30.04.1929
Neðri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (925)

15. mál, laganefnd

Hannes Jónsson:

Allir hljóta að viðurkenna það, að löggjöf vor er ekki eins heilsteypt og æskilegt væri. En eðlilegt er, að menn greini nokkuð á um það, hvernig bæta skuli. Jeg fyrir mitt leyti skal játa það, að mjer finst mjög örðugt að koma umbótum svo fyrir, að vel fari, og mjer finst spursmál, hvort þetta frv., þó að lögum yrði, næði tilgangi sínum. Sjerstaklega vil jeg benda á, að mjer finst hæpið, að þessi n. geti annað öllu, er hún að sjálfsögðu þyrfti að gera, um þingtímann. Annars er jeg ekki í vafa um það, að n. getur komið til með að gera mikið gagn, sjerstaklega þó, ef lögð væri sú skylda á þm., að þeir skyldu leggja fyrir hana þau frv., er þeir bera fram á þinginu. Því það er svo með þá lögfróðu menn, er sitja á þingi, að þeir eru flestir hlaðnir miklum störfum utan þings og hafa því ekki tíma, þó þeir vildu, til þess að leiðbeina okkur ólögfróðu mönnunum. Þeir ættu vitanlega að vera þeir hæfustu til að segja um það, hvort frv. eða annað bryti í bága við gildandi lög og reglugerðir. Eigi að síður er það ekki ómögulegt, að þeim geti skeikað. T. d. veit jeg til þess, að staðfest hefir verið í stjórnarráðinu reglugerð, sem braut beint í bága við gildandi lög. Þetta er vitanlega mjög óheppilegt og leiðir af sjer málaþras, sem annars væri hægt að komast hjá. Hefi jeg oft fundið til þess, hve mikið ósamræmi er í allri löggjöf okkar, og vildi gjarnan gera mitt til, að hægt væri að bæta úr því.

Þó jeg sje, eins og jeg hefi áður tekið fram, ekki viss um, að þetta frv. nái tilgangi sínum, þó að lögum verði, þá finst mjer samt nokkur ábyrgðarhluti að leyfa því ekki að ná fram að ganga. Er og engu spilt, þó þessi tilraun sje gerð. Vil jeg alls ekki fallast á þá skoðun, sem haldið hefir verið fram, að með þessu væri verið að takmarka löggjafarvald Alþingis. Það er að vísu tekinn nokkur rjettur af þm., nefnilega sá, að bera fram það, sem ekki getur staðist eða fer illa í löggjöfinni. En jeg fæ ekki skilið, að það geti orðið þjóðinni til ófarnaðar, þó slíkur rjettur sje tekinn af þingfulltrúum hennar. Löggjafarvaldið er jafnt eftir sem áður hjá Alþingi.

Þetta vildi jeg aðeins hafa sagt til þess að skýra afstöðu mína til þessa máls. Mun jeg greiða frv. atkv. mitt, þó jeg sje í vafa um, að það nái tilgangi sínum, og þó jeg viti, að þetta muni hafa nokkurn kostnað í för með sjer, sem geti þó unnist upp á öðrum sviðum.