28.03.1930
Neðri deild: 65. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í C-deild Alþingistíðinda. (1189)

65. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ólafur Thors:

Ég leyfi mér að vekja athygli á því, að hv. frsm. minni hl. (HV) er ekki hér viðstaddur og getur því ekki svarað fyrir sig, og þar sem málið var afgr. í n. án þess að hann væri viðstaddur, þá álít ég ekki rétt að taka það fyrir að svo stöddu.