18.03.1930
Neðri deild: 56. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í B-deild Alþingistíðinda. (1057)
5. mál, sveitabankar
Magnús Torfsson:
Ég stend aðeins upp til þess að benda hv. d. á, að hv. frsm. n. hefir ekki getað bent á, að það sé nein þörf fyrir Búnaðarbankann að halda þessu ákvæði um hinn harða og óbilgjarna veðrétt. Hv. frsm. hefir aðeins lýst yfir því, að stj. Búnaðarbankans leggi áherzlu á þetta, en ég get ekki lagt svo ákaflega mikið upp úr því, vegna þess að það er frá því að segja, að stjórnir slíkra stofnana hafa ætíð krafizt sem mestra beztra trygginga fyrir sínum lánum. Ég segi þetta ekki neinum til lasts, því að þetta er ekki nema eðlilegt.
En það er víst, að almenningur mundi hafa gagn en ekki skaða af þessari ríku tryggingu, sem krafizt hefir verið. Ég býst því við, að sama muni verða um stj. Búnaðarbankans sem stjórnir annara banka, að þeir sem trúir verkamenn sinnar stofnunar vilji tryggja lánin sem bezt.