20.03.1930
Neðri deild: 58. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (114)

1. mál, fjárlög 1931

Frsm. síðari kafla (Bjarni Ásgeirsson):

Ég vildi leyfa mér að fara fram á það, að þeir hv. þm., sem á annað borð eru nálægir, hlustuðu á mál mitt, því ég hefi ýmislegt við þá að segja fyrir hönd fjvn. En áður en ég sný máli mínu til hv. þm. sem frsm. fjvn., vil ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um till., sem ég er sjálfur flm. að,

Það er þá fyrst brtt. III. á þskj. 302, styrkur til Lúðvígs Guðmundssonar skólastjóra til að leita sér lækninga erlendis gegn illkynjuðum sjúkdómi. Ég við aðeins taka það fram út af því, sem hv. frsm. fyrri kaflans sagði, og það í fullum rétti frá n. hálfu, að ég get ekki beygt mig undir ummæli hans. Það er að vísu alveg rétt, að allir þeir, sem lækningu þurfa, geta ekki fengið til þess styrk úr ríkissjóði. En hér er um mann að ræða, sem er í opinberri þjónustu. Og ég veit sannarlega ekki, hvert menn eins og hann, sem meira meta að starfa að þjóðnytjamálum heldur en að safna sér fjár, eiga að leita í nauðum sínum, ef ekki til ríkisins. Ég skil ekki, að neinn telji það búhnykk af þingi og þjóð, að fleygja frá sér jafngóðum og miklum starfskröftum og Lúðvíg hefir til að bera, fyrir jafnlítið og hér er farið fram á. Ég verð að vona, að slíkt komi ekki fyrir.

Þá er brtt. 302, XXXVII., sem ég er meðflm. að og ég hefi ekki minnzt á áður. Það er nýr liður til Iðnráðs Reykjavíkur, 2.000 kr. — Iðnráð Reykjavíkur var stofnað í des. 1928. Það hafði lengi staðið til, að slíkt iðnráð yrði stofnað, og í því skyni hafði legið fyrir Alþingi umsókn um 5.000 kr. styrk. Sú upphæð var ekki veitt, en þrátt fyrir það var þó iðnráðið stofnað. Þrátt fyrir nafnið, Iðnráð Reykjavíkur, nær þó starfsemi þess um allt land. Hefir það staðið í sambandi við og leyst vandamál fyrir menn víðsvegar um land. T. d. kom það í veg fyrir verkfall á Akureyri, gat þar miðlað málum. Þetta er því vísir til iðnráðs fyrir allt land. Verður starf þess hliðstætt starfi Búnaðarfél. Íslands, Fiskifélagsins og annars hliðstæðs félagsskapar. Ég flyt þessa till. af því, að ég skil vel, um hve mikla nauðsyn hér er að ræða. Þessi stofnun mun ekki einungis verða nauðsynleg vegna hins eiginlega iðnaðar, heldur og hin hjálpandi hönd við aðalatvinnurekstur landsmanna bæði til lands og sjávar. Og því meir sem atvinnuvegirnir breytast í það horf að verða vélrænir, því meiri nauðsyn verður slíkrar stofnunar. Og þeir atvinnuvegir, sem lengst eru komnir, eru orðnir nokkurskonar iðngreinar. Og því marki þurfa þeir að ná, ef þeir eiga að verða fullkomnir.

