29.01.1930
Neðri deild: 8. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í C-deild Alþingistíðinda. (1019)
28. mál, raforkuveitur utan kaupstaða
Magnús Jónsson:
Ég ætla aðeins að svara hæstv. forsrh. örfáum orðum viðvíkjandi þeirri áætlun, sem hann er alltaf að krefjast. Hv. þm. Skagf. hafa þegar sýnt fram á, hversu mikils virði slík áætlun mundi verða. Allar verklegar framkvæmdir eru sífelldum breyt. undirorpnar fyrir rás viðburðanna og vegna nýrra uppgötvana, svo að jafnvel hárréttar og vísindalega útreiknaðar áætlanir geta verið orðnar að fjarstæðu eftir nokkur ár eða áratugi. Við skulum taka dæmi: Til skamms tíma þekktu menn lítið annað en reiðvegi hér á landi. Síðan komu kerruvegir og þá þurfti að gera áætlanir um þá. Loks komu bílvegir og allar áætlanir breyttust. Og enn geta komið ný farartæki, sem við alls ekki þekkjum, og með þeim ný tegund af vegum. Kröfurnar breytast, og með þeim framkvæmdirnar. Það er því mesta vitleysa að ætla sér þá dul að fara að gera nákvæmar áætlanir í þessu máli.
Það er bara þetta, að þingið verður jafnan að hafa þetta í hendi sér og stilla þannig í hóf, að ekki sé farið of hart í málinu. Eins og hv. 1. þm. Skagf. sagði: verði málið ódýrara en búizt er við, þá er fyrr hægt að koma því í kring, verði það dýrara, tekur það bara lengri tíma.
Annars stóð ég aðallega upp vegna þess, að hæstv. forsrh. var að setja talsvert þungt ofan í við mig af því að ég hefði verið að hnýta í einhverja Skaftfellinga. En ég var nú bara að tala um það, hve hættulegt það væri, þegar menn væru að koma sér upp einhverju því, sem þeir ekki þekkja, að þá kæmu menn, sem bjóða hlutinn fram fyrir lægra verð, og þá um leið lélegri. Það eru mörg ljós dæmi um þetta. Ég efa ekki, að það hafi verið mjög samvizkusamir og í alla staði heiðvirðir menn, sem byggðu fyrstu steinhúsin til sjávar og sveita. En verk þeirra, steinhúsin, reyndust handónýt og endingarlaus. Svona er þetta alstaðar. Menn kaupa t. d. oft ódýr hljóðfæri, sem eftir stutta stund reynast algerlega ónothæf.
Ég hefi heyrt, að margar þessar stöðvar séu hið mesta hrákasmíði. Sjálfur þekki ég heldur lítið út í þessa hluti, en ég veit, að full nauðsyn er að búa svo um í hverri stöð, að spenna haldist jöfn. En heyrt hefi ég það, að sumstaðar sé ekkert séð fyrir þessu. Þar er stundum spennan svo lág, að aðeins sést glóra í ljósin, en stundum svo há, að allt brennur í sundur. Þó að Skaftfellingar smíði þetta og þó að þeir séu góðir framsóknarmenn — sem út af fyrir sig gerir þá hólsins verða hjá hæstv. forsrh. —, þá tel ég ekki vel farið, að verkið sé þannig unnið, að stór skaði er að. Það er óhætt að segja, að almenningur er mjög fáfróður í þessu efni og varnarlaus fyrir, svo að menn taka yfirleitt því, sem að þeim er rétt.
En það er fjarri mér að vilja sérstaklega hnýta í einstaka menn. Ég er ákaflega ófróður um það, hverjir það eru, sem setja upp þessar stöðvar. Ég hefi heyrt, að sumir þessara Skaftfellinga séu þjóðhaga smiðir, sem setja upp raforkustöðvar ódýrari en aðrir. Og ég hefi horft á það með trúaraugum og býst við, að það sé satt.
Það er búið að leggja nokkrum sinnum út af Arnóri og Gísla í þessu efni. Ekki finnst mér þar líku saman að jafna, þar sem framsóknarmaðurinn hæstv. forsrh. hefir í hálfgerðum hótunum undir eins og út af her, og kveður sjálfstæðismenn munu vera lína að framfylgja málinu, er á reynir. Með því er hann að setja upp kosningagrýlu í þessu máli.