20.03.1930
Neðri deild: 58. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (107)

1. mál, fjárlög 1931

Fjmrh. (Einar Árnason):

Við byrjun þessarar umr. lá hér fyrir fjöldi brtt. á einu þskj., og undir umr. hafa smátt og smátt komið fram fleiri þskj. með brtt. við fjárlfrv. Ég veit ekki, hvort ég hefi verið svo heppinn að fá í hendur öll þau þskj., sem fram kunna að vera komin með nýjum brtt., en þær munu vera orðnar fullar 20, þessar nýkomnu brtt. Það eru aðeins örfáar af hinum einstöku brtt., sem ég vildi drepa á með fáum orðum.

Það er fyrst brtt. á þskj. 302, frá hv. fjvn., þar sem hún leggur til, að tekjur af verðtolli verði áætlaðar 1.700 þús. kr. í stað 1.500 þús. kr., sem stóð í fjárlfrv. Í rauninni var áætlun verðtollsins fullhá í frv. upphaflega, en ég ætla ekki að metast við hv. n. um það, hver upphæðin skuli vera. Hinu vil ég gera ráð fyrir, að hv. n. og hv. þd. geri sitt til þess, að núgildandi ákvæði um verðtoll haldist óbreytt á næsta fjárhagstímabili, ef ekki verður gerð önnur skipun á tollmálunum á þessu þingi. Eins og kunnugt er, þá falla verðtollsákvæðin úr gildi um næstu áramót. Þess vegna verður annaðhvort að gera, að samþykkja nýtt frv. um verðtoll, sem liggur fyrir þinginu frá meiri hl. mþn. í skattamálum, eða að framlengja núverandi lagaákvæði um verðtoll. Ég vil mega vænta, að hv. þd. styðji það, að þessi tekjuliður ríkissjóðs, sem fjvn. hefir áætlað 1700 þús. kr., fái að standa áfram óhaggaður.

Þá vil ég minnast á XI. brtt. á þskj. 302, frá hv. 1. þm. S.-M., þar sem hann ætlast til, að framlag til bygginga í Bakkaseli verði lækkað úr 35 þús. kr. niður í 10 þús. kr. Þessi fjárupphæð var ákveðin í stjfrv. samkv. till. frá vegamálastjóra. Mitt álit er, að það sé ekki rétt að lækka upphæðina, því að ég býst ekki við, að hún reynist of mikil. Þegar hafizt verður handa um bygginguna, sem er óumflýjanlegt að gera sem fyrst, þá verður það meira en íbúðarhús fyrir ábúanda. Það þarf að byggja þannig, að hægt sé að taka á móti gestum, svo að sæmilega færi um þá, og ennfremur þarf að byggja nauðsynlegustu útihús fyrir búpening. Það er áreiðanlegt, að ef lagt verður í þessa byggingu, sem ég tel óhjákvæmilegt, þá er ekki hægt að spara þannig, að komizt verði af með minni fjárupphæð en tiltekin er í frv.; og alls engin leið til þess að byggja svo, að gagn sé að, fyrir 10 þús. kr.

Á þskj. 302 er brtt. LI. flutt af fjórum hv. þdm., um að heimila stj. að kaupa hlutabréf í Eimskipafél. Íslands, ef ástæða þykir til, fyrir allt að 85 þús. kr. Ég ætla ekki að mæla á móti þessari brtt.: en ég hefði viljað heyra nánar frá hv. flm. till., hvernig þeir hugsa sér framkvæmd hennar. Það er ekki hægt að kaupa hluti í Eimskipafél. Íslands, nema félagið vilji ganga inn á það, og ef fél. gerir það ekki, þá vil ég spyrja hv. flm., hvort það sé meiningin, að Eimskipafél. Íslands eigi ekki að fá þennan 85 þús. kr. aukastyrk. Einnig vildi ég fá að vita, hvort það er ekki ætlazt til þess, að stj. fái óskertan atkvæðisrétt á aðalfundum félagsins fyrir þessa viðbót við núverandi hlutafjáreign ríkissjóðs. Ríkissjóður á nú hlutabréf fyrir 100 þús. kr. í félaginu, og hingað til hefir stj. haft óskertan atkvæðisrétt fyrir þau bréf á aðalfundum félagsins. En ég vil geta þess, að á síðasta aðalfundi reis ágreiningur út af þessu atriði. Var því haldið fram af mönnum úr stjórn Eimskipafélagsins, að samkv. samþykktum þess mætti ekki fara með atkv. fyrir meira en sem svaraði 12.500 kr. af hlutafé ríkissjóðs. Þó úrskurðaði fundarstjóri, að á þeim fundi skyldi atkvæðisrétturinn haldast óskertur eins og áður hefði verið venjulegt.