Nú sem stendur má segja, að iðnaður landsmanna sé í millibilsástandi. Hinn forni iðnaður landsmanna hvarf að mestu um leið og fólkinu fækkaði í sveitunum. Á síðustu árum höfum við nær eingöngu notað iðnað annara þjóða. Við höfum sent út ull og skinn, en keypt aftur fatnað og skó. Við höfum flutt inn mjólk og smjör, vegna vöntunar á iðnaði í landinu sjálfu. Verkfæri öll og vélar höfum við flutt inn frá útlöndum. Kjöt og fisk höfum við sent út þannig verkað, að aðeins fátækari hluti manna erlendis kaupir og neytir. Úr hvorutveggja þessu mætti þó gera hina dýrustu vöru, sem færi á borð efnamannanna. Svona mætti lengi telja. Verðmæti flestrar vöru liggur mest í því starfi, sem farið hefir til þess að búa hana til notkunar. Alls þess hagnaðar hafa Íslendingar farið á mis til þessa, og það er hlutverk Iðnráðs Íslands að bæta úr þessu ófremdarástandi. Iðnaðurinn þarf í framtíðinni að verða önnur hönd ísenzkrar framleiðslu.

Þá flyt ég næstu brtt. á sama þskj., utanfararstyrk til Friðriks Þorvaldssonar. Ég skal geta þess, að ég tek þessa till. aftur. Og þeim mun meiri rétt á sér, sem ég tel, að þessi till. eigi, samanborið við ýmsar aðrar till., er hér liggja fyrir, þeim mun meiri fórn færi ég með því að taka hana aftur og því betra eftirdæmi gef ég með þessu öðrum hv. þm.

Þá er enn till. frá mér á sama þskj., sú XXIII. Er hún um það að hækka styrkinn til Björns K. Þórólfssonar úr 1.000 kr. í 1.500 kr. Björn hefir fengið styrk áður og notar hann til að kanna söfn erlendis og semja skrá yfir þau handrit, er varða sögu Íslands á einhvern hátt. Hefir honum orðið mikið ágengt, einkum viðkomandi verzlunarsögunni. Hefir hann fundið merkileg skjöl, áður óþekkt, sem öðrum, jafnvel Jóni Sigurðssyni, hafði sézt yfir. Björn er duglegur og samvizkusamur í starfi sínu. Telur hann sig varla munu geta komizt af með minna en 1.500 kr. Vona ég, að sú till. verði því samþ.

Áður en ég vík að brtt. frá sjónarmiði fjvn., skal ég leyfa mér að árétta það, sem ég sagði við 2. umr. viðvíkjandi styrk til íþróttakennslu, að upphæð 4.000 kr., og sem þá kom inn í frv. Ég vil árétta það, að af þessum styrk, sem aðallega er ætlaður til kennslu í sveitum, fái Jón Þorsteinsson íþróttakennari 1.500 kr. styrk til utanfarar, til að fullkomna sig í íþróttum. Ég tel vel við eiga, að Jón fái þennan styrk af þessum lið. Jón er sá maður, sem mestan áhuga hefir og mest starfar til útbreiðslu íþrótta hér á landi á síðustu árum. Njóta sveitamenn mjög góðs af kennslu hans. Vil ég því treysta því, að honum sé veittur þessi styrkur, enda eru þetta samhljóða tilmæli fjvn.

Eins og þegar hefir verið getið, þá nema brtt. þær, er nú liggja fyrir, rúmri ½ millj. kr. Af þeirri upphæð eru um 52 þús. kr. till. frá fjvn. Að vísu eru nokkrar brtt. frá einstökum hv. þm., sem n. leggur til, að verði samþ. En ég verð þó að segja, að verði till. fjvn. fylgt, þá má segja, að fjárlfrv. verður afgr. forsvaranlega héðan úr deildinni. En þó er það nú svo, að sem heild er n. ekki á móti flestum þessara till., en einhver meiri hl. hennar er á móti þeim flestum. Ekki mun ég þó gera nánari grein fyrir þessu, enda kemur það í ljós við atkvgr.

