20.03.1930
Neðri deild: 58. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í B-deild Alþingistíðinda. (111)
1. mál, fjárlög 1931
Frsm. fyrri kafla (Jörundur Brynjólfsson):
Það er nú búið að segja allmörg orð um brtt. þær, sem fyrir liggja, síðan ég talaði í gær. Mun ég því reyna að lengja umr. sem minnst.
Vík ég þá að II. brtt. á þskj. 302, um sjúkrastyrk handa Unni Vilhjálmsdóttur. Meiri hl. fjvn. fellst ekki á brtt. þessa. Vafalaust er þó sanngjarnt og réttmætt að veita þennan styrk, en ef ætti að fara að sinna öllum slíkum kröfum, yrðu þær sennilega nokkuð margar.
Þá er II. brtt., frá hv. þm. Mýr., um sjúkr.styrk til Lúðvígs Guðmundssonar. Nokkur hl. n. er till. andvígur, og má segja um hana það sama og till. næst á undan, að æskilegt væri að geta orðið við henni, en hinsvegar hættulegt að skapa fordæmi.
Þá kemur brtt. frá þm. Dal., um hækkun til Vesturlandsvegar úr 40 þús. upp í 70 þús. (JS: Sú till. er tekin aftur). Þá þarf ég ekki að fjölyrða um hana, en þó get ég ekki látið þessa brtt. svo framhjá fara, að ég segi ekki nokkur orð.
Gert er ráð fyrir, að Vesturlandsvegurinn kosti alls 90 þús. kr. Í gildandi fjárlögum eru ætlaðar 20 þús. kr. til vegarins og í fjárlagafrv. fyrir 1931 40 þús. Nú vill hv. þm. Dal., að veginum verði lokið næsta sumar. Nú er mér sagt, að hæstv. atvmrh. hugsi til að láta ljúka við veginn næsta sumar, þannig að fjárveiting sú, er standa á í fjárl. 1932, verði notuð næsta sumar. En nú er ósýnt, hvað þingið lætur af hendi í þessu skyni, og auk þess er hæpið að lofa, að verkið skuli verða unnið árið áður en fjárveitingin á að borgast út. Þetta hefir að vísu átt sér stað, en samkv. nál. fjvn. ætlaðist hún til, að farið yrði eftir ákvæðum fjárl. um þessi efni. Þessi yfirlýsing hæstv. atvmrh. brýtur því í bága við till. nefndarinnor. Ég býst við því, að n. haldi fast við það, að gert verði sem minnst að því, að greiða um fjárlög fram, og ég verð líka að segja það, að mörg héruð hafa orðið að bíða lengur en í tvö ár eftir vegi, því að víða hefir það tekið áratug að ljúka við smáspotta, og verið mylgrað 10–5 þús. kr. í þá árlega.
Mig skal ekki undra, þótt hv. þm. Dal. sé ánægður með undirtektir hæstv. atvmrh. Hitt er annað mál, hvort deildin er það, og geri ég varla ráð fyrir því, að svo sé. Hv. þm. Dal. sagði, að hér væri ekki um aukin útgjöld að ræða, þar sem þegar væri ákveðið að leggja veginn, en hið sama má segja um alla þjóðvegi, og hætt er við, að gjaldþol ríkissjóðs brysti, ef ljúka ætti við þá alla í sumar.
Þá kem ég að V. brtt. á þskj. 302, frá hv. þm. V.-Ísf., um 20 þús. kr. til Breiðadalsheiðarvegar. Ég hefi þau boð ein að flytja frá n., að hún er brtt. mótfallin; ekki af því, að þessi vegur sé eigi nauðsynlegur fyrir héraðið, heldur af fjárhagsástæðum, og auk þess er þetta ekki þjóðvegur og á því að, sæta sömu meðferð og sýsluvegir.
