20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (912)

15. mál, laganefnd

Sigurður Eggerz:

Jeg get vel fallist á það, að ræða þetta mál við hæstv. dómsmrh. við 2. umr. þess. Þarf því litlu að svara nú, þar sem ekkert nýtt kom fram hjá hæstv. ráðh. Eins og áður lagði hæstv. dómsmrh. aðaláhersluna á það, að þessi n. ætti að samræma lögin og fella þau í bálka. En jeg hygg, að ekki verði sjeð betur fyrir því en nú er, þar sem stj. getur nú leitað álits og aðstoðar færustu lögfræðinga. Og eftir sem áður mundu mistök koma fram á löggjöfinni, sem leiðrjetta yrði smátt og smátt.

Þá er og hætta á, að ekki yrðu jafnan valdir í n. sem þessa færustu lögfræðingarnir, heldur öllu fremur þeir, sem að áliti stj. væru gæddir því rjetta hugarfari frá pólitísku sjónarmiði. Og ef illa skyldi takast til um skipun slíkrar n., er beinlínis hætta á ferðum.

Þá kemur og fram í þessu frv. nokkurskonar vantraust á Alþingi. Og jeg tel það í raun og veru nokkurskonar uppgjöf hjá Alþingi að samþ. frv. sem þetta. Þessi 3 manna n. yrði á vissan hátt sett yfir það, yrði nokkurskonar yfirþing. Þar sem ætlast er til eftir 4. gr. frv., að n. leggi fram áætlun um lagasetningu næstu ára, er ljóst, að þær till. verði bygðar á þeirri stjórnmálastefnu, sem n. fylgir, sem væntanlega mundi verða stefna þeirrar stj., sem skipaði hana. T. d. ef stj. sæti, sem væri andvíg frjálsri verslun, þá myndi verslunarlöggjöfin væntanlega verða meira og minna mótuð af einokun.

Mjer þótti mjög leiðinlegt, hve hv. 2. þm. G.-K. tók ekki öfugt í frv. þetta. Af orðum hv. þm. var ekki hægt að heyra annað en að hann væri frv. hlyntur. Jeg verð að segja, að mjer þótti það leitt. Jeg er sannfærður um, að hjer er verið að hrinda af stað bákni, sem kostar mikla peninga. 3 nefndarmennirnir mundu væntanlega fá meðalembættislaun, og svo fylgir kostnaður við skrifstofubákn, sem gæti orðið mikill.