Ég skal þá fyrst nefna þrjá námsstyrki, og þar sem undirtektir n. eru hinar sömu um þá alla, tek ég þá saman í eitt. Það eru liðirnir XV. og XVI. á þskj. 302 og IV. liður á þskj. 316. Allt eru þetta styrkir til náms erlendis, og kann n. ekki að gera upp á milli þessara manna. Því hefir að vísu verið hent á milli sín hér í hv. þingi, að eitthvað meira en lítið muni vera varið í þann mann, sem sækir um styrk til heimspekináms í París, þar sem sú till. hefir getað sameinað þá, sem flytja hana, hæstv. forsrh. og hv. 1. þm. Skagf.; en slíkt ber sjaldan við. En n. lítur nú svo á, að ef maðurinn er svona bráðefnilegur, þá ætti hann að fá sinn styrk frá menntamálaráði. N. vill því ekki beygja sig undir þetta,en vill gera öllum jafnt undir höfði. Hún lítur svo á, að hér sé um að ræða annaðhvort eða, og væntir þess, að hv. þdm. fylgi henni að málum í því að halda þeirri stefnu, að veita ekki þessa styrki upp á nöfn. Ég hygg líka, að nú muni bráðlega losna styrkir, og geta þá þessir menn komið til álita hjá menntamálaráði.

Þá er sú ósk fram borin af hv. þm. Ísaf., að Ósk á Ísafirði séu veittar 1.000 kr. til vefstólakaupa. Hv. flm. till. hefir nú borið fram ýmsar óskir fyrir hönd þessa félags. Get ég ekki skilið annað en að hv. þm. haldi hylli kjósenda, því svo margar óskir ber hann fram fyrir þeirra hönd. En fjvn. getur ekki orðið við þeirri ósk hv. þm. að mæla með þessum vefstólastyrk. Fjvn. hefir þegar tjáð sig samþykka einum styrk til þessa félags, og mælir því á móti því, að fleiri séu veittir.

Þá er brtt. frá hv. þm. N.-Þ., nýr liður. til blindra manna til að nema körfugerð og þesskonar iðnað innanlands. Það kann nú að þykja hart að neita styrk, er ganga á til þess að kenna blindum iðngreinar. En þrátt fyrir það hefir n. ekki getað sannfærzt um þörf þessa styrks og leggur því á móti brtt. Sama má segja um næsta lið, styrk til Unnar Jónsdóttur, utanfararstyrkur til að fullnema sig í íþróttakennslu. N. efast ekki um, að þessi kona er allra góðra hluta makleg og muni vera góður kennari. En á hitt er og að líta, að starfsemi hennar en enn afarstutt, og finnst n. rétt, að hún sýni sig nokkuð betur áður en farið er að styrkja hana til utanferða. Þegar hún hefir sýnt sömu reynslu og t. d. Jón Þorsteinsson, þá efast ég ekki um, að hún fái slíkan styrk.

Um næstu tvo liðina, til Helga Tryggvasonar og til Skáksambands Íslands, er ekkert að segja. Meiri hl. fjvn. leggur á móti þeim, en hefir þó óbundnar hendur um atkv. sín.

Um styrkinntil Árna prófasts Þórarinssonar er það að segja, að ég hafði tilhneigingu til að fylgja honum. En það varð ofan á í n., að það, sem fram á væri farið, væri allt of hátt. Ég kom því fram með vara-varatill. um, að honum verði veittar 600 kr. Vona ég, að ýmsir hv. þm. muni fylgja þessu.

Þá er brtt. á sama þskj., XXX., frá 3 hv. þm., að veita 1.500 kr. styrk til útgáfu á þjóðsagnasafni Sigfúsar Sigfússonor, gegn jafnmiklu framlagi annarsstaðar frá. Hv. 1. þm. S.-M. talaði fyrir þeirri brtt., og ég verð að álíta, að hann hafi þar farið í gegnum sjálfan sig. Hann byrjaði á að tala um allar þessar óþörfu styrkbeiðnir, sem væru í þessum brtt., en biður svo um styrk, sem er ekkert sjálfsagðari en margar þær beiðnir, sem hann var að mæla á móti.

