Nd. og fella þær, þar sem Ed. þykir miður ráðið. Þess vegna er ekki nema eðlilegt, að heyrist hljóð úr horni, er Nd. þykir systurdeildin, sem minni er, hafa farið annan veg í till. sínum en hún hefði kosið. Annars verður auðvitað, eftir því sem kostur er á, að haga þann veg afgreiðslu fjárl., að báðar deildir sjeu ánægðar. Og eftir atvikum held jeg, að báðar deildir megi vera ánægðar með afgreiðsluna í þetta sinn. Eins og fjárl.- frv. liggur nú fyrir, er það að mestu í því formi, sem báðar deildir hafa óskað eftir, og nær verður tæplega komist en að báðar d. fái meginkröfum sínum fullnægt.

Jeg sje ekki ástæðu til að tala um einstök atriði fjárl., en læt mjer nægja að vísa til þeirrar yfirlýsingar, er jeg gerði í upphafi: að á meðan fjárl. liggja fyrir í því formi, sem beitt er um tekjuöflun ríkissjóði til handa, þá verð jeg altaf óánægður með þau, en hinsvegar vona jeg, að á komandi þingum verði gerðar þær breyt. í þessu efni, að jeg geti með meiri gleði greitt atkv. með fjárlfrv. en jeg hefi gert þessi tvö þing, er jeg hefi átt sæti í þessari hv. deild.