02.04.1930
Neðri deild: 69. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1130)

14. mál, Menntaskólinn á Akureyri

Magnús Guðmundsson:

Ég hefi fengið þá skýringu hjá hæstv. dómsmrh., að þetta sé reglugerðaratriði, og ber þá aðeins á milli, hvað á að standa í reglugerðinni. Mér finnst vera hér um lítilsverða löggjöf að ræða, ef stj. á að ráða öllu um þessi mál engu að síður og hringla með þau eftir vild. Svo var að heyra, sem hæstv. dómsmrh. vildi draga úr stúdentafjöldanum á Akureyri. Ég efast um, að það takist, og er líka í vafa um, hvort rétt sé að takmarka hann. Stúdentsmenntun er hin bezta menntun, sem hægt er að fá. Og mótsögn er það hjá hæstv. ráðh. að vilja draga úr stúdentafjöldanum og setja þó upp nýjan menntaskóla á Norðurlandi, sem svo er settur skör lægra en skólinn hér.