Það er alveg rétt, sem hv. þm. sagði, að þetta safn væri að mörgu leyti merkilegt, en ég vil bæta því við, að margt í því er tiltölulega ómerkilegt. Ég skal ekki neita því, að Sigfús mun hafa lagt mikið verk í að safna þessum sögum saman og bjarga þeim frá glötun, svo að þeir menn, sem vilja rannsaka sögu þjóðarinnar í þessu efni, hafa nú aðgang að þessu safni. En eftir því, sem ég þekki til þessa safns af því, sem út er komið, er alls ekki nauðsynlegt að hraða útgáfu þess svo mjög. Það er miklu nær að velja það bezta úr og gefa það út smátt og smátt.

Þá er nokkur styrkur til tónlistamanna. Um hann get ég verið fáorður. N. varð ekki sammála um hann, en hefir óbundnar hendur við atkvgr. um hann, hver eftir sinni eigin sannfæringu. Þessi styrkur er ekki svo hár, að hann varði miklu. Sama vil ég segja um styrkinn til Halldórs Kiljan Laxness. Ég geri ráð fyrir, að hv. þdm. þyki nóg komið af umr. um hann. Sömuleiðis hefir n. óbundnar hendur um styrkinn til Magn. Ásgeirssonar.

Um styrkinn til Jónu Guðbjartsdóttur á sama þskj. kemur n. ekki saman, en meiri hl. n. er styrknum mótfallinn.

Um styrkinn til stúdentaráðsins hefir n. óbundnar hendur og sömuleiðis um styrk til kaupa á Grænlandsbókasafni Einars Benediktssonar.

Þá er farið fram á 50 þús. kr. styrk til raforkuveitu um Skagafjörð Það var rætt við 2. umr., og er því ekki ástæða til að fjölyrða um það nú. Niðurstaða sú, sem þá var komizt að, er óbreytt. Ég fer því, ekki út í einstök atriði þess máls, en vil aðeins geta þess, sem er aðalatriðið. Það er nefnilega ekki réttlátt að taka svona ákvarðanir um einstakar framkvæmdir á þessu stóra verksviði, sem hér liggur fyrir, sem sé raforkuveitunum. Allir þm. eru sammála um það, að þessu máli þurfi að hrinda í framkvæmd, en það á bara ekki að byrja á því, fyrr en búið er að fá einhvern þann fastan tekjulið, sem stöðugt megi verja til þessara framkvæmda. Það er alls ónóg að byggja hér aðeins á tekjuafgöngum á fjárl., því að þeir eru oft alls ekki til. Ég veit ekki betur en nú sé þingið að afla ákveðins styrks í þessu skyni, sem á að standa, hvort sem betur gengur eða verr með fjárhaginn og hvort sem tekjuafgangur er eða ekki. Á ég hér við tekjur af tóbakseinkasölunni. Það er miklu tryggara en að ætla til þess t. d. einstök einkaframlög, eftir því sem árar í landinu í það og það skiptið. Nú hefir verið skipuð nefnd, sem á að rannsaka þetta mál og gera till. um heildarfyrirkomulag þess. Hún álítur, að ekki eigi að koma upp einstökum raforkuveitum, eða réttara sagt að veita styrk til þeirra, fyrr en séð hefir verið fyrir þessum málum í heild og ítarlegar rannsóknir hafa verið gerðar á þeim. Þess skal ég þó geta, að vísu þó ekki fyrir hönd n., heldur er það mín skoðun, að þegar farið er að veita rafveitum styrk, er rétt, að Skagafjörður verði fyrstur til að njóta þess styrks. Þeir hafa orðið manna fyrstir til að undirbúa þessar framkvæmdir hjá sér, en það er engin ástæða til þess fyrir þá að skera sig úr með það að vilja framkvæma þetta nú á þessu ári.

Þá er beiðni um 500 kr. styrk til Bandalags skáta. Um hann hefir n. óbundnar hendur, en ég fyrir mitt leyti er þessum styrk heldur meðmæltur.

