20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2073 í B-deild Alþingistíðinda. (913)
15. mál, laganefnd
Magnús Jónsson:
Jeg ætla ekki að lengja umr. að mun, en vil þó koma strax fram með aths. mínar við frv. þetta, af þeirri ástæðu, að jeg tel, að það eigi aldrei að komast til 2. umr., og mun jeg greiða atkv. gegn frv. nú þegar.
Þetta er að mínu áliti hjegómamál, og þó verra en það. Hæstv. dómsmrh. vildi í svari sínu til hv. þm. Dal. halda því fram, að andstæðingar yrðu að sanna, að málið væri ekki þess virði að bera það fram á þingi. En þetta er bara hugsunarvilla hjá hæstv. ráðh. Sönnunarskyldan hlýtur hjer að vera á þeim, sem málið ber fram. Hann verður að sanna, að málið sje þess virði, að þingið taki það til meðferðar, og það finst mjer hæstv. ráðherra hafi miður tekist að því er til þessa frumvarps kemur. Annars er það engin tilviljun, að frv. sem þetta er fram komið frá hæstv. dómsmrh. Hann veit að vonum best, hvar skórinn kreppir að um undirbúning frumvarpa. Frá honum hafa komið langverst undirbúnu málin, sem þingið hefir haft til meðferðar, bæði áður en hann varð ráðh. og jafnvel síðan hann komst í stj. En hroðvirkni eins þm. getur engan veginn rjettlætt þessa aðferð, sem hjer er stungið upp á. Jeg verð því að taka undir með hv. þm. Dal., að slík n. sje algerlega óþörf. Hver stj. getur á hverjum tíma kvatt þá menn til aðstoðar við lagasetninguna, sem hún telur færasta til þess. Þetta yrðu því bönd, sem lögð væru á stj. og n. gæti hæglega orðið skipuð þeim mönnum, sem margir þm. og jafnvel stj. bæru ekkert traust til og vildu ekki nota sjer til aðstoðar. Það virtist rjettara, að þingið sjálft, eða forsetar þess, rjeðu mann til leiðbeiningar, ef eitthvað á að gera. En að skipa til þess fasta n. nær ekki nokkurri átt.
Jeg vil vekja athygli á því, að ef slík n. ætti að fylgjast vel með gangi málanna um þingtímann, frv., brtt. og nál., þá hefði hún ærið verk að vinna og væri alls ekki ætlandi annað starf. Það var rangt hjá hæstv. dómsmrh., að ef nálega helmingur þingsins vildi ekki notfæra sjer þessa n., þá yrðu störf hennar lítil, því samkv. 3. gr. frv. er henni skylt að taka til athugunar þau lagafrv., er fram koma, og breyt. á þeim og senda Alþ. aths. sínar um þau. Með þessu ákvæði er þessari n. í raun og veru gefið mikið vald. Áhrif slíkrar n. gætu orðið afarmikil í þinginu og mundu draga úr þingræðinu, þar sem till. hennar mundu ráða gangi málanna á margan hátt. Vald Alþingis myndi minka og þetta vera byrjun að „sovjet“-stjórn. Sagan segir það og sannar, að sterkustu völdin eru jafnan hin ráðgefandi völd, eða umsjónarvöld. Hjer yrði um nokkurskonar „eforat“ að ræða, sem yrði sett yfir þingið.
Þetta eru aðeins fá orð um þennan lið frv., sem sýna það, að þegar af þessum ástæðum vil jeg eigi greiða því atkv. til 2. umr.
Um undirbúning laga og áætlun um lagasetningu í framtíðinni samkv. 4. gr. frv. er jeg sammála hv. þm. Dal. Það væri þvert á móti öllu þingræði og hreinasti skrípaleikur, ef leggja ætti svona „plan“ að lagasmíðinni. Hv. þm. Dal. nefndi verslunarlöggjöfina þessu til sönnunar. Sjá allir, hve gagnslítið það væri, ef þessi stj., sem nú situr, færi að planleggja um þau mál fyrir Íhaldsflokkinn, eða þá hann fyrir Framsóknarflokkinn. Hjer kemur skýrt fram oftrú þeirra, sem halda fram löngum „plönum“, eða að það að setja alt í kerfi sje hið eina sáluhjálplega.
Útgáfa lagasafns er óskylt mál þessu. Jeg kannast vel við grein, sem Ólafur Lárusson prófessor ritaði fyrir nokkru um þetta efni. En þrátt fyrir það, að jeg hefði ekki átt að líta á þá till. með óvildaraugum, þar sem höf. er mágur minn og vinur, þá var jeg þó ekki sannfærður af grein hans um það, að íslensk lögbók hefði svo mikil áhrif á menn til góðs eins og hann hjelt þar fram. Jeg gat ekki orðið viss um, að þjóðin yrði neitt betur farin eða löghlýðnari fyrir því, þó farið væri að gefa út heila lagabálka. Hitt er annað mál, að það er sjálfsagt þarft og gott, að lagasöfn, líkt og áður hefir gert verið, sjeu gefin út við og við, og kemur þá til athugunar, hvaða form sje heppilegast á þessháttar söfnum. En ef stj. hefði óskað eftir að gefa út slíkt safn, nægði að veitt væri til þess fje í fjárlögum. Til þess þurfti enga löggjöf um fasta n., heldur aðeins upphæð í fjárlögum. Eins virðist óþarfi að miða útgáfu þessa við 5 ára tímabil. Heppilegra að láta reynsluna skera úr um það, hversu oft þörfin krefur útgáfunnar. Ef til vill mætti oft að skaðlausu láta lengri tíma líða á milli. Stundum gæti líka verið um svo stórfeldar breyt. í lagasetningu að ræða, að nauðsyn bæri til að gefa lögin út á næsta ári.
Um kostnað við þessa nefndarskipun er ekki auðið að segja með neinni vissu. En víst má telja, að hann verði mikill. Ef n. verður mikið notuð, hlýtur hún að fá mikið að gera og verður þá vitanlega dýr. Hvað hún verður dýr, er ekki gott að segja, en líklegt má telja, að hún kosti aldrei minna, með aðstoð og öllu, en 30–40 þús. kr., a. m. k. þau árin, sem lagasafnið yrði gefið út.
Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta að sinni. — Mun jeg eins og áður sagt greiða atkv. móti frv.