06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (95)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Haraldur Guðmundsson:
Jeg vil taka undir það með hæstv. forsrh., að þessar brtt. hv. landbn. eru tæplega svo mikils virði, að það taki því að fara að hrekja málið milli deilda þeirra vegna. Það liggur í hlutarins eðli, að sú fyrri er eðlileg og sjálfsögð afleiðing af þeirri breytingu, sem gerð var í hv. Ed., og er í rauninni aðeins leiðrjetting, sem gera má í prentun. En sú síðari er til hins verra.
Annars finst mjer rjett að geta þess, að frv. hefir tvímælalaust tekið miklum umbótum í hv. Ed., því að þar var bætt úr mikilli vöntun, sem var á því, með því að setja inn þennan nýja kafla um lánadeild smábýla við kaupstaði og kauptún. Hitt get jeg fallist á með hæstv. forsrh., að sá kafli hefir verið aflagaður mjög í meðförum, vegna breytinga, sem íhaldið gerði á honum. En úr því má bæta á næsta þingi.