Þá koma tvær brtt., sem ég get talað um saman. Það er 25 þús. kr. styrkur til elliheimilisins Grundar og 1.000 kr. styrkur til gamalmennahælis Ísfirðinga. Um báða þessa styrki er það að segja, að n. leggst á móti þeim. Hún mótmælir alls ekki ýmsu, sem fært var hér fram af flm. við umr. Grund er ríkmannleg bygging, og þeir, sem staðið hafa fyrir henni, hafa sýnt þar mikinn áhuga og dugnað og látið þar eftir sig mikið ólaunað starf. En þetta er algerlega sérmál Reykjavíkur. Reykvíkingar ráða því sjálfir, hvernig þeir sjá fyrir gamalmennum sínum. En fyrst það er sérmál hvers bæjarfélags, hvernig það ræður fátækramálum sínum til lykta og hvernig það sér fyrir gamalmennum sínum, þá sé ég ekki, að Reykjavík og Ísafjörður hafi meiri rétt til þess en aðrir að fá styrk til þess að ala önn fyrir þessum mönnum, þó að framfærslu þeirra sé öðruvísi hagað en annarsstaðar á landinu. Það er að vísu rétt, að það er gott bæði fyrir þetta fólk og aðstandendur þess, að elliheimilin séu sem bezt, en það er mál út af fyrir sig. Og ég býst við, að önnur héruð muni sjá fyrir sinni gamalmennaframfærslu framvegis án þess að biðja um styrk til þess. Það er þeirra einkamál, hvernig þessari framfærslu er hagað. Ef þessi styrkur til Ísafjarðar verður samþ., sé ég ekki betur en hvaða sveit sem er hafi sama rétt til svona styrks til gamalmenna sinna. Það er engin ástæða, þó að Ísafjörður hafi tekið það ráð að sjá fyrir gamalmennum sínum með því að byggja hæli fyrir þau. Hafi Ísafjörður rétt til að fá svona styrk, hafa sveitirnar það líka. Þó er það meiri fjarstæða að fara fram á rekstrarkostnað til gamalmennahælis heldur en byggingarstyrk. Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að ríkið hefði tekið skemmtanaskattinn, sem annars hefði gengið til elliheimilisins, og því hefði elliheimilið kröfurétt á hendur ríkissjóðs. En ég held nú, að sama megi segja um alla skatta. Þeir gera allir mönnum örðugra að standa undir öðrum útgjöldum. Skemmtanaskatturinn er engin undantekning þar. Reyndar kemur þetta mest niður á Reykjavík, því að þar er skemmtanaskatturinn mestur, en þar á móti kemur það, að leikhúsið verður byggt í Reykjavík, og auðvitað verða það mest Reykvíkingar, sem njóta þess. Það er því alveg rétt, að þeir leggi meira til þess en aðrir.

Hv. þm. Ísaf. taldi það sem eina af ástæðunum fyrir þessum styrk, sem hann fór fram á, að veran á gamalmennahæli Ísafjarðar kostaði svo lítið. En það er aðeins sönnun fyrir því, að það var hyggilegt að koma upp þessu hæli. Og því síður er ástæða til að styrkja hælið, þar sem það er svona ódýrt í rekstri.

Þá er 17. gr. Við hana er brtt. frá hv. 1. þm. Skagf. Það er allt að 1.500 kr. sjúkrastyrkur handa Eiði Kvaran. Mér er óljúft að mæla á móti sjúkrastyrk til efnilegra manna, og það lítið sem ég þekki þennan mann sem rithöfund, virðist mér hann efnilegur maður. En þessi brtt. er við þann lið, sem berklasjúklingum er ætlaður innanlands, og það er áður óþekkt að ráðstafa nokkru af þeim styrk til að styrkja berklasjúklinga erlendis. N. leggur á móti styrknum, sérstakleg, vegna þess fordæmis, sem sú veiting gæti gefið. Það er líka ólíklegt að aðstandendur þessa unga manns geti ekkert úrræði fundið honum til bjargar annað en þetta.

