20.02.1930
Efri deild: 30. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1245 í B-deild Alþingistíðinda. (1093)

14. mál, Menntaskólinn á Akureyri

Jón Jónsson:

Það er nú svona með okkur hv. 3. landsk., að við erum á skiptri skoðun um það, hvað þurfi til að gera skólann fullkominn. Hv. þm. virðist álíta, að það héti hann ekki orðið, nema latína sé þar kennd öllum nemendum, en ég lít svo á, að fleiri námsgreinir geti verið öllu hentugri til þess, einkum þar sem aðrir hafi ekki beina þörf fyrir latínukunnáttu en læknar. En um þetta skeyti, sem hér hefir verið talað um, er það að segja, að skólameistari leitaði umsagnar háskólans, og eftir því að dæma virðist það bara vera læknadeildin, sem krefst latínukunnáttu, og við viljum gefa nemendum, er hana ætla að sækja, kost á þeirri kunnáttu.

Þótt nemendum, sem ekki þurfa latínunnar með, sé hlíft við henni, fæ ég ekki séð, að skólinn verði ófullkomnari fyrir það, enda veit ég ekki betur en allir háskólar nágrannalandanna taki hiklaust við ólatínulærðum mönnum.