Þá kem ég að brtt. hv. 1. þm. S.-M., um að færa styrk til byggingar í Bakkaseli niður í 10 þús. kr. úr 35 þús. Fjvn. getur ekki fallizt á þetta. Telur hún, eins og hv. 2. þm. Eyf. og hæstv. fjmrh. hafa bent á, að eigi sé unnt að byggja upp í Bakkaseli fyrir þessar 10 þús. kr. Hinsvegar hefi ég borið fram brtt. um að færa upphæðina niður í 25 þús. kr. Fjvn. mælir með þessari till. og telur, að hægt sé að byggja sæmileg íbúðar- og útihús fyrir hana. Um íbúðarhús er til áætlun, og er gert ráð fyrir, að það kosti 14 þús. kr. 11 þús. ættu að nægja til útihúsa.
Þá er brtt. VI, 2, um að færa styrk til að byggja útihús í Fornahvammi úr 8.000 niður í 4.000 kr. Meiri hl. n. er á móti þessu, telur þetta of lága upphæð.
Þá er á sama þskj. brtt. VII, um styrk til Guðlaugs Þórðarsonar, til þess að stækka gistihúsið að Tryggvaskála, 4.000 kr. Meiri hl. n. leggur á móti þessari fjárveitingu.
Þá er næsta brtt. á sama þskj., frá hv. þm. N.-Ísf., nýjar símalagningar. Það er um að hækka upphæðina til þeirra og verja 12.500 kr. til að koma símalínu frá Sandeyri að Stað í Grunnavík. Um þessa brtt. eru óbundin atkv. í fjvn., en nokkur hluti n. leggur þó á móti henni, ekki sakir þess, að hún efist um, að hv. þm., sem hefir mælt með þessari till. mjög greinilega, kunni ekki að hafa rétt mál að flytja, eða að ekki sé æskilegt að koma þessu í framkvæmd, heldur af því, að n. treystir sér ekki til að mæla með því, að meira fjármagni sé varið úr ríkissjóði heldur en þegar er búið að ákveða í þessu skyni.
Þá er IX. brtt. á sama þskj., frá hv. þm. Dal., um að leggja nýjar símalínur í Dölum. Eru það 50 þús. kr. til símalínu frá Dalsmynni að Búðardal, og önnur till. um nýja símalínu frá Staðarfelli um Skarð að Stórholti, 29.000 kr. Hv. þm. talaði mjög um það, að þetta væri landbúnaðarhérað og að kapphlaup væri hafið milli flokkanna um að styrkja sem mest landbúnaðinn og gera honum allt til liðveizlu og taldi, að þetta væri eitt af þeim atriðum, sem sveitirnar skipti mestu máli. Allt er þetta mjög vel kunnugt, og menn vilja náttúrlega gjarnan greiða fyrir þessu máli hér sem annarsstaðar, en hv. þm. veit, að víðsvegar um land verða héruðin að bíða, og það meira að segja héruð, sem hafa fengið von um línur samkv. ádrætti frá löggjafarvaldinu. En þetta hefir dregizt af sömu ástæðu og ég gat um viðvíkjandi hans brtt., að þingið hefir ekki séð sér fært að verja meiru fé í þessu skyni. En viðvíkjandi fullyrðingu hv. þm. um það, að landssímastjóri teldi það nauðsynlegt, að fyrri símalagningin kæmi árið 1931, þá er það svo, samkv. þeim upplýsingum, sem fjvn. hefir, að landssímastjóri hefir ekki séð sér fært að ráða til, að hún yrði byggð, vegna þess hve mikið hún kostar. Fjvn. hefir einmitt í höndum álit landssímastjóra um þessa hluti, svo að ég þarf því eiginlega ekki að fjölyrða um þessa brtt. hv. þm. frekar. Ég er ekkert að draga það í efa, að þetta væri gott og gagnlegt að koma þessu í kring, að það væri æskilegt fyrir héraðið o. s. frv., en fjárhagurinn verður að ráða, og það verður að sitja fyrir.