Þá kemur till. frá hv. 3. þm. Reykv. og hv. þm. Borgf., að hækka styrkinn til Stórstúkunnar úr 8.000 upp í 12.000 kr. Meiri hl. n. mælir með þessum styrk. Ég fyrir mitt leyti get fallizt á rök þau, sem flm. báru fram, þegar þeir mæltu fyrir till. Starf stúkunnar er svo mikilsvert, að það virðist sjálfsagt fyrir ríkið, þegar það fær svona miklar tekjur af víninu, að einhverju af þeim tekjum sé varið til að hamla á móti því tjóni, sem af víninu leiðir, því að það yrði til þess, að þessi tekjul. fjárl. lækkaði nokkuð. En ég segi það fyrir mig, að ég álít illa farið, ef Stórstúkan fer að blanda sér inn í flokkapólitík, eins og hún gerði við síðustu bæjarstjórnarkosningar hér í Reykjavík. Þá kom hún þannig fram gegn einum stjórnmálaflokknum, að það er algerlega óforsvaranlegt. Ef stúkan ætlar framvegis að koma þannig fram gagnvart einstökum stjórnmálaflokkum, þá er vafasamt, að hún nyti áfram þeirra almennu vinsælda og þess styrks, sem hún hefir notið frá því opinbera.

Þá er brtt. frá hv. þm. V.-Ísf., að styrkurinn til Þórðar Ólafssonar sé hækkaður úr 370 upp í 555 kr. N. leggur á móti þessari brtt. vegna þess, að hún vill fylgja þeirri reglu, sem venja hefir verið að fara eftir, að eftirlaun hækki aðeins upp í visst hámark. Þó að góður maður eigi hér í hlut, þá er það svo, að n. treystir sér ekki til að gera upp á milli verðleika manna í þessum efnum eða leggja til, að einn fái meira en annar.

Þá er brtt. við 18. gr. frá hv. þm. Barð., um 300 kr. styrk til Kristínar Jónsdóttur frá Brjánslæk. N. getur ekki lagt með þessari brtt., því að ef svona styrkir eru veittir, mundu eflaust koma fleiri slíkar styrkbeiðnir á eftir. Það hefir líka verið vani að leggja svona styrkbeiðnir fyrir fjvn. í þingbyrjun, svo að hún gæti athugað, hvort rétt væri að samþ. þær. En nú kemur þessi brtt. svona seint, og ekkert það hefir legið fyrir n., sem sýni, að rétt sé að veita þennan styrk. Þar að auki heyrir þetta mál undir biskupinn. Það er í hans verkahring að gera till. um styrki eins og þennan.

Þá er brtt. XLIX. á sama þskj., 200 kr. til Guðrúnar Magnúsdóttur ljósmóður. N. hefir engin þau gögn fengið í sínar hendur, sem sýni, að þessi styrkur sé réttmætur. Þessi kona hefir verið ljósmóðir aðeins stuttan tíma. Og þó að vera megi, að hún sé styrksins verðug, þá getur fjvn. ekki mælt með brtt. á þessu stigi málsins.

Þá er brtt. L. á sama þskj., að hækka styrk til Susie Briem. N. leggur á móti þessum styrk, ekki af því, að hún geti ekki gengið inn á að hækka hann neitt að gefnum upplýsingum, en henni þykir of langt gengið að hafa styrkinn þetta mikinn. Þessi kona nýtur nú 300 kr. lögboðinna eftirlauna, en verði þau nú hækkuð upp í 1.000 kr., þá er það miklu meiri styrkur en flestar ekkjur njóta. Þess vegna getur n. ekki fallizt á þessa hækkun.

Brtt. LI., um hlutabréfakaup í Eimskipafélaginu, hefir verið rædd svo ítarlega, að óþarfi er þar við að bæta, en ég skal aðeins taka það fram, að n. hefir óbundnar hendur við atkvgr.

