20.03.1930
Neðri deild: 58. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

1. mál, fjárlög 1931

Þorleifur Jónsson:

Ég á hér brtt. á þskj. 324, ásamt hv. 1. þm. Árn., um 4.000 kr. fjárveitingu til mælinga og rannsókna á vatnasvæði Hornafjarðarfljóts og Hólmsár.

Hér er um merkilegra mál að ræða en virðast kann í fljótu bragði. Það er ef til vill ekki öllum kunnugt, hvílíkan usla Hornafjarðarfljót og fleiri ár þar eystra hafa gert á jörðum þar í grenndinni, eins og ár þær gera, sem renna sitt á hvað og sífelldlega skipta um farveg. Hinsvegar getur land það, er fyrir skemmdum verður, gróið upp á löngum tíma, ef vötn falla frá, og er þetta svipað og um vatnaspjöllin í Rangárvallasýslu, sem öllum munu kunn af umtali hér á þingi. Er því sennilegt, að gera mætti eitthvað þarna eystra, til að verjast landskemmdum, eins og gert hefir verið í Rangárvallasýslu. En vatnasvæðin hafa lítt verið rannsökuð ennþá. Þó var byrjað lítilsháttar á rannsóknum í fyrra, og hafði hr. ráðunautur Pálmi Einarsson þær á hendi. Gerði hann athuganir á rennsli Hornafjarðarfljóts, til að vita, hvort hægt væri að byggja garð til varnar því landi, sem aftur er farið að gróa upp. En ráðunautinn skorti bæði tíma og mannafla til rannsóknanna. Nú hefi ég rætt um það við ráðunautinn, hvernig að skyldi fara, og farið fram á, að Búnaðarfélagið héldi áfram mælingunum. En búnaðarmálastjóri hefir sagt, að félagið vantaði fé til þess, og skal ég til glöggvunar lesa upp bréf um þetta efni frá Pálma Einarssyni:

„Þar sem þér hafið spurt mig um álit mitt viðvíkjandi fyrirhleðslu fyrir Hornafjarðarfljót (Austurfljótin) hjá Hoffelli til varnar landskemmdum og aukningu nýgræðslu á býlunum Hoffeli, Setbergi, Krossbæ og Stóru-Lág, þá leyfi ég mér að skýra yður frá þeirri afstöðu, er ég tel hægt og rétt að taka viðvíkjandi því máli, eins og sakir standa nú:

1. Á vegum Búnaðarfélags Íslands athugaði ég s. l. sumar hið umrædda svæði, og er það mjög álitlegt til græðslu og er líklegt, verði það tryggt gegn ágangi Hornafjarðarfljóts, að þar komi, er tímar líða, mjög góð engjalönd til afnota fyrir þessi býli.

2. Rannsóknir, er byggja megi á áætlanir um framkvæmdir, eru ekki gerðar. Aðalástæða þess var sú, að ég tel heppilegast og nauðsynlegt, að fram fari ítarlegar rannsóknir á öllu vatnasvæði Hornafjarðarfljóts (hins eystra og vestra) í byggð, og annara vatna, austan Skálafells og Smyrlabjarga. Kæmi svo til rannsóknar vesturhluti Nesjahrepps og Mýrar allar. Á öllu þessu svæði liggja mörg býli fyrir skemmdum frá aurvötnum, og stór landsvæði líkleg til uppgræðslu hafa þar á liðnum öldum eyðilagzt og jarðir lagzt í eyði.

Varnarráðstafanir og uppgræðsla þessa lands þarf að byggjast á nákvæmum rannsóknum og mælingum svæðisins, og á þeim byggðar síðan skipulagsbundnar framkvæmdir.

Til þessa undirbúnings þarf nokkurn tíma og fé, og tel ég það nauðsynlegt, að þessar rannsóknir yrðu framkvæmdar hið bráðasta, því þær leiða í ljós, hverjir möguleikar eru til hagnýtra umbóta á þessu svæði og á hvern hátt það vandamál tveggja sveita verður til lykta leitt, að vernda þær frá eyðileggingu sanda og jökulvatna.

Ég hygg, að einn mælingaflokkur lyki þessum rannsóknum á einu til tveimur sumrum, og lauslega áætlað myndi það kosta 8–10 þús. kr.

Virðingarfyllst.

Pálmi Einarsson“.

Það er með tilliti til þess, sem hér er lagt til, að ég fer nú fram á fjárveitingu til rannsókna á vatnasvæðinu. Hefi ég farið fram á 4.000 kr. nú, og býst ég við, að næsta þing þyrfti að veita aðrar 4.000 kr. Pálmi Einarsson gerir ráð fyrir, að 8 þús. kr. þurfi í þessu skyni. Ég skal geta þess, að fimm jarðir í Nesjahreppi hafa misst engjar á sléttlendi af völdum vatnanna, en nú hafa vötnin hnigið þaðan aftur og landið er tekið að gróa upp. Vötnin hafa hallazt vestur á bóginn, og eigi færri en 17 jarðir í Mýrahreppi eru í hættu fyrir Hornafjarðarfljóti og Hólmsá, ef ekki er að gert. Þar hafa eyðilagzt mörg býli í minnum þeirra, er nú lifa, og fyrir nokkrum árum skemmdist stór jörð svo, að bóndinn varð að flytja sig í burtu, en jörðin var lögð undir aðra jörð.

Það skiptir því miklu máli, hvort hægt er að verja héraðið og hvernig það skuli gert. Kemur þar tvennt til greina. Annað er að nota skurðgröfu eða önnur dýpkunartæki, en hitt að nota garða til fyrirhleðslu. Um þetta er ekki hægt að segja, fyrr en mælingar hafa farið fram og svæðið hefir verið kortlagt.

Því miður fékk ég ekki bréf það, er ég las upp, fyrr en í gær og gat því ekki lagt mál þetta fyrir fjvn. Býst ég við, að fjvn. hefði orðið málinu hlynnt, ef hún hefði fengið nægilegar upplýsingar í tíma, en þar sem flestir hv. fjvn.menn eru ókunnugir málinu, er ekki að vænta, að þeir séu eins örir og ef þeir hefðu átt kost á að kynna sér það. Sumir kunna að segja, að Búnaðarfélagið geti innt þetta verk af hendi. Ég hefi talað um þetta við Sigurð Sigurðsson búnaðarmálastjóra, en hann segir, að Búnaðarfélagið hafi látið 2 mælingarflokka starfa að slíkum rannsóknum í Rangárvallasýslu og á öðrum stað, og það geti ekki lagt meira fé fram. Ég hygg þó, að það borgi ekki nema öðrum þessum flokki, en hinn sé kostaður af ríkisfé.

Á seinni árum hefir verið lögð stund á að verja landið fyrir sandfoki og ágangi vatna, og af því, að sú stefna er uppi, hefi ég komið fram með þessa brtt., því að ég veit, að allir, sem vilja rækta landið, vilja líka vernda það fyrir skemmdum og hjálpa til að nýgræðingurinn fái að þroskast.

Þar sem þetta er eina brtt. við fjárlögin, sem ég ber fram fyrir mitt kjördæmi, vænti ég þess, að þetta nauðsynjamál fái góðar viðtökur hjá hv. fjvn. og hv. deild.