Um brtt. XI. á sama þskj., sem hv. þm. N.-Þ. flytur, þarf ekki að fjölyrða, þar sem sú till. hefir verið tekin aftur.
Þá er XII. brtt. á sama þskj., frá hv. 2. þm. Eyf., um að byggja nýjan vita á Sauðanesi við Siglufjörð. Hv. þm. hefir mælt mjög fyrir nauðsyn þessa máls og taldi þann vita hafa mjög mikla þýðingu fyrir innsiglingu inn til Siglufjarðar, og ég ætla ekki að fara að mæla á móti því. Hinsvegar sér fjvn. sér á engan hátt fært að mæla með hækkun til vitabygginganna, og hvað undirbúning þessa máls snertir, má gjarnan segja það, samkv. þeim skjölum og skilríkjum, sem fjvn. hafa borizt um þetta, að málið sé hvergi nærri nóg undirbúið. Má vel vera, að vitinn sjálfur kosti ekki meira, en hitt er algerlega óupplýst, hvort rekstur vitans kostar ekki meira árlega. Ég ætla, að vitamálastjóri hafi eigi gert sér nógu ljósa grein fyrir því, hve mikill árlegur kostnaður myndi verða; virtist hann helzt gera ráð fyrir, að það mætti stunda vitann frá næstu býli við hann, en kunnugir menn hafa fullyrt, að þess sé enginn kostur, og vitanlega verður þá maðurinn að búa þar. Af þessum ástæðum leggur meiri hl. n. á móti byggingu vitans að þessu sinni. Viðvíkjandi því, að þessi viti kæmi fleirum landsmanna að notum en Siglfirðingum, efast ég ekkert um, né heldur að það sé gagnlegt fyrir sjófarendur að hafa vita á þessum stað, en n. getur samt sem áður ekki mælt með byggingu hans.
Þá er XIV. brtt. á sama þskj., til viðgerðar öldubrjótnum í Bolungavík, 7.500 kr. Hv. þm. gerði grein fyrir þeirri bilun, sem orðin er á þessum garði, og lýsti því, hver hætta væri á ferðum, að brimið skemmi brimbrjótinn enn meira, ef ekki verður að gert. Hv. þm. gat þess, að tilraun til viðgerðar hefði verið framkvæmd á síðastl. sumri, en sem hefði misheppnast, og sú áætlun, sem fyrir lægi um viðgerð á brimbrjótnum nú, áætlaði kostnaðinn 15.000 kr. Þær 7.500 kr., sem hér er farið fram á, eru því helmingur þess kostnaðar, sem þarf til þess að koma í veg fyrir frekari skemmdir á brimbrjótnum. Hinsvegar, ef ætti að gera við brimbrjótinn eins og þyrfti, til þess að öruggt væri og kæmi að fullum notum, myndi það verk kosta eitthvað kringum 80 þús. kr.
Fjárveiting til þessa mannvirkis hefir nú verið sótt til Alþingis árum saman. Um mörg undanfarin ár hefir verið farið fram á lokaveitingu til þessa mannvirkis, og samt hefir þing eftir þing komið ný beiðni.
