07.02.1930
Neðri deild: 17. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í C-deild Alþingistíðinda. (1153)

36. mál, járnbraut frá Reykjavík til Ölfusár

Gunnar Sigurðsson:

* Ég harma það, að nú skuli vera umr. um eins merkilegt mál og þetta, á meðan hugir manna eru bundnir við annað mál, sem nauðsynlegt er að leysa sem fyrst. Ég skal því vera stuttorður, enda þætti mér, eins og hv. flm., réttast, að málið yrði tekið af dagskrá. Það þýðir ekki að vera að endurtaka þau rök, sem alltaf munu verða færð fyrir því, að járnbraut sé réttari lausn þessa samgöngumáls en vegur. Hæstv. ráðh. tók fram, að ekkert væri rannsakað um þetta mál. En ég held því fram, að það sé rannsakað. Það var rannsakað af Sverre Möller, og hann komst að þeirri eindregnu niðurstöðu, að við ættum að byggja járnbraut. Hvað hann kann að hafa látið uppi seinna, skal ég ekki um segja. Það getur verið, að einhver hafi talið honum trú um, að aðstæður væru nú breyttar, en svo er þó ekki, nema að því leyti, að nú hefir verið góðæri meira en áður. Vetur eins og í fyrra kemur ekki nema kannske einu sinni á öld. En í vetur hefir reyndin orðið önnur. Eins og menn vita, hefir verið nær ófært í allan vetur austur í sýslur, og þó hafa verið gerðar miklar tilraunir til að bæta úr því. — Menn hafa haldið því fram, að járnbrautarsamgöngur mundu stöðvast af snjó. Það getur náttúrlega komið fyrir, að á einstöku stað verði að byggja yfir járnbrautina, en það mundi þurfa að byggja miklu meira yfir veg, sem ætti að vera fær hvenær sem er. Og vegurinn þyrfti að vera malbikaður. En vita hv. þm., hvað malbikaður vegur kostar? Það kostar á 2. þús. kr. metrinn hér í götunum. Ef menn vilja byggja óvandaðan veg, er stofnkostnaðurinn lítill, en viðhaldið afskaplega dýrt. Ég tek undir það með hv. 1. þm. Skagf., að við Sunnlendingar erum kröfulinir í þessu máli. Ef ég sæi mér það fært að koma fram með brtt. þess efnis, að fyrr verði byrjað á verkinu, mundi ég gera það.

Ég hefi haldið því fram, að það, sem búið er að gera til framfara á Suðurlandsundirlendinu, sé allt gert út í bláinn, meðan við fáum ekki trygga höfn eða almennilegar samgöngur við Reykjavík. Margir halda því fram, að vegir borgi sig bezt á stuttum fjarlægðum. En við verðum að líta á aðstæðurnar, snjóana á vetrum. Víða þar, sem Ameríkumenn eru að nema land, byrja þeir á því að leggja járnbraut.

Mér þótti hæstv. ráðh. heldur linur í þessu máli núna. En sú var tíðin, að hann hélt ræður austanfjalls oftar en einu sinni um járnbrautarmálið og var þá eindreginn járnbrautarmaður. Hann heimtar rannsókn. Ég hefi ekkert á móti rannsókn, en það skal ég leyfa mér að fullyrða, að ef ég fengi fylgi minna samþingismanna austanfjalls, skyldi ég segja skilið við hvaða stjórn sem væri, sem ekki vildi sinna járnbrautarmálinu, en styðja hvaða stjórn sem væri, sem vildi vinna að því að hrinda því í framkvæmd.

Það er engin tilviljun, að úr Rangárvallasýslu flyzt meira af landbúnaðarafurðum en úr nokkurri annari sýslu. Þar eru betri ræktunarskilyrði en annarsstaðar á landinu, jafnvel kornrækt getur borgað sig. En menn þurfa að geta komið afurðunum frá sér daglega. Ég hefi oft talað við útlendinga um þetta mál og engan útlending hitt, sem ekki skilur þetta strax. En hér er mönnum talin trú um, að ekki verði hægt að nota járnbrautina vegna snjóa. Ég vil í því sambandi benda á brautina milli Bergen og Oslo, sem alltaf er starfrækt, allan ársins hring. Ég hefi farið með henni í júlímánuði, og þá náði snjórinn niður undir teig.