08.03.1930
Neðri deild: 48. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (1001)
5. mál, sveitabankar
Halldór Stefánsson:
Ég hefi látið það áður í ljós við umr. um þetta frv., að ég legg ekki eins mikið upp úr nauðsyn og gagnsemi þess og margir aðrir. Það er ekki svo að skilja, að ég ætli að halda á móti frv., en mér þykir ekki vera svo mikil þörf á þessum lánum, sem flestum öðrum, vegna þess að ég þekki það ekki, að bændur, sem standa í skilum með slík lán, eigi erfitt með að fá rekstrarlán. Þvert á móti er oft keppzt um að veita þeim slík rekstrarlán. Gagnið af þessum lánum er einnig vafasamt, þar sem þau, vegna hinna tilskyldu milliliða, hljóta að kosta jafnmikið og kannske meira en þau samskonar rekstrarlán, sem menn til þessa hafa haft.
Þó að brtt. mínar á þskj. 182 séu nokkuð fyrirferðarmiklar, geta þær varla talizt yfirgripsmiklar. Þær sem sé byggjast allar á einni höfuðbreytingu, sem fer fram á, að bændur geti fengið bústofnslán með líku fyrirkomulagi og rekstrarlán þau, sem frv. heimilar.
Það er svo með marga bændur, að þá vantar tilfinnanlega hagkvæm lán til bústofnskaupa, en eiga þess lítinn kost að geta fengið þau, fyrr en ef það yrði nú, þegar bústofnslánadeild Búnaðarbankans tekur til starfa. Brtt. mínar fara sem sagt fram á það, að þeir milliliðir, sem sveitabönkunum er ætlað að nota, megi veita bústofnslán alveg eins og rekstrarlán. Jafnframt þessu geri ég ráð fyrir því, að þeir, sem vilja ganga í félagsskap til að fá bústofnslán, séu háðir sömu reglum og þeir, sem vilja fá rekstrarlán. Mér þykir fyrir því, að hv. landbn. skuli ekki hafa tekið brtt. mínar til athugunar, jafnmikilsvert og nauðsynlegt sem þetta er. Ég minnist þess, að þegar ég bar fram í fyrra till. svipaðar þessum að efni til, tók hæstv. forsrh. þeim mjög líklega og hét að taka þær til athugunar, og því bjóst ég satt að segja við, að hann mundi taka þetta atriði til athugunar, áður en þetta frv. var lagt fyrir þingið nú. Vera má, að hann hafi gert það, en hann hefir þá ekki getað fallizt á það, eða fundið eitthvað meira athugavert við það en hann lét uppi í fyrra, en það mun að líkindum verða upplýst síðar.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þessar brtt. meira. Þær eru allar í sambandi hver við aðra og allar sprottnar af þessu, að ég vil að greitt sé fyrir bændum að fá bústofnslán, sem ég álít þeim ennþá nauðsynlegri lán en — að mínum dómi — þessi ónauðsynlegu rekstrarlán.