Ég skal nú ekki álasa hv. þm. kjördæmisins, þótt hann verði að bera þetta fram, því að hver og einn getur farið í sjálfs sín barm, þegar um slíkt er að ræða, og það er ekki nema eðlilegt, að hv. þm. vilji fá úr þessu bætt. En það er það sorglega fyrir okkur, sem eigum að greiða atkv. um þessar fjárveitingar, að okkur bregðast sífellt þær vonir, sem við höfum um góðan árangur, og maður veit ekkert, hvenær séð er fyrir endann á þessu. Það er leitt að geta ekki fengið fulla vissu um það, hvernig og hvenær hægt verður að gera við þetta mannvirki. Óhöppum er kennt um. En nú ætla ég þó, að þeir menn, sem starfað hafa hjá vitamálastjóra, og hann sjálfur, hafi árum saman haft kynningu af þessu, og ég verð að segja, að það er raunalegt, ef þeir hafa ekki komið auga á það, hvernig á að gera við þetta mannvirki, svo að endist. Fjvn. er því mjög í vandræðum, þegar á að ákveða um þetta; hún hefir sem sagt óbundnar hendur um atkvæði, en ég býst við, að nm. eigi mjög erfitt með að greiða atkv. með þessari fjárveitingu, vegna þess ótta, að þessi viðgerð muni ekki endast og að það sama muni endurtaka sig ár frá ári: Ég býst alls ekki við því, enda væri það heldur ekki rétt, að það stæði á fjvn. frekar heldur en mörgum öðrum þdm. að greiða atkv. með þessari fjárveitingu, ef öruggt væri, að ráðin yrði bót á þessu, því að um nauðsyn þess fyrir íbúa hreppsins þarf maður sjálfsagt ekki neitt að efast.
Þá ætla ég, að ekki séu fleiri brtt. á þessu þskj., sem ég þarf að gera að umtalsefni. Ég ætla þá stuttlega að víkja að brtt. þeim, sem eru á öðrum þskj.; tek ég þær eftir tölusetningu þskj. og byrja þá á þskj. 316, I. Það er persónuleg launaviðbót til Magnúsar Jochumssonar póstfulltrúa. Ég verð, því miður, að flytja hv. flm. þessarar brtt. þá frétt, að n. leggur á móti henni.
Þá er brtt. II., frá samgmn., til Flugfélags Íslands, fyrst styrkur til flugferða, 20 þús. kr., annað til flugvélakaupa, 50 þús. kr., alls 70 þús. kr. Hv. frsm. samgmn. mælti með þessari till. og gat þess, að tilætlunin væri að kaupa og starfrækja tvær flugvélar allt árið, aðallega í því skyni að flytja póst og farþega. Ég vil nú ekki í sjálfu sér af hálfu fjvn. mæla í gegn því, að eitthvað gott kunni af þessari starfsemi að leiða, það get ég ekki, en hinsvegar er það álit n., að við höfum svo mörgu öðru nauðsynlegu og gagnlegu að sinna, sem taka ber fram yfir þessa starfsemi, að við verðum að láta þetta bíða um stund. Ég býst við, að á næstunni verði flugferðir meira notaðar til skemmtunar en gagns. Hinsvegar er það fyrirfram vitað, að ef á að sinna þessu, svo að til gagns verði, þá hlýtur það að kosta mikið fé. En það er ekki á einstakra manna færi að halda uppi slíkri starfsemi; til þess að hún geti gengið, verður ríkissjóður vafalaust að leggja mikið af mörkum, enda var það líka að heyra á ræðu hv. frsm., því að hann gat þess jafnvel út af því litla, sem þegar hefði veitt verið, að nú væri svo langt komið, að aftur yrði ekki snúið. Nú getur fjvn. alls ekki fallizt á þessa röksemd, en ég vil alls ekki segja, að ef farið væri að veita svo stórkostlegar fjárveitingar, að þá væri ef til vill erfiðara að snúa aftur. Ég hygg því, að gætilegast væri að veita ekki fjármagn í þessu skyni, og því leggur fjvn. eindregið á móti því að samþykkja slíka till. sem þessa.
Brtt. 316, III., frá hv. þm. Rang., er tekin aftur, svo að ég þarf ekki að gera þá till. frekar að umtalsefni.
Þá er brtt. II. á þskj. 319, sem er frá hv. þm. Borgf. o. fl. Hún er um að skipta upphæðinni, sem ætluð er til útvarpsráðs, útvarpsstjóra og útvarpsefnis, þannig, að laun útvarpsstjóra séu færð sér, en hitt, útvarpsráð og útvarpsefni, haft saman. — Af hálfu fjvn. eru óbundin atkv. um þetta, en ég fyrir mitt leyti get ekki séð að það sé neitt á móti slíkri skiptingu, því eins og menn vita um ýmsar starfsgreinar í fjárl., er einmitt þessi tilhögun höfð. Það er þess vegna ekkert, sem mælir á móti slíkri skiptingu á fjárveitingu eins og þessari.
