29.01.1930
Neðri deild: 8. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í C-deild Alþingistíðinda. (1027)
28. mál, raforkuveitur utan kaupstaða
Flm. (Jón Sigurðsson):
Það hefir ýmislegt komið fram í umr. síðan ég talaði síðast, en því hefir verið svarað af öðrum fylgismönnum þessa frv., svo að ég get verið mjög stuttorður.
Hæstv. atvmrh. talaði mikið um rannsókn þessa máls og að það þyrfti sérstaklega að gera sér ljóst, hversu miklar útgjaldabyrðir heimilin gætu borið. Hann virtist ætla verkfræðinganefndinni að athuga það; en ég er á annari skoðun og treysti bændum bezt til þess að dæma um það sjálfir, hvað þeir geta greitt eða lagt á sig til rafveituframkvæmda.
Þá sagði hæstv. ráðh., að ég vildi láta hætta við að leggja fram fé til brúabygginga; en þetta er hin mesta fjarstæða.
Ég sagði, að samkv. skýrslu vegamálastjóra, sem lægi fyrir fjvn., þá teldi vegamálastjóri, að innan skamms mundi verða lokið byggingu nauðsynlegustu brúa yfir hinar stærri ár landsins, og að þá yrði auðveldara að beina fé ríkissjóðs til annara framkvæmda. Mér dettur ekki í hug, að það verði hætt við að byggja brýr; en nauðsyn þess er ekki jafnmikil og áður, þegar búið er að brúa flestar ár á einum til tveimur stöðum hverja. Hæstv. atvmrh. og fjmrh. gengu báðir framhjá því í ræðum sínum, að skylda ríkissjóðs til þess að leggja Landsbankanum til fjárframlag árlega er nú burtu fallin, svo að þeirri upphæð má verja til framkvæmda þessu máli. En í stað þess hefir hæstv. atvmrh. orðið mjög munntamt í ræðum sínum í dag, og smjattað á því hvað eftir annað, að ég ætlaðist til, að afgangstekjum ríkissjóðs yrði varið til rafveitufyrirtækja samkv. þessu frv., og hann hefir jafnvel slegið því föstu, að ég vildi aðeins verja til þess afgangsfé. Hæstv. ráðh. veit það mjög vel sjálfur, að þetta er alger útúrsnúningur á mínum orðum og stráksskapur, sem honum er ekki sæmandi. Ég get endurtekið það, að margar og stórar fjárveitingar, er stj. greiðir án lagaheimildar úr ríkissjóði, eiga margfalt minni rétt á sér en þetta mál. Og á meðan fé er ausið gegndarlaust úr ríkissjóði til þarflítilla eða óþarfra fyrirtækja, bygginga og ýmiskonar óþarfa, sé ég ekki ástæðu til að leggja nýja skatta á þjóðina; slíkar fjárveitingar ættu að hverfa og því fé væri betur varið til raforkuveitna í sveitum. En ég skal líka endurtaka það, að ef þing og stj. eru sammála um að gæta sparnaðar á útgjöldum ríkissjóðs, þá tel ég sjálfsagt að styðja nýja tekjuöflun eftir þörfum.
Það hefir nokkuð verið talað um einkaveitur og samvirkjun. Var svo að skilja á hv. þm. Ísaf., að mönnum væri ekki ljós greinarmunur á því. Ég tók það skýrt fram, að í ýmsum byggðarlögum væru ekki möguleikar til samvirkjunar. En það verður líka að greiða fyrir þeim, og það er sannfæring mín, að full þörf sé á eftirliti með sérveitum einstakra heimila. Það er hörmulegt, þegar einstaklingar eru búnir að leggja mikið fé í slíkar stöðvar, að þá skuli þeir, ef eitthvað bjátar á, þurfa að sitja í myrkri og kulda á miðjum vetri, eldiviðarlausir og óviðbúnir slíkum óhöppum. En ég þekki dæmi þess í Skagafirði. (LH: Þau geta eins komið fyrir, þó að rafmagnsveitur séu stærri). Það hefir verið hent á, hverja þýðingu rafmagnið hefði fyrir heimilin, eigi aðeins til íbúðarþæginda, heldur og utanhúss. Ég drap aðeins lauslega á þetta í framsöguræðu minni; en enginn vafi er á því, að rafmagnið skapar nýja og óþekkta möguleika til margskonar framkvæmda. Það sýnir reynslan erlendis. Þar telja bændur mestan vinning í því að nota rafmagnið til ýmiskonar iðnrekstrar og til að spara mannsaflið.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um andmæli þau, sem fram hafa komið gegn þessu frv., enda yrði það að mestu sparðatíningur. En áður en ég lýk máli mínu, vil ég aðeins skjóta því til hv. þm. Ísaf., út af því, sem hann talaði um, að erfitt yrði að gera upp á milli héraða í þessu máli, að hann hefir átt sæti í fjvn., þar sem árlega er rætt um, hvaða héruð eigi að fá vegi og síma í hvert skipti og hver verði að bíða um sinn. Ætli það yrði ekki svipað um ákvörðun á rafveituframkvæmdum? Að vísu hafa ekki allir verið ánægðir, en sæmilega hefir þetta gengið hingað til.