31.03.1930
Efri deild: 65. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (1075)
5. mál, sveitabankar
Jón Þorláksson:
Ég vil aðeins segja það um brtt. á þskj. 376, sem e. t. v. er fram komin að einhverju leyti vegna minna ummæla við fyrri hl. þessarar umr., að ég tel hana til bóta, það sem hún nær. En þó hún væri samþ., nægir það ekki til þess, að ég geti greitt atkv. með brtt. á þskj. 358 þannig breyttum. Ég tel ekki mega fella niður úr frv. öll þau varúðarákvæði, sem þær brtt. gera ráð fyrir að falli burt.