Ég ætla þá, að ég hafi drepið á þær till., sem snerta minn kafla, af hálfu fjvn. Áður en ég lýk máli mínu, verð ég að. víkja örfáum orðum að till., sem ég flyt. Ég skal reyna að gera það mjög stuttlega.
Það er þá fyrst IX. brtt á þskj. 316. Hún er um, að stj. sé heimilt að veita Halldóri Arnórssyni umbúðasmið eftirgjöf á eftirstöðvum af viðlagasjóðsláni, 5.500 kr. Þegar þessi maður fór til náms til að nema umbúðasmíði, var honum veitt nokkur fjárupphæð til náms og til áhaldakaupa. En nú hefir hann fengið lítilfjörlegan styrk í nokkur ár, til þess að halda þessari starfsemi uppi. Hann er eini Íslendingurinn, sem kann þessa iðn, en allir vita, hver nauðsyn er að hafa slíkan mann hér á landi, svo að þeir, sem þurfa að afla sér gervilima, þurfi ekki að sækja slíkar bætur til útlanda. Þess verður einnig að geta, að erlent umbúðasmíði tekur sízt fram vinnu þessa manns; hann er dverghagur, svo að hann minnir mann á fornar sagnir, þar sem lýst er dvergum, sem gátu leyst af hendi hið haglegasta smíði. Hann verður að leigja sér dýrt húsnæði og liggja með mikið og dýrt efni. Alþingi hefir ekki, þótt það að vísu hafi sýnt honum nokkurn vott um viðurkenningu fyrir starf sitt, látið í ljós sem skyldi, að það hafi metið það að fullu, hver nauðsyn er að hafa slíka starfsemi hér heima. Ég get máske öðrum fremur borið um þessa nauðsyn, og því flutti ég þessa brtt., því að ég varð um eitt skeið að leita til þessa manns, og mig hefði a. m. k. kostað það fleiri þúsund krónur, ef ég hefði orðið að sækja þær umbúðir, sem ég þurfti, til útlanda. Ég vil ekki segja, að hann geri þessa hluti betur en útlendir menn gera þá bezt, en vinna hans mun þó fullkomlega standa erlendri vinnu jafnfætis, og mun öllu ódýrari. Ég hefi að vísu heyrt suma segja, að hann gefi ekki handaverk sín, en þeir, sem þekkja til erlendis, munu vita, að allt af því tægi er enn dýrara þar.
Nú hefir hæstv. fjmrh. heldur andmælt þessari till., ekki af því, að honum þætti hennar ekki full þörf, heldur af því, að viðlagasjóður eigi að ganga til Búnaðarbankans. Ég verð að geta þess, að þótt fullnaðarráðstöfun hefði verið gerð á viðlagasjóði, þá hefði verið hægur hjá að gera slíka leiðréttingu, þar sem ekki hefði þurft annað en að greiða þessa upphæð til Búnaðarbankans. En þar sem þessari ráðstöfun er ekki lokið, get ég ekki séð, að neitt mæli í gegn þessari till. Hæstv. ráðh. gat þess líka í öðru sambandi, þar sem talað var um að gefa nokkrum hreppum, sem illa væru staddir, upp lán úr viðlagasjóði; fannst mér þá hæstv. ráðh. ekki sjá neitt á móti því, að sú ráðstöfun væri gerð, en hér gegnir sama máli.
