20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2076 í B-deild Alþingistíðinda. (914)

15. mál, laganefnd

Ólafur Thors:

Hv. þm. Dal. ljet í ljós óánægju sína yfir því, að jeg hefði tjáð mig fylgjandi frv. þessu. En sú óánægja er með öllu ástæðulaus. (SE: Þá tek jeg það aftur). Jeg hefi aðeins látið í ljós ánægju mínu yfir því, að sá maður, sem ferlegast hefir brotið formsins hlið á undanförnum þingum, hæstv. dómsmrh., skuli hafa komist til þess skilnings á afbrotum sínum, að hann ber fram slíkt frv. En um leið og jeg skýrði frá, hverja agnúa jeg teldi vera á frv., þá kvaðst jeg vilja stuðla að því, að við þyrftum ekki lengur við að búa svo afkáraleg brot á formshliðinni eins og við höfum undanfarin þing orðið við að búa hjá jafnfyrirferðarmiklum þm. eins og hæstv. dómsmrh. er. Þetta er nú það, sem jeg sagði um málið að svo stöddu, og jeg tel ástæðulaust fyrir hv. þm. Dal. að gráta fögrum tárum yfir fylgi mínu við það. Við hv. þm. Dal. höfum oft átt samleið á undanförnum þingum, og vona jeg, að svo verði enn, enda erum við báðir frjálslyndir menn.