31.03.1930
Neðri deild: 67. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (1115)
14. mál, Menntaskólinn á Akureyri
Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):
Ég ætla aðeins að benda hv. I. þm. Reykv. á það, að frv. gerir ráð fyrir, að í gagnfræðadeildinni verði 3 bekkir, en ekki í, og það er enginn stafur um það í frv., að gagnfræðadeildin eigi að vera undirbúningskóli undir Menntaskólann. Gagnfræðadeildin á að hafa sitt sjálfstæða takmark. Hitt er annað mál, að líkur eru til, þess, að skilyrði verði þar fyrir víðtækari menntun en í öðrum gagnfræðaskólum og að deildin verði því sótt víðar að en úr héraðinu. Gæti ég og vel unnað skólanum þess, vegna fortíðar hans, að hann hefði nokkra sérstöðu meðal gagnfræðaskóla í landinu.
Að gagnfræðadeildin á ekki samkv. frv. að vera undirbúningsskóli undir Menntaskólann, eins og hv. þm. heldur fram, sést t. d. á því, að þýzka er heimtuð við inntökupróf í Menntaskólann, en ég býst ekki við, að sú námsgrein verði kennd í gagnfræðaskólanum. Það er því augljóst, að menn verða að bæta við sig námi til að geta komizt úr gagnfræðaskólanum upp í Menntaskólann.