17.05.1929
Efri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2063 í B-deild Alþingistíðinda. (904)

16. mál, fjárlög 1930

Jón Baldvinsson:

Jeg vissi vel, að mál þetta heyrir ekki undir fjmrh. En jeg óskaði eftir, að einn úr stj. vildi svara. Og raunar hefi jeg ekkert svar fengið frá hæstv. ráðh. um þetta, ekki einu sinni það, að hæstv. stj. vildi taka þetta til athugunar. Það er hálfgerður útúrsnúningur, þegar hæstv. ráðh. segir, að vinnan fari fram uppi til fjalla eða frammi til sveita, þar sem ekki eru verkalýðsfjelög. Því að fólkið, sem vinnur uppi til fjalla og frammi til sveita, er að meiri hl. frá sjávarsíðunni og úr verkalýðsfjelögum. (Fjmrh.: Er það ekki færra af því ?). Nei, það er mesti misskilningur. Mest af fólkinu, sem vinnur fyrir ríkissjóð, er í verkalýðsfjelögum. Hitt veit jeg vel, að í sveitunum er víða margt af yngri mönnum, bændasonum og námsmönnum, sem ekki eru í verkalýðsfjelagsskap, en vinna þessa vinnu. Þeir kæra sig ekki um að vera í verkalýðsfjelagsskap, sagði hæstv. ráðh. Það er upp og niður. Og mín reynsla er sú, að þegar bændur úr sveitinni koma til kauptúnanna, eru þeir óðara komnir í verkalýðsfjelög og halda vel á sínum rjetti. Gamlir bændur úr sveit eru venjulega hinir fremstu, ef til einhverra stórræða þarf að taka í kaupmálunum. Gæti jeg bent hæstv. ráðh. á mörg dæmi þess, ef út í það færi, en til þess er ekki tækifæri hjer.

En jeg vil þá árjetta það, að jeg tel ríkissjóði bera skyldu til að líta einnig á hag þeirra manna, sem hann lætur starfa að framkvæmdum sínum. Og það gerir hann því aðeins, að hann ekki einskorði sig við að pína niður kaupgjald eins og hægt er. Margir þeirra, sem þarna eiga hlut að máli, ganga að lágu kaupgjaldi vegna þess, að þeir eiga ekki hægt um vik að fara annað. Það er ekki annað en að nota sjer neyð fólksins, þegar verið er að þrýsta niður kaupi þess við opinbera vinnu, eins og gert hefir verið mörg undanfarin ár. Í þessu efni hefir enginn munur verið á framsóknar og íhaldsstj. Þær hafa báðar leyft sínum verkstjórum að fara óforsvaranlega langt niður með kaupgreiðslur. Og það er í rauninni þannig, að verkamenn í landinu hafa gefið talsverðan hluta af þessum opinberu framkvæmdum. Þegar veittar eru 6000–8000 kr. til vegagerðar, þá er tillag verkamannanna 3, 4 eða 5 þús., sem þeir gefa til framkvæmdanna, því að þeir eru píndir til þess. Þetta er tekið af sveitarsjóðum að sumu leyti, því að það er ekkert óalgengt, að þegar þessir menn koma tómhentir til sinna heimila, verður sveitarstj. að taka við og styðja þá. Jeg skil ekki þessa fjármálaspeki. Hún er ekki sú, sem stærstu fjármálamenn í Ameríku vilja viðhafa. Þeir telja hátt kaupgjald eitt með því blessunarríkasta fyrir þjóðina, því að það hafi líka svo mikla menningarlega þýðingu. (Forseti: Jeg vil benda hv. þm. á, að þetta fer að verða nokkuð löng aths.). Jeg tek til greina bendingu hæstv. forseta, enda hefi jeg þegar vikið að því, sem hæstv. ráðh. sagði.