18.02.1930
Neðri deild: 30. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í C-deild Alþingistíðinda. (1184)
65. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Halldór Stefánsson):
Eins og kemur fram í grg. frv., er það flutt eftir óskum fjmrh., og það er flutt óbreytt eins og það var afgr. til ríkisstj. af mþn. í tolla- og skattamálum fyrir miðjan des. síðastl. Það er fram borið aðeins af meiri hl. n., því að einn nm. (HG) gat ekki orðið okkur hinum sammála um ýms einstök atriði. Þó hefir n. öll unnið að meginhlutanum af texta frv. í sameiningu, en klofnaði um einstök atriði, sem telja verður höfuðatriði, aðallega um skattstigana. Hv. minni hl. mun bera fram till. sínar síðar. Þegar þær koma fram hér í þinginn, skýrist sá ágreiningur, sem í n. var.
Í grg. frv. er gerð allítarleg grein fyrir þeim breyt., sem frv. gerir ráð fyrir á gildandi lögum, og vísa ég því fyrst og fremst til hennar. Ég mundi ekki skýra þær betur né ítarlegar við umr. nú en þar er gert að svo stöddu.
Þó vil ég leyfa mér aðeins að benda á þær breyt., sem helztar eru, og hvar þeirra er að leita í frv. Fyrst er að nefna eina breyt., sem er nýmæli, að það megi hækka eða lækka skattinn með fjárlagaákvæðum um ákveðna hundraðstölu, allt að 25%, fyrir eitt ár í senn. Það getur þá komið í hvert sinn til álita þingsins, hvort svo eigi að gera. Lík ákvæði og þetta hafa gilt í skattalöggjöf annara þjóða, svo sem Englendinga. Þetta nýmæli er að finna í 8. gr. og 17. gr.
Annað atriði er, að svo er gert ráð fyrir, að draga ekki frá skattskyldum tekjum útsvar, tekjuskatt og eignarskatt, eins og gert hefir verið seinni árin, sem lögin hafa gilt. Ég ætla ekki nú að rekja verulega ástæður fyrir því, nema tilefni gefist til. Þó skal ég geta þess, að þetta er að nokkru leyti gert til að vega á móti þeirri tekjurýrnun, sem fram kemur við aðrar breyt. n., þá sem sé, að hækka skattfrjálsan frádrátt af tekjum fyrir einstaklinga. Og þetta ákvæði mun fullkomlega vega þá tekjurýrnun upp. Ákvæði þetta felst í 12. gr., eins og getið er um í aths. við greinina.
Í 12. gr. felst líka önnur breyt.; hún er sú, að af þeim hluta af ársarði samvinnufélaga, sem lagður er í varasjóð, megi draga 1/3 hluta, eins og nú hjá hlutafélögum, og sé sá hluti undanþeginn skatti. Um þetta hljóta að verða umr. seinna. Ég vildi aðeins vekja athygli á því.
Þá er gert ráð fyrir, að persónufrádráttur verði hærri, og misjafnlega hár, eftir því hvar er á landinu, af því að misjafnlega dýrt er að lifa á hinum ýmsu stöðum. Þar kemur fram einskonar mishá dýrtíðaruppbót, sem stundum er talað um hér á Alþingi.
Við það að hækka þennan frádrátt, þá rýrna tekjurnar talsvert. En með hinu, að draga ekki frá tekjum útsvör og tekju- og eignarskatt, ætlum við, að vinnist fullkomlega upp tekjumissirinn af hækkun persónufrádráttar. Hinn lögleyfði frádráttur er svo lágur, að hann er á sumum stöðum a. m. k. varla fyrir húsnæði einu saman, hvað þá að sú upphæð nægi til allrar framfærslu. Þó segja megi, að þessi hækkun sé ekki nóg, þorðum við ekki að fara hærra, til þess að rýra ekki tekjurnar um of, enda munu ýmsir láta sér nægja þessar tekjur, því að segja má, að hugsanlegt sé að lifa á þessu, þó öðrum þyki það ekki og sé það ekki framkvæmanlegt.
Í 28. gr. er það nýmæli, að skipa skuli yfirskattanefnd fyrir land allt, sem nefnd er ríkisskattanefnd. Það hefir verið rætt um nauðsyn þess oft áður og er hugsað í því skyni að tryggja betra samræmi á framkvæmd þessara laga. Skattgreiðendur eiga heimtingu á að vera skattaðir eftir sömu reglum, hvar sem er á landinu, en á því getur orðið misbrestur, nema betra eftirlit sé með því en enn hefir verið.
Þetta eru höfuðbreytingarnar. Þá eru ýmsar fleiri, sem taka til smærri atriða og lúta yfir höfuð að því að gera lögin skýrari en áður, svo að framkvæmd þeirra geti orðið betri. Ég vil benda á, að hér eru dregin saman ákvæði úr fernum lögum og tveimur tilskipunum, sem nú gilda um þessi efni. Það er sýnilega greiðara um skattaákvörðun og framkvæmd alla að eiga að ganga að öllum fyrirmælum um þetta í einum lögum en að fyrirmæli um það séu í mörgu lagi.
Við flm. frv. ætlumst til, að tekjur eftir því megi áætla eins og eftir gildandi lögum. En þó er ekki ómögulegt, að í reyndinni greiðist skatturinn rífar af hendi vegna betri framkvæmdar. En við viljum fullyrða, að tekjurnar verða aldrei minni en nú.
Ég sé ekki ástæðu til að svo stöddu að tala um þetta frekar, en skal enda með því að vísa aftur til grg. frv., þar sem gerð er grein fyrir hverju atriði, sem gerðar eru till. til breyt. á. Ég hefi aðeins drepið á helztu atriðin til að vekja athygli á þeim.