Út af þessu skrifaði ég stjórn Eimskipafél. og spurði, hvaða fyrirætlanir hún hefði um þetta. Hvort það væri áform hennar að takmarka atkvæðisrétt ríkissjóðs, eins og fram hefði komið á síðasta aðalfundi félagsins. En ég hefi ekki fengið svar við þessu bréfi og veit ekki, hvernig horfur eru í því máli.

Hv. samþm. minn flytur á sama þskj. LII. brtt., um að stj. skuli heimilað að athuga og gera áætlun um endurbyggingu sjóvarnargarðs á Siglufirði og greiða úr ríkissjóði 2/3 kostnaðar við framkvæmd verksins gegn 1/3 framlagi frá Siglufjarðarkaupstað. Ég er viss um, að hv. flm. hefir gert ljósa grein fyrir þessari till., og þarf ég ekki við það að bæta. Það er vitanlega nauðsynlegt að endurbæta garðinn og gera rækilega við það, sem hefir eyðilagzt, svo að það geti ekki endurtekizt, sem kom fyrir síðastl. vetur, að sjávarflóð rauf varnargarðinn og olli geysilegu tjóni og skemmdum, eigi aðeins fyrir bæjarbúum, heldur líka á eignum ríkissjóðs og mannvirkjum þar á staðnum.

Gallinn er sá að ennþá hefir ekki verið gerð nein áætlun um þetta, og; þess vegna er ekki hægt að tiltaka nú neina ákveðna upphæð. Fyrst verður því að rannsaka, hvað þetta muni kosta, og síðan væri ríkissj. heimilt að leggja fram nokkurn hluta kostnaðar.

Þá kemur II. brtt. á þskj. 316. Þessi brtt. er nú í rauninni nokkuð stórfelld, því að hún fer fram á 70 þús. kr. aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, en ég hygg, að það muni þykja nokkuð mikil aukning á þeim tekjuhalla, sem þegar er orðinn á frv. Ég hefi ekki á móti þessari brtt. af því, að ég sé því ekki meðmæltur, að reynt verði að koma á flugferðum á Íslandi, og ég viðurkenni fyllilega, að dr. Alexander hefir sýnt mikinn dugnað og ósérplægni í þessu máli og er viss um, að hann hefir ekki hagnazt á því. (GunnS: Þvert á móti). Ég er líka sannfærður um, að hann hefir sterka trú á þessu máli, en gallinn er sá, að þetta kemur fram á síðustu stund, þannig að ég hefi ekki haft ástæður til að kynna mér málið sem skyldi. Annars skal ég geta þess, að ég er frekar hlynntur því, að ríkissjóður leggi fram fé í þessu skyni.

Þá kemur brtt. VII. á sama þskj., frá hv. 2. þm. G.-K., og við hana er brtt. til vara á þskj. 319, III., en þá till. yrði maður sennilega að leggja til grundvallar. Þar er farið fram á, að í staðinn fyrir 10 þús. komi 18 þús. kr., og skal þessum 8.000 kr. varið til að byggja veg milli Sandgerðis og Stafness, svo að hægt verði að flytja björgunarbátinn þar á milli.