Til sönnunar því, að hér sé um þjóðnytjamann að ræða, mætti kannske benda á það, að þegar hann var við nám erlendis, þá gerði, hann þann smíðisgrip, sem enginn þeirra manna, er á þeirri vinnustofu unnu, var fær um að inna af höndum, og þegar hann kom til dóms, sögðu þeir, er dæma skyldu, að hann væri svo vel gerður, að ekki væri hægt að finna lýti á. Þar sem um þjóðnytjastarf er að ræða og fjölhæfan mann, sem frekast verður á kosið, verð ég að líta svo á, að þessi hv. d. megi ekki láta þá vansæmd eftir sig liggja, að verða ekki við þessari ósk.
Þá á ég brtt. á þskj. 319; það er V. brtt., viðvíkjandi því að láta byggja sjóvarnargarð á Siglufirði, og á að greiða helming kostnaðar. Það er brtt. við brtt. hv. 2. þm. Eyf. Þegar fé var veitt til þessa mannvirkis, mun það hafa verið helmingur kostnaðar, sem bar að greiða. Ég tel ekki nema í alla staði rétt og eðlilegt, að þetta hlutfali haldist; hinsvegar get ég lýst yfir því, gagnvart þessari brtt., sem fjvn. getur fallizt á, ef ákvörðun væri sett um að veita fé í þessum tilgangi í fjárlögum, þegar rannsókn væri lokið um það, hversu mikið þetta kostaði, að n., eða a. m. k. nokkur hluti hennar, mun ekki sjá sér fært að fylgja þessari till. minni, nema slík ákvæði verði sett inn í hana. Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um hana, aðeins geta þess, að mér finnst í alla staði eðlilegra, að þetta hlutfall ráði, hvað sem gert verður við síðara atriðið, sem ég drap á.
Þá er ég meðflm. að einni brtt., sem hv. þm. A.-Sk. flytur. Hún er um, að veittar verði 4.000 kr. til mælinga og rannsókna á vatnasvæði Hornafjarðarfljóts og Hólmsár á Mýrum. Af því að ég hefi kunnugleika mikla á þessum stöðvum, vil ég gjarnan taka undir með hv. þm. A.-Sk. um nauðsyn þessa máls. Þeir menn, sem komið hafa á Almannaskarð í björtu og heiðskíru veðri og horft vestur um undirlendið, þeim er vafalaust minnisstæð sú sjón, sem þá blasti við augum. Það er einhver hin fegursta sjón, sem ég hefi séð. Grasgróið undirlendi blasir við, jöklarnir í baksýn og fjörðurinn vestur með, alsettur eyjum langt til vesturs. Aðeins eitt meiðir augað; það er að sjá, hve vatnið hefir gert mikil spjöll á þessum slóðum. Það eru til fornar frásagnir um það, að í Skógey, eyju einni í Hornafjarðarfljóti, hafi fyrrum verið átján bæir. Nú er þar enginn bær. Hornafjarðarfljót er búið að taka, nær allt landið, sem áður var frjósamt og skógi vaxið. Nú hagar þar svo til, að áin hefir um mörg ár slegið sér vestur með fjallinu. Austurhluti þessa lands er því allmikið gróinn upp. Hinsvegar getur enginn sagt um það, nema fljótið geti grafið sig gegnum þetta land og eyðilagt gróðurinn. Hv. þm. A- Sk. og ég flytjum till. um það, að heimila fjárveitingu til þess að rannsaka, hvað þarf að gera til þess að tryggja það, að fljótið eyði ekki þennan nýja gróður sem er að koma upp úr jökulleirnum. Ég tel því illa farið, ef þingið lætur standa á sér að verða við þessum tilmælum. Hver blettur, sem græða má upp án þess að það kosti mjög mikla fjármuni, er dýrmætur fjársjóður, ekki aðeins fyrir nútíðina, heldur einnig fyrir komandi kynslóð. Þess vegna verður ríkið bæði að vernda þann gróður, sem er í landinu, og einnig að auka hann, eftir því sem hægt er. Og hvað þessa brtt. snertir, þá vona ég, að hv. þdm. taki henni vel.
Ég vænti þess, að ekki þurfi að mæla frekar fyrir þessari till., og vil ég þá láta máli mínu lokið.