31.03.1930
Neðri deild: 67. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1267 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

14. mál, Menntaskólinn á Akureyri

Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson):

* Einmitt vegna þess, að ekki er gert ráð fyrir þýzku í gagnfræðaskólanum, er það augljós að bezt er fyrir þá, að ákveðið sé með reglugerð, hvernig honum skuli fyrir komið, því að þá er hægt að ákveða hvað, sem mönnum þykir bezt henta. Þá er hægt fyrir þá að setja þær reglur um námið, að það verði undirbúningur undir Menntaskólann. Brtt. opnar þá möguleika, en eftir frv. er það ekki hægt. En sé svo 3. bekk bætt við, þá er það í samræmi við það, að ekki sé óheppilegt, að 3. bekkur taki við af 2. bekk og leiðirnar skiptist, þegar komið er upp úr 2. bekk, sumir fari í 3 bekk, en aðrir í Menntaskólann.