Þetta er hinn sami liður og var í fjárl. í fyrra, en ég hafði skoðað það svo, að þetta framlag yrði ekki meira, en nú kemur sama till., svo að þá verður maður að draga af því þá ályktun, að hér sé um stórfellda vegagerð að ræða, sem eigi ekki heima í 17. gr. (ÓTh: Þetta er lokaveiting). Það er náttúrlega gott að heyra, en maður verður dálítið vantrúaður, þegar maður verður þess var, að sama fjárveitingin skýtur aftur upp höfði hvað eftir annað, þótt maður hefði haldið, að hún væri úr sögunni. Annars hygg ég, að þessi vegur muni kosta meira en 8.000 kr., því að vegalengdin er mikil, og auk þess er ég hræddur um, að vegurinn komi alls ekki að notum, þegar flytja þarf björgunarbátinn þessa leið, svo að ég hygg, að málið sé ekki eins vel undirbúið og æskilegt væri.

Þá kemur brtt. IX. á þskj. 316, um að veita Halldóri Arnórssyni umbúðasmið eftirgjöf á eftirstöðvum af viðlagasjóðsláni, 5.500 kr. Ég skal ekki um það segja, hvort það er nauðsynlegt eða rétt að gefa þessum manni eftir það lán, sem hann hefir fengið, enda hygg ég, að þingið hafi tæpast vald til að gera það. Í lögunum um Búnaðarbankann frá í fyrra er svo ákveðið, að hann skuli taka við viðlagasjóði, er hann taki til starfa. Það hefir verið ákveðið, að Búnaðarbankinn taki við viðlagasjóði í ársbyrjun 1930, og þótt þetta sé nú að vísu ekki komið í kring, þá er þó ákveðið, að svo skuli verða, þannig að í rauninni er þinginu þetta mál óviðkomandi.

Þá er brtt. á þskj. 323, frá hv. 2. og 4. þm. Reykv., er gengur út á það, að ríkið taki að sér ábyrgð fyrir Keflavíkurhrepp á allt að 83 þús. kr. láni, er sé tekið innanlands (1/3 hluti kostnaðar við bryggjugerð í Keflavík), gegn endurábyrgð sýslunefndar Gullbringusýslu, enda samþykki atvmrh. leigukjör á landi í grennd við bryggjuna. Í raun og veru finnst mér hér um að ræða samskonar till. og hér var á ferðinni við 2. umr., því að ég get lítinn mun á þeim séð. Því vil ég þó lýsa yfir, að ég er henni mótfallinn, eins og flestum samskonar brtt., sent hér liggja fyrir.

(MG: Ekki öllum?) Ég sé ekki ástæðu til að taka einn hrepp fram yfir annan og er samþykkur hv. fjvn. að því leyti, að ég er því mótfallinn, að ríkið gangi í ábyrgð vegna bryggjugerða yfirleitt.

Þá er brtt. 53 á þskj. 302, frá hv. þm. V.-Ísf., er gengur í þá átt, að veitt verði eftirgjöf á viðlagasjóðsláni, sem Ostagerðarfélagi Önundarfjarðar var veitt. Út af þessari till. og jafnframt út af fyrirspurn, sem kom fram frá hv. þm. N.-Ísf., vil ég drepa nokkrum orðum á þetta mál. Eins og hv. þm. muna, samþykkti þessi hv. deild í fyrra till. þess efnis, að stj. kynnti sér greiðslugetu hreppa, sem stæðu í skuldum við viðlagasjóðinn. Stj. leitaði upplýsinga um þetta hjá hlutaðeigandi sýslumönnum á síðastl. ári, og þau plögg voru síðan lögð til grundvallar fyrir þeim till., sem ég hefi gert. Hér er að ræða um 6 hreppa og eitt félag, Ostagerðarfélag Önundarfjarðar. Þessar skýrslur, sem fengizt höfðu, sendi ég síðan ásamt till. mínum til fjvn., og gerði ég ráð fyrir, að hún myndi leggja fram till. sínar við umr. fjárl. Þetta hefir þó ekki orðið, og sennilega stafar það af einhverjum mistökum, en ég mun leggja málið fyrir fjvn. Ed. og mun hún þá koma fram með till. sínar viðvíkjandi því. Nú hefir hv. þm. V.-Ísf. tekið einn liðinn út úr og flutt um hann till. við þessa umr. fjárl. Ég hefi í sjálfu sér ekkert við þetta að athuga, því að ég geri ráð fyrir, að þótt viðlagasjóðurinn sé nú horfinn undir Búnaðarbankann, hafi þingið þó enn vald til að ráðstafa þessum umræddu lánum.