N. getur ekki fallizt á brtt. LII., frá hv. 2. þm. Eyf. En hv. 1. þm. Árn. hefir flutt brtt. við hana og gert grein fyrir henni hér í þessari hv. deild, sem n. fellst á, og leggur til, að hún sé samþ.

Um brtt. um eftirgjöf á viðlagasjóðsláni Ostagerðarfélags Önfirðinga skal ég vera stuttorður. N. hefir óbundnar hendur um þá till. Ég býst þó við, að margir fylgi henni, sérstaklega eftir yfirlýsingu hæstv. fjmrh.

Þá er ein ábyrgðarheimild ennþá, sem farið er fram á af hv. þm. N.-Ísf. Hann fer fram á, að ríkissjóður ábyrgist, gegn endurábyrgð sýslunefndar Norður-Ísafjarðarsýslu, 4/5 kostnaðar við byggingu rafmagnsstöðvar fyrir Súðavíkurhrepp, allt að 60 þús. kr. Um þessa till. hefir n. óbundnar hendur, en sumir nm. munu vera henni fylgjandi.

Þá er það ábyrgðarheimildin undir LVI. lið á sama þskj., frá hv. 1. þm. S.-M., að ganga í allt að 90 þús. kr. ábyrgð fyrir samvinnufélag Eskfirðinga. Um hana hefir n. óbundnar hendur, og skal ég ekkert segja um það, hvort það er meiri eða minni hl., sem fylgir henni, en þó skal ég geta þess, að ég mun ekki greiða henni atkv. eins og nú standa sakir.

Þegar farið var fram á samskonar ábyrgðarheimild til Samvinnufélags Ísfirðinga, var ég frsm. n. og mælti með heimildinni, svo að það mætti segja, að ég sé ekki sjálfum mér samkvæmur, ef ég mæli á móti þessum styrk. En þó að ég hafi fyllilega trú á þessum félagsskap, þá álít ég samt rétt, að það félag, sem þegar er stofnað (Samvinnufélag Ísfirðinga) fái að sýna sig nokkuð og safna reynslu um rekstur og fyrirkomulag, áður en önnur samskonar félög eru stofnuð og rekin að fordæmi þess.

Þá kem ég að 5. brtt. á þskj. 316, um að veita Fanneyju Jónsdóttur 1.000 kr. til þess að ljúka námi í dráttlistarkennslu í Kaupmannahöfn. Hefi ég ekki annað um þessa till. að segja en að n. hefir um hana óbundnar hendur.

Um næstu till. á þessu sama þskj., frá hv. þm. Rang., um að veittur verði 10 þús. kr. styrkur til mælinga og rannsókna á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts, get ég lýst yfir því, að n. mælir eindregið með henni. Í fjárl. síðasta árs var veittur samskonar styrkur, og verður að halda honum áfram, til þess að not verði að honum. Er hér um afarmerkilegt mál að ræða, sem í senn er ræktunar-, samgangna- og landvarnarmál, og því sjálfsagt að samþykkja þessa áframhaldandi styrkveitingu.

Þá kemur 7. brtt. á sama þskj., frá hv. 2. þm. G.-K., sem fjallar um það, að auka skuli framlag ríkissjóðs til slysavarna um 12.500 kr. og verja 8.000 kr. af framlaginu til þess að fullgera veg, sem flytja megi eftir björgunarbát frá Sandgerði til Stafness, og 4.500 kr. til símalagninga milli sömu staða. N. er á móti þessari till., en hefir tjáð sig fylgjandi till. frá sama þm., sem fer í svipaða átt, og prentuð er á þskj. 319, þar sem er gert ráð fyrir 8.000 kr. hækkun á þessum lið, sem eingöngu skuli varið til að fullgera veginn, en fjárframlagi til símalagninga á þessum slóðum er sleppt. Nú er það rétt, að n. flutti í fyrra till. um 8.000 kr. fjárveitingu til þess að gera þennan veg, og var þá gengið út frá, að þessi fjárveiting myndi nægja til þess að fullgera veginn. Nú varð sú raunin á, að þetta fé reyndist ekki nóg í þessu skyni, og þó að illt sé, að verkið strandi, verð ég að átelja það, þegar komið er með áætlanir, þar sem gert er ráð fyrir minna fé til framkvæmda. einnar eða annarar, en hægt er að komast af með, og segja svo, að þar sem byrjað hafi verið á framkvæmdinni, verði að halda áfram með hana. Það verður að vera hægt að treysta því, að áætlanirnar standi heima. Annars býst ég við, að ýmsum fjvnm. fari svo, að þeir verði varfærnari um að leggja með fjárveitingum til framkvæmda, þó að til þjóðþrifa kunni að horfa.

