06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (98)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Magnús Guðmundsson:
Mjer virðist það vera til lítils að benda mjer á að bera fram fyrirspurn til flokksbræðra minna í hv. Ed. um það, hvers vegna hæstv. forsrh. sje á móti þeim brtt., sem hjer hafa komið fram. Það getur ekki kallast annað en að svara út í hött. Þó að þessir flokksbræður mínir tækju upp till. annars manns, þá er ekki þar með sagt, að þeir sjeu allskostar ánægðir með þær. Annars get jeg ekki skilið í því, ef hæstv. forsrh. er nú alt í einu orðinn svo fylgjandi flokksbræðrum mínum í hv. Ed., að hann telur það með öllu ófært að hreyfa nokkuð við því, sem þeir hafa orðið til að samþykkja. Hann hefir ekki verið það hingað til.
Jeg get ómögulega sjeð, að málinu sje stofnað í neina hættu, þó að það verði að fara aftur til hv. Ed. Á dagskránni í dag eru stjfrv. til 2. umr., og er víst engin hætta á því, að þau verði látin daga uppi, og þá ætti þessu frv. miklu síður að vera hætt.