Ég vil þá skýra hv. þdm. frá þeim upplýsingum, sem fengizt hafa um hvern hrepp, og er þá fyrst fyrir Gerðahreppur. Ég ætla ekki að fara út í að lýsa, hvernig fjárhagsástand hans er, en skal aðeins vekja athygli á því, að útsvörin eru þar ferfalt hærri en annarsstaðar. Gerðahreppur sýnist því mjög illa stæður, enda flýr fólkið hreppinn, og virðist því ekki önnur leið vera fyrir hendi en að gefa honum eftir það, sem ógreitt er af láninu. Þess skal getið, að þetta lán var upphaflega 40 þús. kr., en er nú komið niður í 37 þús. kr. með áföllnum vöxtum.

Þá kemur næst Innri-Akraneshreppur. Hann fékk dýrtíðarlán 1918, sem nam 3.000 kr., og er sú upphæð óbreytt ennþá. Eftir að hafa athugað ástæður hreppsins, gat ég ekki lagt til, að lánið yrði gefið eftir.

Um Grunnavíkurhrepp er það að segja, að hann hefir líka tekið hallærislán 1918, til matvælakaupa, og eru nú eftir af því 3.262,50 kr. Hin till. er sú, að hreppurinn verði látinn greiða 3.000 kr. með jöfnum afborgunum á 12 árum, og verði upphæðin vaxtalaus.

Þá er það Árneshreppur í Strandasýslu. Skuld hans við viðlagasjóð mun nú vera fullar 11.000 kr. Eftir því, sem fjárhag hreppsins virðist varið, hefi ég álitið rétt að leggja til, að helmingur lánsins verði gefinn eftir.

Patrekshreppur kemur næst, og get ég ekki séð, að rétt sé að gefa honum eftir lánið að svo stöddu, því að þar eru atvinnuvegirnir allblómlegir. T. d. styðst hann við 1 botnvörpung, 5 þilskip og 10 báta. (HK: 5 þilskip?). Já, eftir þeim skýrslum að dæma, sem liggja fyrir. (HK: Ef þær eru allar svona nákvæmar, þá skal mig ekki furða á, þótt eitthvað verði bogið við till. hæstv. ráðh.). Skýrslurnar segja þetta, og að útvegur fari þar vaxandi, og þessar skýrslur hefi ég; engar ástæður til að rengja, og því fæ ég ekki séð, að þessi hreppur hafi þörf fyrir eftirgjöf.

Þá kemur Suðurfjarðahreppur. Þar eru ástæðurnar ekki slæmar, enda virðist engin þörf á að gefa honum eftir lánið.

Þrátt fyrir það þótt þingið treysti sér ekki til að verða við óskum þessara hreppa og veita þeim eftirgjöf, geta þeir auðvitað snúið sér til Búnaðarbankans og samið við hann um einhverjar ívilnanir eða fullkomna eftirgjöf, ef honum þykir ástæða til.

Þá kem ég að Ostagerðarfélagi Önundarfjarðar. Frá því hafa ekki fengizt nákvæmar skýrslur, þannig að erfitt er að dæma um fjárhag þess. Lánið var upphaflega 10 þús. kr., en í árslok 1929 var það komið niður í 9.141,67 kr. Mín till. er sú, að Búnaðarbankinn gerði samning um þessa skuld, því að ég þóttist ekki hafa svo skýr gögn í höndum, að ég gæti lagt til, að lánið yrði gefið eftir með öllu. Hinsvegar hygg ég, að fjárhagur félagsins sé þannig, að engin von sé á því, að þetta lán fáist að fullu greitt, og því get ég gengið inn á till. hv. þm. V.-Ísf., jafnvel þótt eitthvað mætti kannske fá greitt, ef hart væri gengið eftir.

Eins og ég tók fram áðan, verður þetta mál lagt fyrir fjvn. Ed., og geta þá þeir hv. þm., sem einhver plögg hafa í höndum, sem gefa nánari upplýsingar, snúið sér til hennar, til að fá leiðrétting mála sinna, ef ástæður eru til.