07.02.1930
Neðri deild: 17. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í C-deild Alþingistíðinda. (1154)

36. mál, járnbraut frá Reykjavík til Ölfusár

Magnús Guðmundsson:

Það sannaðist á hæstv. forsrh., að sannleikanum verður hver sárreiðastur. Ég hefi ekki heyrt hæstv. ráðh. verða öllu hvassari en nú, og það gleður mig, að hafa hitt hann í hjartastað. Hann spurði mig, á hverju ég byggði eiginlega mína sannfæringu í þessu máli og taldi, að ég mundi byggja hana eingöngu á áliti Sverre Möllers. Nei, ég byggi sannfæringu mína líka á því, sem ég hefi séð með mínum eigin augum. Jörðin hér og snjórinn hér er ekki öðruvísi en í öðrum löndum. Það er staðreynd, að járnbrautir eru lagðar yfir svæði, sem eru ekki minni snjóapláss og liggja ekki lægra en vegurinn yfir Hellisheiði. Ég hefi farið eftir Bergensbrautinni í veðri, sem við köllum stórhríð. Fannirnar voru metraháar og sá hvergi á dökkan díl. Aðrar þjóðir væru ekki að leggja járnbrautir enn í dag yfir löng og skömm svæði, ef þær álitu, að bílarnir væru það eina rétta. Annars þykir mér undarlegt, að ég skuli ekki hafa fengið þetta nýja álit Sverre Möllers. Ég vil skora á hæstv. ráðh. að láta mig fá það fyrir 2. umr. þessa máls. — Það er hárrétt hjá hv. 2. þm. Rang., að hæstv. forsrh. hefir lýst yfir því austur í Rangárvallasýslu, að hann væri eindreginn járnbrautarmaður.

Ég þykist ekki þurfa að gera frekari grein fyrir því, af hverju ég er járnbrautarmaður. Hæstv. ráðh. segir, að það muni ekki vera einn af þúsund, sem tryði því, að járnbrautin hefði komið, þó að sérleyfið hefði verið veitt. Af hverju veitti hæstv. ráðh: þá ekki sérleyfið? Ég veit upp á hár, að hann veitti það ekki, bara af því að hann var hræddur við framkvæmdirnar. Ef hann hefði vitað, að ekkert yrði úr framkvæmdum, þá hefði hæstv. ráðh. — jafnmikill spilamaður og hann er — veitt sérleyfið og látið sannast sitt mál.

Þá sagði hæstv. ráðh., að félagið hefði aldrei talað um að leggja fram einn einasta eyri. En eftir því sem fram kom 1927, átti fyrst að veita leyfið, síðan átti félagið að leggja fram féð. Þegar hæstv. ráðh. talaði um þetta mál 1928, lét hann í veðri vaka, að hann biði eftir áliti vegamálastjóra og rafmagnsstjóra. Álitið kom, og báðir mæltu með því, að sérleyfið yrði veitt, en hæstv. ráðh. var á móti því.

Hæstv. ráðh. sagði, að hann óskaði eftir því, að ég kæmi fram með þinglegar sannanir fyrir því, að hann hefði brotið þingviljann 1927. Ég býst við, að það sé þingleg sönnun að vísa í þingtíðindin, og þau sanna skýrt og greinilega mitt mál.

Það er ekki ætlun mín að ganga fram fyrir skjöldu fyrir hv. þm. Rangæinga og Árnesinga. Vegna þess að ég hefi áður verið riðinn við þetta mál, vildi ég ekki láta hjá líða að segja þessi orð. Annars þurfa þessir hv. þm. sannarlega á brýnslu að halda í þessu máli, og ef orð mín gætu orðið til að brýna þá, eru þau ekki til einskis töluð.