02.04.1930
Neðri deild: 69. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (1124)

14. mál, Menntaskólinn á Akureyri

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég ætla að segja hér fáein orð um till. hv. þm. Ísaf.

Ég skal játa, að ég vildi gjarnan vera með till. hans og hafa ekki tvískiptingu við skólann á Akureyri. Þetta tók ég fram við 2. umr. þessa máls. Þetta hérað, Eyjafjörður, hefir haft sinn alþýðuskóla á Möðruvöllum og Akureyri nú um 50 ára skeið. Í stað þess eiga þeir nú að fá stofnun, sem verður fyrir allt landið.

Ég skal játa, að það er hugsanrétt hjá hv. þm., en það hefði líka verið hugsanrétt að innlima Eiðaskóla í héraðaskólalögin, en það var ekki hægt, þar sem hann byggist á eldra skipulagi, nema með samþykki aðilja.

Ég skal skýra það fyrir hv. þm. Ísaf., að þegar þetta frv. var gert af okkur hv. þm. V.-Ísf., gerðum við ráð fyrir, að þessi gagnfræðadeild yrði í samræmi við aðra gagnfræðaskóla, en nú hefir orðið sú breyt. á í meðferð málsins, að felld hefir verið niður grein, sem laut að þessu. Akureyringar kæra sig ekki um venjulegan gagnfræðaskóla, en héraðið, Eyjafjörður, þarf héraðsskóla, og ef þetta nær fram að ganga í minni stjórnartíð, svo að ég verði við að gera reglugerð fyrir þann skóla, mun ég miða við þarfir sveitanna, því ég álít, að sveitin hafi mesta þörf fyrir skólann og hann megi ekki af henni taka. Þess vegna neyðist ég til að leggja til, að deildin felli þessa till.

Það má vel vera, að „kritik“ hv. þm. Ísaf. á 8. gr. sé rétt frá hans sjónarmiði, en hún byggist á misskilningi. Þegar talað er um „skólann“ í þessu frv., er ávallt átt við Menntaskólann (fjóra bekki), með því að svo er litið á, að gagnfræðaskólinn starfi aðeins til bráðabirgða í sambandi við hann. Held ég, að þetta orðalag geti ekki valdið misskilningi, þegar að er gætt.

Þá vill hv. þm. Ísaf. fella 19. gr. niður, og svo munu fleiri vilja, af ólíkum ástæðum þó. Sumir, og þar á meðal hv. þm. Ísaf., vilja fella hana niður af því, að þeir eru á móti skólagjöldum, en aðrir vilja fella hana af því, að þeir eru með slíkum gjöldum og skoða þau sem venjulegar ríkissjóðstekjur, sem þeir vilja ekki missa. Ég vil því vara hv. þm. Ísaf. við því að beita sér fast fyrir því, að gr. verði felld niður, því að það verður aðeins til þess, að kennslugjöldum verður haldið í fjárlögum áfram. Meiri hl. þingsins hefir sýnt, að hann vill hafa skólagjöld. 19. gr. gengur í þá átt, að láta skólann hafa nokkur sérfjárráð, og held ég, að engum blandist hugur um, að slíkt sé mikils virði fyrir hvern skóla. Í Gullbringu- og Kjósarsýslu eru skólarnir nú farnir að njóta fjárframlaga úr Thorkelliisjóðnum. Það er augljóst, að skólar með slíkri aðstöðu hljóta að komast fram úr öðrum skólum. Þeir, sem eru á móti kennslugjöldum, eiga því að vinna sína sigra í fjárlögunum sjálfum, en ekki bregða fæti fyrir ákvæði 19. gr.