02.04.1930
Neðri deild: 69. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1129)
14. mál, Menntaskólinn á Akureyri
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Ef frv. yrði samþ. eins og það er nú og ég semdi reglugerðina, myndu gagnfræðabekkirnir í menntaskólahúsinu á Akureyri verða sem líkastir Lauga-, Eiða- og Núpsskólanum og miðaðir við þarfir sveitanna eins og þeir. Væri þá ekki heppilegra fyrir þá pilta, sem ætla í Menntaskólann, að vera þar heldur en í öðrum samskonar skólum. Að því leyti sem ég get haft áhrif á þetta mál, vil ég ekkert síður en að neðri bekkirnir í menntaskólanum á Akureyri verði undirbúningsdeild fyrir Menntaskólann. Eyfirðingar munu heldur ekki óska þess, að nemendur úr gagnfræðaskólanum séu á þann hátt teygðir í Menntaskólann, að afloknu tveggja vetra námi.