Þá kemur ein ábyrgðarheimildin enn, frá hv. 2. þm. Eyf., um að ábyrgjast allt að 620 þús. kr. lán fyrir Siglufjarðarkaupstað til raforkuveitu, gegn þeim tryggingum, sem ríkisstj. tekur gildar. Skal ég ekki fjölyrða um þessa brtt., en aðeins geta þess, að n. leggur á móti því, að þessi ábyrgð verði veitt, af sömu ástæðum og ég hefi tekið fram í sambandi við hinar aðrar ábyrgðarheimildir.

Um 9. brtt. á þessu þskj., um að veita Halldóri Arnórssyni umbúðasmið eftirgjöf á eftirstöðvum á láni úr viðlagasjóði, 5.500 kr., skal ég ekki fjölyrða, en aðeins geta þess, að n. hefir óbundnar hendur um hana. Meiri hl. n. leggur þó ú móti henni.

10. og síðasta brtt. á þessu þskj. er viðaukatill. við brtt. 32, LV, við 22. gr. IV. N. leggur með þessari till., þótt hún hafi óbundnar hendur um hana. N. lítur svo á, að það sé til bóta, ef þetta lán sé tekið innanlands, ef ábyrgðin verður veitt; vegna hinna skaðlegu áhrifa, sem það getur haft í för með sér, ef einstökum mönnum eru veittar ábyrgðarheimildir til þess að valsa með utanlands.

Um brtt. hv. 2. þm. G.-K. á þskj. 319, III, hefi ég áður getið í sambandi við aðra brtt. frá sama þm. á þskj. 316, VII, og get því sleppt því nú.

Um 4. till. á þskj. 319, sem fer fram á 1.000 kr. aukinn styrk til Stefáns skálds frá Hvítadal, skal ég aðeins geta þess, að n. hefir um hana óbundnar hendur.

Þá kem ég að till. hv. 1. þm. Árn., en hann flytur brtt. við brtt. 302, LII, þess efnis, að till. skuli orða sem þar hermir.

Ég held, að ég fari rétt með það, að hv. l. þm. Árn. hafi í hyggju að bera fram brtt. við þessa brtt. sína, þess efnis, að sú framkvæmd, sem hér um ræðir, fari fram; þegar fjárveiting liggur fyrir um það í fjárl. Með það fyrir augum, að þessi brtt. komi fram, leggur n. með fyrrnefndri brtt. hv. þm.

Þá kemur viðaukatill. frá hv. 1. þm. S.-M., við brtt. sama þm. á þskj. 302, LVI, þess efnis, að það lán, sem þar er um að ræða, skuli tryggt með ábyrgð Suður-Múlasýslu, auk ábyrgðar Eskifjarðarhrepps og sjálfskuldarábyrgðar félagsmanna. Munum við allir fjvnm. greiða atkv. með þessari viðaukatill., hvað svo sem við gerum við aðaltill.

Ég held, að ég þurfi ekki að minnast á fleiri brtt., en hafi ég gleymt að minnast á nokkra, vonast ég til, að ég verði minntur á það áður en umr. verður slitið.